Fjöl­skyldu­stund Mamman Sólveig Ástu­dóttir Daða­dóttir, son­ur­inn Vindar Orri og mamb­inn Andrea Rói Sig­ur­björns. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Mamba langar í barnabörn en ekkert orð er til fyrir hlutverkið

Andrea Rói Sig­ur­björns von­ast til þess að eign­ast einn dag­inn barna­börn en tengir hvorki við orðið amma né afi. Nú kepp­ast nýyrða­smiðir við að finna nýtt orð yfir for­eldri for­eldris fyrir kynsegin fólk eins og Andreu Róa.

Orðið mambi, blanda af orð­unum mamma og pabbi, small strax fyrir Andreu Róa þegar von var á fyrsta barni þeirra Sól­veigar Ástu­dóttur Daða­dóttur árið 2021. Það tók son þeirra, Vindar Orra, smá­stund að kom­ast upp á lagið með að nota orðið en nú er það í upp­á­haldi hjá honum. Það gleður Andreu Róa, sem segir virki­lega mik­il­vægt fyrir kynsegin fólk að til séu orð sem passa þeim.

„Það styrkir til­veru­rétt­inn þinn að eiga hlut í tungu­mál­inu,“ segir Andrea Rói. 

Samtökin '78 settu af stað svo­kall­aða hýr­yrða­sam­keppni í lok júní en á meðal orða sem óskað er eftir til­lögum um eru kyn­hlut­laus orð yfir for­eldri for­eldris. Hug­myndin er að bæta slíku orði, eða jafn­vel orðum, við tungu­málið, en ekki að skipta út orð­unum amma og afi. Sá mis­skiln­ingur hefur verið áber­andi í athuga­semda­kerfum fjöl­miðl­anna. 

„Þessi keppni snýst ekki um neina mál­stýr­ingu,“ segir Ásta Kristín Bene­dikts­dóttir, lektor í íslenskum …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Álfheiðardóttir Sigurðardóttir skrifaði
    Spennandi að fylgjast með framþróun tungumálsins :-)
    0
  • Elín Kona Eddudóttir skrifaði
    Líst vel á amm og amb, takk fyrir góða grein :)
    3
  • Ragnhildur L Guðmundsdóttir skrifaði
    Anmba og lanmba
    3
  • Siggi Rey skrifaði
    Er þetta nú ekki orðið of mikið af því góða! Öfgar af því að hann eða hún er “kynsegin”. Er í lagi að rugla í íslenskunni bara vegna kynsegin fólks.! Hvað er að orðunum amma og afi eða mamma og pabbi o.s.frv. Hvað þá með orðin langamma og langafi? Frændi og frænka? Hafa þá ekki þeir sem flytja til landsins og eru orðnir íslenskir ríkisborgarar sama rétt til að aðlaga íslenskuna að þeirra tungumáli?
    -9
  • Elsa Þorbjörg Árnadóttir skrifaði
    Mér finnst að tvær konur sem giftast, ættu að kalla sig "hjónur" og tveir karlar "hjónar" karl og kona hjón...ss það pirrar mig að einhver geti talið mig samkynhneigða þegar allir geta talið sig vera hjón. Já mér er fullkomin alvara...en þetta mál sem hér um ræðir á þetta fólk að útkjlá sjálft, kemur mér ekki við.
    -4
    • SVS
      Sigurður V. Sigurðsson skrifaði
      Þetta þykir mér alveg óþarfa pirringur hjá þér, því ég get lofað þér því að meirihluti fólks gengur út frá því að allir séu gagnkynhneigðir þar til annað kemur í ljós.

      Þar að auki eru aðeins örfá tilfelli þar sem orðið "hjón" er notað án þess að nöfn eða kyn hjónanna fylgi með, t.d. "Jón og Gunna eru hjón." eða "Ég sá þær hjónin útí búð."

      Það er helst ef þú notar orðalag eins og "Við hjónin fórum norður um helgina" og viðmælandi veit ekkert um makann þinn sem það gæti orðið einhver vafi. Það er þó sáraeinfalt að fyrirbyggja misskilning með því að segja t.d. "Við Beta fórum norður" eða "Ég fór norður með manninum mínum".

      En svo er það hin hliðin: Hverju skiptir það þó einhver ókunnugur haldi að þú sért lesbía þar til annað kemur í ljós? Breytir það einhverju?
      11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár