Ég næ að henda mér niður rétt fyrir hvellinn
Spreng­ing í Kharkiv Slökkvi­liðið slekkur í síð­ustu glæð­unum. Fyrstu þrjár hæð­irnar féllu saman í spreng­ing­unni, næstu tvær féllu dag­inn eftir. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Ég næ að henda mér niður rétt fyrir hvellinn

Ljós­mynd­ar­inn Óskar Hall­gríms­son var á vett­vangi spreng­ingar í Kharkiv-borg­inni í Úkraínu í vik­unni og kom að konu lát­inni. Hann lýsir spreng­ing­unni, aðstæðum á vett­vangi og því sem tók við í kjöl­farið.

Ég er staddur á hót­el­her­bergi, klukkan er korter yfir þrjú og ég er nýbú­inn að ljúka sam­tali við rétt rúm­lega átt­ræða móður mína er ég heyri þrjá háværa hvelli úr fjarska. Ég stend upp og lít út um glugg­ann til að athuga hvort ég sjái reyk stíga upp í nágrenn­inu. Þá er eins og ég heyri lágan þot­unið sem hækkar skyndi­lega í tíðni og hávaða og verður að ærandi skræk á um tveimur sek­úndum. Ég tek á rás eins hratt og fætur toga í átt að gang­inum við her­berg­is­dyrnar og rétt næ að henda mér í jörð­ina áður en sprengi­hvell­ur­inn dynur og hristir húsið til.  

Það var þann 22. júní sem Rússar gerðu loft­árás á úkra­ínsku borg­ina Kharkiv með fjórum svif­sprengjum. Alls lentu 35 slíkar sprengjur í Karkhiv-hér­aði þann dag­inn, líkt og dag­ana þar á undan og eftir. 

Alls hafa Rússar varpað 2.400 svif­sprengjum síðan í júní, þar …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár