Þórdís Kolbrún ræður aðalhagfræðing Arion banka sem aðstoðarmann

Konráð S. Guð­jóns­son, sem hefur starfað fyrir Við­skipta­ráð, Samtök atvinnu­lífs­ins og Arion banka, hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Þórdís Kolbrún ræður aðalhagfræðing Arion banka sem aðstoðarmann
Aðstoð­ar­maður númer tvö Konráð verður annar aðstoð­ar­maður ráð­herr­ans. Fyrir á fleti var Inga Hrefna Svein­bjarn­ar­dóttir. Mynd: Stjórnarráðið

Konráð S. Guð­jóns­son, sem starfað hefur sem aðal­hag­fræð­ingur Arion banka síð­ast­liðið hálft ár, hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar með er Þordís búin að ráða í báðar aðstoð­ar­manna­stöð­urnar sem lög heim­ila henni að ráða í en Inga Hrefna Svein­bjarn­ar­dóttir fylgdi henni yfir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu þegar Þórdís skipti um ráð­herra­stól í síð­asta mán­uði. 

Konráð hefur verið áber­andi í umræðu um íslensk efna­hags­mál á und­an­förnum árum. Hann var hag­fræð­ingur og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs um fjög­urra ára skeið og færði sig síðan yfir í starf aðal­hag­fræð­ings Stefnis, sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka. Í ágúst í fyrra var hann svo ráð­inn tíma­bundið í stöðu efna­hags­ráð­gjafa Samtaka atvinnu­lífs­ins í aðdrag­anda kjara­samn­inga­gerðar og tók sæti í samn­inga­nefnd sam­tak­anna. 

Þriðja konan

Þórdís Kolbrún tók við emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 14. októ­ber síð­ast­lið­inn í kjöl­far þess að Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér því emb­ætti. Þau, for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, höfðu sæta­skipti og Bjarni færði sig í utan­rík­is­ráðu­neytið. 

Hún er 27 ein­stak­ling­ur­inn sem gegnir stöðu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í lýð­veld­is­sög­unni og þriðja konan til að gegna þessu eina valda­mesta emb­ætti lands­ins. 

Oddný Harð­­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­­­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­ár­s­dag 2011.

Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­­­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.  

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár