Allir ráðherrarnir mælast með meira vantraust en traust

Bjarni Bene­dikts­son er sá ráð­herra sem lang­flestir lands­menn van­treysta og fæstir treysta. Kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna bera mun minna traust til hans en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks bera til Katrínar Jak­obs­dóttur eða Sigurðar Inga Jóhanns­sonar.

Allir ráðherrarnir mælast með meira vantraust en traust
Traust­vandi Samhliða því að fylgi stjórn­ar­flokk­anna og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur dalað þá hefur van­traust í garð ráð­herra auk­ist og traust til þeirra dreg­ist saman. Þar eru for­menn stjórn­ar­flokk­anna ekki und­an­skildir. Mynd: Golli

Enginn ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar mælist með meira traust en van­traust sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Í öllum til­vikum segj­ast fleiri bera lítið traust til ráð­herra en treysta honum vel. Sá sem kemst næst því að njóta meira trausts en van­traust er Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, en næstum jafn­margir, 33,6 pró­sent, segj­ast treysta honum vel og segj­ast treysta honum illa, en alls 33,7 pró­sent aðspurðra sagð­ist treysta Willum lítið. 

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem lang­flestir treysta lítið. Þrír af hverjum fjórum, eða 74,7 pró­sent svar­enda, sögð­ust van­treysta Bjarna. Hann er líka sá ráð­herra sem fæstir nefndu að þeir bæru mikið traust til, en ein­ungis 16,7 pró­sent treysta Bjarna, sem var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í meira og minna ára­tug þar til í síð­asta mán­uði þegar hann færði sig yfir í utan­rík­is­ráðu­neytið, mikið.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, er sá ráð­herra sem flestir segj­ast treysta vel, eða 34,1 pró­sent. Munurinn á henni og Willum, sem er í öðru sæti á þeim lista, er þó ekki mark­tækur enda ein­ungis 0,4 pró­sentu­stig. Líkt og kom fram í Heim­ild­inni í morgun þá mælist Katrín nú í fyrsta sinn síðan hún tók við sem for­sæt­is­ráð­herra með meira van­traust en traust. Alls segj­ast 44,7 pró­sent svar­enda bera lítið traust til leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, nýtur minna trausts en Katrín en meira trausts en Bjarni. Alls segj­ast 28,7 pró­sent treysta honum mikið. Sigurður Ingi er sá for­maður rík­is­stjórn­ar­flokks sem nýtur minnst van­traust. Alls segj­ast 38 pró­sent aðspurðra bera lítið traust til hans.

Vonarstjörnur í vanda

Sá ráð­herra sem næst flestir bera lítið traust til er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Alls seg­ist annar hver svar­andi van­treysta henni. Hún er líka á meðal þeirra ráð­herra sem fæstir treysta mikið. Traust til hennar hefur dreg­ist veru­lega saman síð­ast­liðið ár á sama tíma og van­traust í hennar garð hefur auk­ist umtals­vert. 

Mikið van­traustAnnar hver svar­andi segir að hann beri lítið traust til Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

Skammt undan kemur Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, en 46,8 pró­sent lands­manna bera lítið traust til hans. Mikill við­snún­ingur hefur orðið á vin­sældum Ásmundar Einars. Í nóv­em­ber 2021 sögð­ust 63 pró­sent lands­manna treysta honum vel og í apríl í fyrra var hann eini ráð­herr­ann í rík­is­stjórn­inni sem meiri­hluti þjóð­ar­innar treysti. Nú segj­ast ein­ungis 26 pró­sent svar­enda treysta mennta- og barna­mála­ráð­herr­anum vel sem þýðir að við­snún­ing­ur­inn á tveimur árum er 37 pró­sentu­stig. 

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna og félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, mælist líka með lítið traust. Einungis 21,9 pró­sent svar­enda treysta honum vel en 39,4 pró­sent segj­ast bera litið traust til hans. 

Tveir ráð­herrar bæta mark­vert við sig svar­endum sem bera mikið traust til þeirra, þótt van­traust í þeirra garð sé í báðum til­vikum umtals­vert meira. Það eru Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, og Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Lilja var sá ráð­herra sem fæstir, ein­ungis 18,8 pró­sent svar­enda, báru mikið traust til í nóv­em­ber í fyrra en nú mælist það hlut­fall 27,6 pró­sent. Van­traust á hana hefur á sama tíma dreg­ist saman úr 50,5 í 38,4 pró­sent. Hlutfall þeirra sem segj­ast treysta Svandísi vel hefur farið úr 22,2 í 26,7 pró­sent milli ára en hlut­fall þeirra sem treysta henni lítið hækkað úr 42,8 í 45,3 pró­sent. 

Kjósendur hinna stjórnarflokkanna treysta ekki Bjarna

Eðli máls­ins sam­kvæmt þá njóta ráð­herr­arnir nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laus meira trausts hjá stuðn­ings­fólki rík­is­stjórn­ar­innar en á meðal kjós­enda stjórn­ar­and­stöð­unnar. Í tölum Maskínu vekur þó athygli hversu lítið kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins, treysta for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarna Bene­dikts­syni. Einungis 19 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks treystir Bjarna mikið og 26,2 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna. Síð­ar­nefndi kjós­enda­hóp­ur­inn van­treystir Bjarna raunar mjög, en 70,4 pró­sent þeirra bera lítið traust til hans. 

Til sam­an­burðar treysta 62,8 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna Katrínu Jak­obs­dóttur vel sem for­sæt­is­ráð­herra og 49,5 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar eru sama sinnis. Þá segj­ast 48,5 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og 45,2 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna að þeir treysti Sigurði Inga Jóhanns­syni mikið.

Ítarlega er fjallað um traust­könnun Maskínu í prentút­gáfu Heim­ild­ar­innar sem kemur út í dag.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi ráðherra hefur reynst okkur Íslendingum mjög illa. Hann vanrækti störf sín sem æðsti yfirmaður skattrannsókna en fjármálaráðherra er það. Við fengum engar fréttir af rannsóknum af undanskoti eigna íundan sköttum aflandsfélög og leynireikninga
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Er ekki kominn tími á að bjarN1 benediktson foringi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisflokksins fari í ræðupúltið
    ☻g gargi frussand að kata svikari jakobsdóttir skili nú snarlega lykklunum af valdinu ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár