Þurfi faglega en ekki pólitíska umræðu um fjölmiðlastyrki

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands segir „ósk­andi að stjórn­mála­menn gætu sam­mælst um að taka umræð­una um fjöl­miðla og blaða­mennsku upp úr skot­gröfum póli­tískra deilna.“ Henni finnst athuga­vert að Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, hafi í ræðu um fjár­mál borg­ar­innar tengt saman fjöl­miðla­styrki frá rík­inu og svo efn­is­tök ein­stakra fjöl­miðla.

Sigríður Dögg, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir ríkisstyrki mikilvæga fyrir fjölmiðla sem hafa tapað stórum hluta auglýsingatekna til erlendra veitna.
Sigríður Dögg, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir rík­is­styrki mik­il­væga fyrir fjöl­miðla sem hafa tapað stórum hluta aug­lýs­inga­tekna til erlendra veitna. Mynd: Press.is

„Það er margt sem mætti betur fara í reglum um styrki til einka­rek­inna miðla, en sú umræða þarf að fara fram á fag­legum grund­velli. Alls ekki póli­tískum,“ segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, í færslu á Facebook. 

Þar gerir Sigríður Dögg að umtals­efni ræðu Dóru Bjartar Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Pírata, á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær þar sem Dóra Björt seg­ist telja það eðli­lega for­sendu þess að fá fjöl­miðla­styrk frá rík­inu að fjöl­mið­ill sýni af sér „hlut­leysi og styðj[i] við lýð­ræð­is­hlut­verk fjöl­miðla.“

Borgarfulltrúi gagnrýndi efnistök

Ræðuna flutti Dóra Björt í umræðum um fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir kom­andi ár og vakti tölu­verða athygli að hún skyldi þar ræða um fjöl­miðla­styrki. Hún gagn­rýndi þar styrk­þegar séu jafn­vel fjöl­miðlar „sem fylgja aug­ljósri póli­tískri stefnu sem snýr að því að sverta borg­ina yfir í hendur Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði Dóra Björt. 

Hún hélt síðan áfram: „Morg­un­blaðið dirfð­ist lengi vel til dæmis til þess að vera með sér­stakan und­ir­glugga á for­síðu mbl.is um fjár­hags­lega erf­ið­leika Reykja­víkur. Það er varla hægt að hugsa sér grímu­lausa póli­tíska stöðu­töku. Finnst okkur þetta bara í lagi?“

Á undir högg að sækja

Sigríður Dögg seg­ist ekki gera athuga­semdir við að reglur um úthlutun fjöl­miðla­styrkja séu gagn­rýndar.. „Hverjum sem er er sömu­leiðis frjálst að finna að efn­is­tökum eða nálgun ein­staka fjöl­miðla. Mér finnst hins vegar athug­un­ar­vert að tengja þetta tvennt saman og tel að slíkt geti bein­línis grafið undan fjöl­miðla­frelsi. Það er algjör for­senda opin­berra styrkja til fjöl­miðla að þeir séu án allra póli­tískra afskipta og að reglur um þá séu gagn­sæjar og sann­gjarnar svo þær upp­fylli mark­mið þeirra, sem er að efla frjálsa fjöl­miðla í þágu lýð­ræðis,“ segir hún. 

Sigríður Dögg bendir á að það sé óum­deilt að staða íslenskra fjöl­miðla hafi sjaldan verið verri og að fag­leg blaða­mennska eigi undir högg að sækja. Rekstur fjöl­miðla sé ósjálf­bær á meðan tæknirisar á borð við Google og Facebook sópi til sín þorra aug­lýs­inga­tekna og ekki hafi tek­ist að bæta upp það tap með auknum áskriftum. 

Upp út skotgröfunum

„Styrkir til einka­rek­inna miðla eru mik­il­væg aðgerð til að bæta upp þann mark­aðs­brest sem orðið hefur því rekstur fjöl­miðla er mik­il­vægur grund­völlur fyrir fag­lega blaða­mennsku sem er mik­il­vægur grund­völlur lýð­ræðis,“ segir hún og bætir við: „Það væri ósk­andi að stjórn­mála­menn gætu sam­mælst um að taka umræð­una um fjöl­miðla og blaða­mennsku upp úr skot­gröfum póli­tískra deilna og myndu vinna í sam­ein­ingu að efl­ingu fag­legrar blaða­mennsku í þágu almenn­ings og lýð­ræð­is­ins.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Sambærilegt fyrirkomulag og t.d. listamannalaun/rithöfundalaun = sjálfstætt starfandi blaðamönnum er greitt BEINT fyrir vinnu sína (ríkisstyrk) og þyrftu á móti að skila tiltekinni vinnu á tilskyldum tíma, er þetta eitthvað til umhugsunar ? Áskriftar-fyrirkomulag er farsælasta leiðin, þannig verða fjölmiðlar ekki háðir stjórnvöldum/auglýsingum og myndu ávallt starfa í þágu almannahagsmuna.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þeir koma víða við, velunnarar Mogga litla

    Sigríður Dögg sem skrifar hér, er hagsmunagæsluaðili fyrir hagsmuni blaða- og fréttamanna. Er vill gjarnan að almenningur styðji útgáfu á fjölmiðlum með miklum útlátum úr ríkissjóði. En slíkir styrkir hækka auðvitað laun sumra blaðamannanna á blöðunum.

    Formaður félags blaða- og frétta er auðvitað ekki mark-tækur í þessari umræðu vegna hagsmunatengsla sinna.

    Það er hressilega ofmælt að styrkir til fjölmiðla sem hafa þann eina tilgang að standa vörð um ákveðna hagsmuni styrki lýðræðið í landinu.

    Það er áberandi að tveir helstu fjölmiðlar í landinu er báðir eru hluti af hagsmunagæslu ákveðinna hagsmuna aðila í atvinnurekstri ásamt slíkum viðhorfum fyrirtækjanna í landinu fá langmestu styrkina.

    Það vill svo til, að líklega er mikill meirihluti landsmanna er sammála þessum borgarfulltrúa um að ekki eigi að að styrkja flokkspólitísk áróðursblöð.

    Er njóta reyndar einnig styrkja frá fyrirtækjunum á einn eða annan hátt og njóta þannig stuðning frá starfsfólki þessara fyrirtækja.

    Í morgunþætti útvarpsins í morgunn fletti útvarps-maðurinn Mogga litla í sífellu og las úr sneplinum eitt og annað.

    Það eru auðvitað aðrir fjölmiðlar í landinu sem eðlilegt hefði verið að fengju sömu auglýsingaþjónustu og Moggi litli
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Morgunblaðið hefur ekkert að með ,,styrki" að gera , því að blaðið er bara áróðurspési fyrir pólitíska eigendur. Sá sem segir eitthvað annað er hræddur við eigendur. Við sem höfum lifað við Sjálfstæðisflokkinn og allar hans gjörðir hefur sýnt okkur fyrir hvað hann stendur. Skoðið hvaða hug þingmenn og eigendur bera til íslensks samfélags sem skrifað er í Morgunblaðið ?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár