Næstum annar hver Íslendingur vantreystir Seðlabanka Íslands

Hlutfall þeirra lands­manna sem bera lítið traust til Seðla­bank­ans hefur þre­fald­ast á tveimur árum og van­traust í hans garð hefur ekki mælst meira í yfir ára­tug. Einungis tæpur fjórð­ungur lands­manna treystir bank­anum vel. Sá hópur hefur rúm­lega helm­ing­ast frá 2021.

Næstum annar hver Íslendingur vantreystir Seðlabanka Íslands
Dvínandi vin­sældir Traust til Seðla­banka Íslands tók kipp eftir að Ásgeir Jónsson tók við stöðu seðla­banka­stjóra. Vextir voru lágir og kaup­máttur jókst mikið. Síðustu ár hefur orðið mik­ill við­snún­ingur með við­var­andi hárri verð­bólgu og svim­andi háum stýri­vöxtum sem hafa dregið veru­lega úr kaup­mætti lands­manna. Samhliða hafa vin­sældir bank­ans hríð­fallið. Mynd: Heiða Helgadóttir


Alls bera 47 pró­sent lands­manna lítið traust til Seðla­banka Íslands sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Van­traust á bank­ann hefur ekki mælst svo mikið síðan á árinu 2012, eða fyrir ell­efu árum síðan. Á tveimur árum hefur van­traust á Seðla­bank­ann farið úr því að mæl­ast 16 pró­sent í áður­nefnda tölu, 47 pró­sent. 

Einungis 23 pró­sent lands­manna segj­ast bera mikið traust mikið traust til bank­ans nú en í des­em­ber 2021 sögð­ust 54 pró­sent aðspurðra treysta honum vel. Áratugur er síðan að svo lágt hlut­fall lands­manna svar­aði því til að hann treysti Seðla­bank­anum svo lítið. 

Kjós­endur stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, treysta Seðla­bank­anum mun betur en kjós­endur ann­arra flokka. Á meðal kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna mælist mikið traust á bank­ann á bil­inu 38 til 46 pró­sent en hjá kjós­endum ann­arra flokka er það á bil­inu níu til 27 pró­sent. Mest er van­traustið hjá kjós­endum Fólks flokks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins þar sem 70 til 75 pró­sent treysta Seðla­banka Íslands lítið.

Már Guð­munds­son gegndi stöðu seðla­banka­stjóra í um ára­tug, frá árinu 2009 og fram í ágúst 2019. Ásgeir Jónsson var skip­aður eft­ir­maður hans af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og hefur því setið í stóli seðla­banka­stjóra í rúm­lega þrjú ár, en skip­un­ar­timi hans er til fimm ára.

Davíð, Már og Ásgeir

Þegar Már tók við sem seðla­banka­stjóra var stutt liðið frá banka­hruni og traust almenn­ings á Íslandi gagn­vart helstu stofn­unum sam­fé­lags­ins almennt afar lítið. Þannig var líka með traust gagn­vart Seðla­banka Íslands, en í sept­em­ber 2009 sögð­ust 53 pró­sent lands­manna van­treysta honum og ein­ungis 13 pró­sent að þeir bæru mikið traust til bank­ans. Það var þó mun betri staða en hafði verið í des­em­ber 2009, þegar Davíð Oddsson var aðal­banka­stjóri, for­maður þriggja manna banka­stjórnar. Þá sagð­ist þriðji hver lands­maður að hann bæri lítið traust til Seðla­bank­ans og einn af hverjum tíu að hann treysti bank­anum vel. Lögum var breytt þannig að hægt yrði að koma Davíð úr starfi en hann ákvað að segja af sér áður en það gerð­ist. Norð­mað­ur­inn Svein Harald Øygard sett­ist í stól­inn í nokkra mán­uði á árinu 2009 áður en Már var form­lega skip­aður

Í síð­ustu mæl­ingu Maskínu áður en að Már hætti, sem var fram­kvæmd í apríl 2019, sagð­ist fjórð­ungur treysta bank­anum vel en 37 pró­sent treystu honum litið. Eftir að Ásgeir tók við lag­að­ist staðan hratt og traust til Seðla­banka Íslands fór í met­hæðir. Í des­em­ber 2021 mæld­ist van­traust á hann ein­ungis tólf pró­sent og í sept­em­ber árið eftir sögð­ust 54 pró­sent lands­manna að þeir treystu bank­anum mikið. Á þessum árum voru stýri­vextir í lág­marki, þeir fór lægst í 0,75 pró­sent vorið 2021. Peningar voru ódýr­ari en nokkru sinni fyrr í Íslands­sög­unni og kaup­máttur jókst gríð­ar­lega, meðal ann­ars vegna þessa. Lands­menn færðu sig í stórum stil yfir í óver­tryggð lán meðal ann­ars vegna þess að Ásgeir hvatti til þess opin­ber­lega. Í við­tölum greindi hann frá því að í fyrsta sinn væri það „raun­veru­legur val­kostur fyrir heim­ilin að skipta yfir í nafn­vexti og þannig afnema verð­trygg­ing­una að eigin frum­kvæði af sínum lánum“. Afleið­ingin varð sú að hlut­fall óverð­tryggðra lána fór úr því að vera um 30 pró­sent allra íbúð­ar­lána fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur í að vera yfir helm­ingur allra lána þegar stýri­vextir fóru að hækka á árinu 2021. 

Allt breytt á Íslandi

Síðan hefur orðið algjör kúvend­ing á Íslandi. Verð­bólga hefur verið mikil um langt skeið og mælist í dag 7,9 pró­sent. Til að takast á við þessa stöðu hefur Seðla­banki Íslands ítrekað hækkað stýri­vexti og þeir standa nú í 9,25 pró­sent. Vegna þessa hafa íbúða­lána­vextir á óverð­tryggðum lánum farið úr því að vera á milli fjögur og fimm pró­sent í að vera um og yfir ell­efu pró­sent. Mán­að­ar­leg greiðslu­byrði slíkra lána hefur í mörgum til­vikum tvö­fald­ast. Kaup­máttur launa hefur nú dreg­ist saman fjóra árs­fjórð­unga í röð og vaxta­greiðslur heim­ila á fyrri hluta árs­ins 2023 voru 22,5 millj­örðum krónum hærri en á sama tíma­bili í fyrra.

Heimili lands­ins hafa fyrir vikið flúið í stórum stíl aftur í verð­tryggð lán. Frá byrjun árs 2023 og út sept­em­ber­mánuð tóku heim­ili lands­ins verð­tryggð íbúða­lán hjá stóru bönk­unum þremur, Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka, fyrir sam­tals 100 millj­arða króna umfram það sem þau greiddu slík lán niður. Það er næstum því þre­föld sú upp­hæð sem bankar lands­ins lán­uðu verð­tryggt allt árið í fyrra.

Í sept­em­ber­mán­uði einum saman var umfang verð­tryggðrar lán­töku 25,6 millj­arðar króna sem er Íslands­met í töku verð­tryggðra íbúða­lána á einum mán­uði. Fyrra met var sett í ágúst þegar heim­ilin tóku slík lán upp á 17,7 millj­arða króna. Munurinn á milli ágúst og sept­em­ber var því um 45 pró­sent. 

Samhliða þessu hefur traust á Seðla­banka Íslands hríð­fallið og van­traust á bank­ann stór­auk­ist. Á tveimur árum hefur van­traustið næstum þre­fald­ast úr 16 pró­sent í 47 pró­sent.

Könnunin fór fram dag­ana 12. til 18. októ­ber 2023 og voru svar­endur 1.259 tals­ins.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár