Ástandið í Palestínu ekki rætt á ríkisstjórnarfundi

Ástandið fyrir botni Miðjarðar­hafs var ekki rætt á ríkis­stjórnar­fundi í morgun segir Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra. Ísland hefur fordæmt árásir Hamas á Ísrael en ekki árásir Ísrelshers á Gaza. Katrín segir ríkis­stjórnina fordæma brot á alþjóða­lögum og mikilvægt sé að möguleg brot séu rannsökuð.

Um þrjúhundruð manns voru saman komin fyrir framan ráðherra­bústaðinn klukkan 9 í morgun. Fólkið mótmælti árásum Ísraels­hers á almenna borgara í Palestínu, krafðist meðal annars vopnahlés og frelsun Palestínu.

Ríkis­stjórnar­fundur hófst um hálftíma eftir að mótmælin hófust og stóð í tvær klukku­stundir. Mótmælendur voru farnir þegar fundi ráðherranna lauk. 

Lítill tími eftir langan fund

„Bara tvær mínútur fyrir hvert ykkar,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra við fjölmiðla­fólk sem beið í anddyri ráðherrabústaðsins. Og bætti við að hún væri að verða of sein á annan fund. 

Spurð hvort utan­ríkisstefna Íslands hvað varðar átökin fyrir botni Miðjarðar­hafs hefði verið rædd á ríkis­stjórnar­fundinum sagði Katrín svo ekki hafa verið. 

„Nei ekki núna en á síðasta fundi,“ sagði hún. 

Katrín sagði að Ísland hafi talað mjög skýrt fyrir því undan­farna daga að hvatt verði til vopnahlés, að átökin verði stöðvuð. Það hafi til dæmis verið gert …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár