„Ef ég heyrði þig rétt, sagðir þú árás?“

Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, segir það sem gerð­ist í Jabalia-flótta­manna­búð­unum á Gaza „skelfi­legt“ en að það hafi ekki verið árás heldur hafi Ísraelar verið að verja sig gegn hryðju­verka­mönnum. Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna telur loft­árás Ísraela á búð­irnar, þar sem um 200 manns féllu, geta verið stríðs­glæp.

Orðaskak
Orðaskak Bjarni Bene­dikts­son vill ekki nota orðið árás um árás Ísraela á flótta­manna­búðir á Gaza. „Þú getur notað hvaða orð sem þú vilt, herra,“ svar­aði frétta­maður NRK. Mynd: Skjáskot

„Ef ég heyrði þig rétt, sagðir þú árás á flótta­manna­búð­irnar? Það heyrð­ist mér.“

Þannig brást utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Bjarni Bene­dikts­son, við spurn­ingu frétta­manns norska rík­is­út­varps­ins á blaða­manna­fundi utan­rík­is­ráð­herra á Norð­ur­landa­þingi í Ósló í gær. Frétta­mað­ur­inn hafði spurt ráð­herrana hvaða orð þeir myndu nota um árás Ísraela á Jabalia-flótta­manna­búð­irnar.

Það kom hik á frétta­mann­inn við svar Bjarna en svo sagði hann: „Þú getur notað hvaða orð sem þú vilt, herra.“

Bjarni greip fram í og hélt áfram: „Ef þú ert að biðja mig að bregð­ast við árás á flótta­manna­búðir, þá ertu að segja að það hafi verið árás á flótta­manna­búðir.“

„Ég skil,“ sagði frétta­mað­ur­inn, „leyfðu mér að umorða þetta: Hvaða orð myndir þú nota yfir það sem Ísraelar hafa gert í tengslum við Jabalia-flótta­manna­búð­irnar?“

Gegn alþjóðalögum

„Sko, það fer eftir því hvernig þú nálg­ast þetta,“ svar­aði ráð­herr­ann íslenski þá. „Eins og ég sé þetta er í gangi stríð gegn hryðju­verka­mönnum. Allt það sem ger­ist, eins og við höfum séð í fjöl­miðlum í flótta­manna­búðum, er algjör­lega skelfi­legt. Eitthvað sem ætti alltaf að forð­ast. Er gegn alþjóða­lögum. En þú getur ekki slitið þetta úr sam­hengi. Það eru hryðju­verka­menn núna að berj­ast gegn Ísraelum, þeir eru enn að því. Og það er ákveðið við­bragð við því. Við höfum séð mörg dæmi þess að hryðju­verka­menn noti almenna borg­ara sem skildi. Og það er það sem gerir þetta gríð­ar­lega flókið. Þannig að það sem við erum að sjá í fjöl­miðlum er skelfi­legt og hryggir okkur. Þetta er ástæðan fyrir því að við köllum eftir mann­úð­ar­vopna­hléi.“

Setið hjá um mannúðarhlé

Fasta­nefnd Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sat á föstu­dag hjá við afgreiðslu alls­herj­ar­þings­ins á ályktun þess efnis að mann­úð­ar­vopna­hléi yrði komið á taf­ar­laust. Tillagan var lögð fram af Jórdönum. Kanada lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu um að árás Hamas-sam­tak­anna á ísra­elska borg­ara yrði for­dæmd sam­tímis. Á hana féllst meiri­hluti aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna ekki. Utan­rík­is­ráðu­neytið seg­ist hafa stutt til­lögu Kanada og þar sem ekki hafi náðst sam­staða um hana hafi Ísland setið hjá.

Ísra­elski her­inn gerði loft­árásir á flótta­manna­búðir á Gaza tvo daga í röð og er talið að um 200 manns hafi látið lífið við árás­ina. Ísraelsk stjórn­völd segja árás­ina hafa verið gerða til að fella hátt­setta Hamas-liða og full­yrða að það ætl­un­ar­verk hafi náðst. „Það er eng­inn sig­ur­veg­ari í stríði þar sem þús­undir barna eru drepin,“ sagði nefnd um rétt­indi barna á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í yfir­lýs­ingu í gær.

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Ef ég heyrði þig rétt, sagðir þú árás á flóttamannabúðirnar?"
    Fréttamaðurinn átti að kalla þetta sínu rétta nafni, slátrun.
    Netanjahu er að komast í hóp mestu íllmenna sögunnar.
    1
  • Andrés Arnalds skrifaði
    Skömm er að!
    1
  • Thorey Thorkelsdottir skrifaði
    https://www.dagbladet.no/nyheter/sa-du-angrep/80443330
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Hann er bara einsog alltaf i Vafningum , Falson og öðru smastussi her og þar.

    Þinn timi er löngu kominn B.B. lattu þig hverfa i þinni luxus ibuð sem þu "gleymdir"
    að telja fram og skilaðu til baka þessum milljörðum sem voru afskrifaðar a sinum tima.
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Skelfilegt. Á hvaða stað er þessi ráðherra?
    3
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Það þarf að losna við BB. Hann er þjóðinni til skammar.
    7
  • Kári Jónsson skrifaði
    Íslensk stjórnvöld hafa tapað öllum áttum og þar með mennsku sinni í stuðningi við stríðsglæpamanninn og forsætis í Ísrael, sem gengur fram af miklu offorsi og GRIMMD á Casa þessa daganna, sem og undangengin ár og áratugi og alþjóðasamfélagið hefur horft á með blinda auganu, sannarlega er það hryðjuverk þegar Hamas ræðst á almenna borgara í Ísrael. Ísland verður að krefjast vopnahlés í öllum stríðsátökum og tala fyrir FRIÐI stanslaust og ef það hefur farið framhjá Bjarna Ben utanríkis, þá hafa íslensk stjórnvöld samþykkt sjálfstæði Palenstínu rétt einsog sjálfstæði Ísraels. það er skylda stjórnvalda að hér fari saman hljóð og mynd.
    9
  • Hefur maðurinn rétt til að tala svona fyrir hönd okkar Íslendinga?
    8
  • Halldóra Hafdís Arnardóttir skrifaði
    Ógeðfelldur málaflutningur hjá utanríkisráðherra 🤮
    9
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Það er gott að vita að utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins er með morðum á börnum á Gasa. En ég hélt að utanríkisráðherra væri í ríkisstjórn VG liða, og þá eru VG liðar meðmæltir ?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár