Stórforeldri er nýtt kynlaust orð yfir foreldri foreldris. Þetta er niðurstaða hýryrðasamkeppni Samtakanna '78. Hún var kynnt í gær, á degi íslenskrar tungu.
Þá varð sömuleiðis skammstöfunin ks. fyrir orðið kynsegin til. Einnig orðið aðkynhneigð sem er íslensk þýðing á orðin allosexual. Það er notað yfir fólk sem upplifir kynferðislega aðlöðun og er því andstæðan við eikynhneigð sem vísar til fólks sem laðast lítið eða ekkert kynferðislega að öðru fólki.
Styrkir tilverurétt kynsegin fólks
Miklar umræður urðu til um nýyrðasamkeppnina í sumar og bar á misskilningi um að skipta ætti út orðunum amma og afi með kynhlutlausu orði yfir foreldri foreldris. Það var þó ekki raunin.
„Þessi keppni snýst ekki um neina málstýringu,“ sagði Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum, sem sat jafnframt í dómnefnd samkeppninnar, í samtali við Heimildina í sumar. „Þetta er bara formleg leið til þess að leita að viðbót við tungumálið.“
Andrea Rói Sigurbjörns, sem er kynsegin foreldri, fagnaði samkeppninni í sömu umfjöllun.
„Það styrkir tilveruréttinn þinn að eiga hlut í tungumálinu,“ sagði Andrea Rói.
Alls sendu tæplega 300 manns inn tillögu í samkeppnina að einu eða fleiri orðum áður en frestur rann út 15. september.
Athugasemdir (1)