Stefán ætlar að hætta sem útvarpsstjóri og „gera eitthvað allt annað“

Stefán Eiríks­son ætlar ekki að sækj­ast eftir því að gegna starfi útvarps­stjóra eftir að skip­un­ar­tíma hans lýkur 1. mars 2025. „Ég hef bara hugsað um að hætta og fara að gera eitt­hvað allt annað.“

Stefán ætlar að hætta sem útvarpsstjóri og „gera eitthvað allt annað“
Útvarps­stjóri í fimm ár Stefán Eiríks­son ætlar ekki að sækj­ast eftir að halda áfram sem útvarps­stjóri þegar skip­un­ar­tíma hans lýkur í mars 2025. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri ætlar ekki að sækj­ast eftir að gegna starfi útvarps­stjóra þegar skip­un­ar­tíma hans lýkur eftir eitt og hálft ár. Hann greindi frá þessu í við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. „Nóttin er ung, maður veit aldrei hvað ger­ist þegar ég hætti í þessu starfi. Ég hef bara hugsað um að hætta og fara að gera eitt­hvað allt annað.“ 

Skip­un­ar­tími Stefáns rennur út 1. mars 2025 en hann hefur ekki rætt það við stjórn RÚV hvort hann haldi áfram en sjálfur hyggst hann ekki gera það. 

„Ég hef bara hugsað þetta sem fimm ára verk­efni. Þannig hef ég nálg­ast öll mín verk­efni. Ég hef verið um það bil fimm til tíu ár á hverjum stað. Mér finnst það hæfi­legt og eðli­legt fyrir stjórn­anda, bæði fyrir við­kom­andi sjálfan og ekki síður fyrir við­kom­andi stofnun eða rekstur,“ sagði Stefán í Bítinu.

Stefán er lög­fræð­ingur og var borg­ar­rit­ari áður en hann tók við stöðu útvarps­stjóra. Þar áður var hann lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stefán er ell­efti karl­inn sem gegnir starfi útvarps­stjóra, af ell­efu sem gegnt hafa starf­inu. Hann tók við af Magnúsi Geir Þórð­ar­syni sem var skip­aður Þjóð­leik­hús­stjóri 1. nóv­em­ber 2019. 

Alls sótti 41 um stöðu útvarps­stjóra. Að lokum stóð valið á milli Stefáns og Kol­brúnar Hall­dórs­dóttur, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra. Kolbrún taldi sig beitta órétti og hennar per­sónu­lega mat var að minna hæfur karl­maður hafi verið tek­inn fram yfir hæf­ari konu. Kolbrún óskaði eftir því við Rík­is­út­varpið að fá rök­stuðn­ing fyrir ráðn­ingu Stefáns fram yfir hana en var hafnað. Rík­is­út­varpið birti hins vegar 14. febr­úar 2020 nið­ur­stöðu ráðn­ing­ar­ferl­is­ins og þar með rök­stuðn­ing fyrir ráðn­ingu Stefáns. Hins vegar var Kolbrúnu ekki gert við­vart um birt­ing­una, eða henni sendur umræddur rök­stuðn­ingur, heldur var hann ein­ungis birtur á heima­síðu RÚV. 

„Ég hef áhuga á ýmsu, mér finnst gaman að fara í leik­hús, ég hef gaman að ljóðum, ég er mik­ill áhuga­maður um gamla kirkju­garð­inn við Suð­ur­götu,“ segir Stefán, aðspurður um hvernig hann ver frí­tíma sínum, en ekki liggur fyrir hvað hann hyggst gera þegar starfi hans sem útvarps­stjóra lýkur. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár