Á spít­al­anum Sergiy keyrir um ganga spít­al­ans á raf­magns­hjóla­stól. Hann hefur verið á spít­al­anum í 14 mán­uði. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Þeir drepa þig ef þú hikar

Hann var einn af fjórum sem lifði af bar­daga í Úkraínu. Nú hefur hann misst annan fót­inn. Eftir 14 mán­uði á spít­ala horfir hann fram á veg­inn. „Ég hef barist fyrir landið mitt. Þetta er bara næsta bar­átta — að kom­ast bók­staf­lega aftur á fætur.“

Árið 2013, án nokk­urra vís­bend­inga um ófrið­inn sem skömmu síðar myndi ríða yfir Úkraínu, gekk Sergiy, aðeins 18 ára gam­all, til liðs við úkra­ínska her­inn. Hann segir að það hafi ekki verið póli­tísk ákvörðun á þeim tíma heldur per­sónu­leg.

Sergiy hafði ákveðið að feta í fót­spor föður síns, sem hafði verið fall­hlíf­ar­her­maður í Afganistan þegar Sov­ét­menn háðu stríð þar frá 1979 til 1989.

„Mig hafði dreymt um að verða her­maður frá því ég var barn.“

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar hitti Sergiy á sjúkra­húsi í Kænu­garði þar sem hann var að ná sér eftir að sprengju­brot braut sér leið í gegnum lærið á honum rúmu ári á undan. Sergiy veitti ein­staka inn­sýn í þróun úkra­ínska hers­ins í gegnum heilan ára­tug af stríði við Rússa.

„Ég gekk í her­inn ein­fald­lega af því að það var réttur tími. Ég var 18 ára, og þetta var bara það sem ég vildi gera,“ segir Sergiy …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár