„Hún hefur engan tíma, hún verður send út á morgun eða hinn“

Ef mála­ferlin gagn­vart Eddu Björk Arn­ar­dóttur verða ekki stöðvuð liggur fyrir að hún verði send úr landi á morgun eða hinn, sam­kvæmt lög­manni hennar.

Á leið til Noregs
Á leið til Noregs Edda Björk Arn­ar­dóttir verður send til Noregs á morgun eða hinn.

Ljóst er að mál hennar Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur mun ekki fara fyrir dóm í Noregi fyrr en á nýju ári, þar sem dóm­stólar eru þétt bók­aðir í des­em­ber. Þrátt fyrir það verður Edda Björk send út til Noregs á morgun eða hinn ef ekk­ert verður gert í hennar máli. 

Þetta segir einn lög­manna Eddu Bjarkar sem hefur verið hennar innan handar í fyr­ir­málum í sam­tali við Heim­ild­ina. „Edda hefur alltaf ætlað sér að mæta fyrir dóm. Þetta er sjö barna móðir en hún vill alla­vega að það sé komið á dag­skrá úti,“ segir sami lög­maður, sem ekki vildi láta nafns sín getið, í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Edda Björk stendur í for­sjár­deilu við fyrrum eig­in­mann sinn í Noregi, en hann einn fer með for­sjá drengj­anna. Hún var hand­tekin fyrr í vik­unni eftir að hand­töku­skipun var lögð á hana frá Noregi. 

Átti hún rétt á að hitta dreng­ina þeirra þrjá í 16 klukku­stundir á ári áður en hún kom drengj­unum til Íslands. Hafa þeir verið hér á Íslandi í núna 20 mán­uði og komið sér fyrir í félags­líf­inu og skólum. 

„Hún væri til­búin að vera með ökkla­band ef málið snýst ein­göngu um að þeir séu hræddir um að hún mæti ekki fyrir dómi“
Lögmaður Eddu Bjarkar

Lögmaður Eddu gagn­rýnir aðferðir lög­regl­unnar, bæði hvernig hún var eft­ir­lýst en einnig að hún sitji á Hólms­heiði með öðrum föngum. Lög­reglan á höfu­borg­ar­svæð­inu birti myndir af Eddu Björk og lýsti eftir henni á sam­fé­lags­miðlum sínum.

Þykir lög­mann­inum þetta furðu­legt þar, sem ekki sé venjan að lýsa eftir glæpa­mönnum á slíkan hátt.

Handtaka Eddu BjarkarFjöldi ein­kenn­is­klæddra lög­reglu­manna var við­staddur hand­töku Eddu Bjarkar

Systir Eddu Bjarkar tjáir sig fyrir hennar hönd

Rétt fyrir hádegi í dag setti systir Eddu Bjarkar inn Facebook færslu fyrir hennar hönd. Þar segir hún frá því að Edda missti for­ræðið yfir börn­unum sínum í Noregi þar sem Edda fékk sjálf ekki að taka þátt í rétt­ar­höld­unum. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

GreiningMál Eddu Bjarkar

For­ræð­is­deila Eddu Bjarkar og barns­föður hennar: Hvað gerð­ist eig­in­lega?

Deilur íslenskra for­eldra, sem hafa staðið yfir í fimm ár, hafa verið dregnar fram í ærandi skært kast­ljós fjöl­miðla á síð­ast­liðnum mán­uði. For­eldr­arnir, Edda Björk Arn­ar­dóttir og barns­faðir hennar, eiga saman fimm börn og hafa deilur þeirra farið fram svo oft frammi fyrir dóm­stólum að tvær hendur þarf til þess að telja skiptin.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár