Ríkjum heims sé skylt að koma í veg fyrir þjóðarmorð

Tíu þing­menn þeirra á meðal Jódís Skúla­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir frá Vinstri grænum segja að rík­is­stjórn Íslands hafi látið hjá líða að for­dæma árásir Ísra­els­hers á Gaza. Þau vilja að utan­rík­is­ráð­herra geri það og kalli einnig eftir taf­ar­lausu vopna­hléi. Mann­rétt­inda­sér­fræð­ingar segja þjóð­ar­morð yfir­vof­andi á Gaza. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata segir ríkjum heims skylt að koma í veg fyrir þjóð­ar­morð.

Talið að um 1000 börn séu grafin undir húsarústum á Gaza
Talið að um 1000 börn séu grafin undir húsa­rústum á Gaza Rústir Al Bureij flótta­manna­búð­anna í Gazaborg fimmtu­dag­inn 2. nóv­em­ber. Mynd: Ashraf Amra/AFP

„Rík­is­stjórnin hefur nú þegar, rétti­lega, for­dæmt árásir Hamas sam­tak­anna á ísra­elska borg­ara en látið hjá líða að for­dæma við­brögð ísra­el­skra stjórn­valda sem hafa farið fram úr öllu hófi og brjóta ber­sýni­lega gegn alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum og öðrum alþjóða­lögum. Þá sat Ísland hjá í atkvæða­greiðslu alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna um ákall um taf­ar­laust vopna­hlé á Gaza á neyð­ar­fundi þings­ins þann 26. októ­ber síð­ast­lið­inn.“

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að for­dæma aðgerðir Ísra­els­hers í Palest­ínu og kalla eftir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum. Tíu þing­menn eru skrif­aðir fyrir til­lög­unni sem þing­flokkur Pírata ætlar að leggja fram. Þar segir meðal ann­ars: „Alþingi ályktar að fela utan­rík­is­ráð­herra að for­dæma árásir Ísra­els­hers á óbreytta borg­ara, sjúkra­hús, skóla og aðra borg­ara­lega inn­viði í Palest­ínu sem hófust 7. októ­ber 2023 í kjöl­far árása Hamas-sam­tak­anna á ísra­elska borg­ara. Alþingi ályktar einnig að fela utan­rík­is­ráð­herra að kalla eftir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum, til þess að …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson skrifaði
    Greinilegt er, að margir íslenskir þingmenn þekkja enn ekki skilgreininguna á þjóðarmorði. Má ég vinsamlegast leggja til að menn afli sér nægilegrar menntunar til að setjast á þjóðþing landsins. Hamas, hryðjuverkasamtök, sem margir Íslendingar styðja, hafa hvatt til þjóðarmorða á Ísraelsmönnum og gyðingum almennt; Of margir Íslendingar vilja helst leika sér við slíkt lið.
    -4
    • Ingólfur Gíslason skrifaði
      Þjóðarmorð: vísvitandi aðgerðir til að útrýma tiltekinni þjóð, þjóðarbroti, kynþætti eða trúarhópi að hluta eða í heild. Klárlega það sem Ísrael er að gera núna gagnvart Palestínumönnum og hefur verið að gera síðan að minnsta kosti 1948. Ég man til dæmis þegar ég kom til Ísrael 1995, að Ísraelsbúarnir vildu aldrei tala um Palestínumenn, héldu því fram að þeir væru „bara arabar“ og ættu helst að hypja sig yfir til Jórdaníu til hinna arabanna. Þjóðarmorð felst nefnilega ekki eingöngu í bókstaflegum drápum á fólki (þó það fylgi oft, eins og við horfum upp á núna). Það felst líka í því að reyna að eyða sjálfsmynd fólks, minningum, örnefnum, öllu sem gerir hópinn að „þjóð“.
      6
    • Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson skrifaði
      Nei Ingólfur, þjóð, sem hefur farið í gegnum þjóðarmorð (Gyðingar/Ísraelsmenn), sem fær að vita að nágrannar henni hafi í hyggju að útrýma henni, opnar ekki spítala sína fyrir þjóð sem ætlar sér að útrýma henni. Þú hefur ekki lesið alla greinargerð SÞ, eða kannski þarftu ný gleraugu. Nú þegar vígamenn (Hamas fara um og myrða fólk eru við hins vegar komin yfir í skilgreininguna "útrýming þjóðar að hluta til". Svo stendur eftir að Palestína hefur aldrei verið til sem þjóðríki og þeir sem kalla sig Palestínumenn eru mjög sundurleitur hópur, sumir hafa búið lengi, aðrir skemur við botn Miðjarðarhafs. Sumir þeirra eru reyndar komnir af gyðingum sem neyddir voru undir Íslam, t.d. á Gaza, það var líka þjóðarmorð, en framið fyrir tíma þar sem slíkur ósómi á ekki að eiga sér stað. Margir Íslendingar styðja samtök sem hafa útrýmingu Ísraelsríkis og morð á öllum gyðingum í stefnuskrá sinni. Margir Íslendingar eru því meðsekir í tilraunum til þjóðarmorðs á gyðingum. En vitaskuld geta menn haft aðrar skoðanir, sér í lagi ef þeir hata gyðinga nægilega mikið. Margir slíkir einstaklingar búa á Íslandi. Þeim er einnig hægt að stefna fyrir hvatningar til Þjóðarmorða á gyðingum, t.d. þeim sem styðja Hamas.
      -2
    • Þórhildur Ævarsdóttir skrifaði
      Sæll Vilhjálmur Örn. Ég hef sannarlega aflað mér menntunar á sviði þjóðarréttar og sérhæfði mig raunar í alþjóðlegum refsirétti, mannúðarrétti öðru nafni og er með meistaragráðu í þeim fræðum. Mér er þar af leiðandi mjög kunnugt um skilgreininguna á þjóðarmorði. Vill þrátt fyrir það benda þér á að engrar menntunar er krafist til þess að setjast á þjóðþing landsins enda á Alþingi með réttu að innihalda þversnið þjóðarinnar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár