Megnið af umframsparnaði eftir faraldurinn „í höndum tekjuhærri hópa“

Aðgerðir stjórn­valda í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og færri neyslu­mögu­leikar heim­ila á meðan að á honum stóð byggði upp mik­inn sparnað hjá heim­ilum lands­ins. Hluti hans fór í fast­eigna­kaup sem stuðl­aði að hærra íbúða­verði. Lægri tekju­hópar hafa ráð­stafað sparn­aði í neyslu eftir að vextir tóku að hækka en hærri tekju­hópar þurfa þess ekki.

Megnið af umframsparnaði eftir faraldurinn „í höndum tekjuhærri hópa“
Sparn­aður Innlán heim­ila í banka­kerf­inu juk­ust um sam­tals 463 millj­arða króna frá árs­lokum 2019 eða 1,2 millj­ónir króna á hvern íbúa að með­al­tali. Tekju­lægri hópar hafa gengið á sinn sparnað. Mynd: Bára Huld Beck

„Þótt sparn­aður allra tekju­hópa hafi að öllum lík­indum auk­ist í far­sótt­inni er lík­legt að megnið af þeim umfram­sparn­aði sem enn er til staðar sé í höndum tekju­hærri hópa og því ólík­legra að gengið verði á hann að fullu.“ 

Þetta  er meðal þess sem fram kemur í sér­stakri ramma­grein sem birt er í nýjasta riti Pen­inga­mála þar sem fjallað er um umfram­sparnað íslenskra heim­ila í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Þar er rakið að víð­tækar sótt­varna­að­gerðir hafi dregið úr neyslu­mögu­leikum heim­ila og að veru­lega hafi dregið úr ferða­lögum milli landa vegna lok­unar landamæra. „Neyslu­út­gjöld minnk­uðu því tölu­vert en tekjur almenn­ings héldu hins vegar almennt velli þrátt fyrir versn­andi atvinnu­á­stand. Mikill „umfram­sparn­aður“ byggð­ist því upp hjá heim­ilum á far­sótt­ar­tím­anum sem hefur stuðlað að kröft­ugum vexti einka­neyslu og stutt við efna­hags­batann í kjöl­far far­sótt­ar­innar.“ 

Innlán heim­ila í banka­kerf­inu juk­ust um sam­tals 463 millj­arða króna frá árs­lokum 2019 eða 1,2 millj­ónir króna á hvern íbúa að með­al­tali. Hluta auk­ins sparn­aðar heim­ila á far­sótt­ar­tím­anum var ráð­stafað í fast­eigna­kaup og var það einn af þeim þáttum sem stuðl­uðu að mik­illi hækkun íbúða­verðs árin 2021-2022 en það hækk­aði til að mynda um 25,5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu milli júlí­mán­aða á þeim árum.

Í Pen­inga­málum segir að þótt heim­ilin eigi enn tölu­vert eftir af umfram­sparn­aði sé ekki þar með sagt að þau haldi áfram að ganga á hann á kom­andi miss­erum. Skiptir þar miklu hjá hvaða tekju- og eigna­hópi sparn­að­ur­inn liggur en tekju­hærri heim­ili eyða jafnan minni hluta við­bót­ar­tekna sinna í neyslu­út­gjöld en tekju­lægri hópar. „Þótt sparn­aður allra tekju­hópa hafi að öllum lík­indum auk­ist í far­sótt­inni er lík­legt að megnið af þeim umfram­sparn­aði sem enn er til staðar sé í höndum tekju­hærri hópa og því ólík­legra að gengið verði á hann að fullu. Einnig skiptir máli í þessu sam­hengi í hvaða formi sparn­að­ur­inn liggur, hvort hann sé í lausum fjár­eignum sem auð­velt er að grípa til eða í tor­selj­an­legri eignum eins og fast­eignum.“ 

Færa fé af hlutabréfamarkaði og inn á sparnaðarreikninga

Hækkun inn­láns­vaxta í banka­kerf­inu í takt við vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans und­an­farin miss­eri hefur líka aukið fjár­hags­legan hvata heim­ila til að auka sparnað sinn og draga úr neyslu. Að sama skapi hefur hækkun útlána­vaxta dregið úr hvata heim­ila til lán­töku, þar með talið hvata til að draga á eigið fé í fast­eignum. „Óvissa í efna­hags­málum og end­ur­skoðun á vöxtum breyti­legra hús­næð­is­lána­vaxta gætu einnig valdið því að heim­ilin auki við var­úð­ar­sparnað sinn. Samkvæmt grunn­spá bank­ans um þróun einka­neyslu og ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila er útlit fyrir að umfram­sparn­aður heim­ila frá far­sótt­ar­tím­anum muni minnka áfram en að hann verði þó ekki upp­ur­inn í lok spá­tím­ans. Um þessar horfur er sem fyrr mikil óvissa.“

Þessi staða hefur líka haft áhrif á hluta­bréfa­markað. Úrvals­vísi­tala kaup­hall­ar­innar, sem mælir gengi þeirra tíu félaga í henni sem hafa mestan selj­an­leika á hverjum tíma, hefur lækkað um 16,7 pró­sent frá ára­mótum og hluta­bréfa­verð flestra skráðra félaga lækkað á árinu. Velta á hluta­bréfa­mark­aði nam rúm­lega 620 millj­örðum króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins sem er um 29 pró­sent sam­dráttur milli ára og hefur heild­ar­fjöldi við­skipta auk þess dreg­ist saman milli ára. 

sala hlut­deild­ar­skír­teina hluta­bréfa­sjóða hefur líka verið mun minni í ár miðað við fyrri ár og voru inn­lausnir umfram sölu tæp­lega átta millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Í Pen­inga­málum segir að eign heim­ila í hlut­deild­ar­skír­teinum hluta­bréfa­sjóða hafi minnkað um rúm­lega sex millj­arða króna á sama tíma og að lík­legt sé „að ein­hver hluti sölu­virðis þeirra hafi leitað á sparn­að­ar­reikn­inga.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár