Mynd: Óskar Hallgrímsson

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Saga Azov-her­sveit­ar­innar í Úkraínu er flókin og marglaga – líkt og saga lands­ins sjálfs. Það er erfitt hvar sé best að setja niður stjaka að upp­runa deild­ar­innar. Lík­leg­ast er best að byrja þegar rík­is­stjórn Viktors Yanukovych féll í kjöl­far Maidan-bylt­ing­ar­innar. 

Mannskæð mót­mæli brut­ust út í Kænu­garði árið 2014 eftir að for­set­inn hætti við samn­ing um nán­ara sam­band Úkraínu við Evr­ópu­sam­bandið og ákvað að und­ir­rita þess í stað starfs­samn­ing við Rússland. Til átaka kom á milli mót­mæl­enda og lög­reglu. For­set­inn flúði til Rúss­lands og var leystur frá störfum. Rúss­neskt her­lið réð­ist síðan inn í Krím­skaga og inn­lim­aði í Rússland, auk þess sem her­lið Rússa var sent í Donbas-héröðin í aust­ur­hluta Úkraínu til að efla hreyf­ingar aðskiln­að­ar­sinna sem höfn­uðu stjórn­ar­skipt­unum og vildu aukið sam­starf við Rússland. 

Sjálfboðasveit Azov

Eftir upp­reisn­ina á Maidan-torgi tók Andriy Biletsky, fyrsti leið­togi Azov-deild­ar­innar, þátt í að stofna „Svörtu her­sveit­ina“ ásamt með­limum aðdá­enda­klúbbs fót­boltaliðs­ins FC Metalist í Kharkiv. …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár