Kristnir, múslimar og gyðingar sameinuðust í friði á Bessastöðum

Full­trúar 18 trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga þáðu boð for­seta Íslands á Bessa­staði á dög­unum þar sem rætt var mik­il­vægi þess að tala fyrir friði og sam­lyndi milli ólíkra hópa. Séra Jakob Rolland segir Ísland í sér­stöðu þegar kemur að öryggi borg­ar­anna og sam­vinnu trú­ar­bragða.

Friður og umburðarlyndi, þvert á ólíka trúarhópa, var til umræðu á fundinum sem forsetinn boðaði til á Bessastöðu fyrir helgi.
Friður og umburð­ar­lyndi, þvert á ólíka trú­ar­hópa, var til umræðu á fund­inum sem for­set­inn boð­aði til á Bessa­stöðu fyrir helgi. Mynd: forseti.is

„For­set­inn hafði sam­band við okkur því hann er með­vit­aður um þær hættur sem steðja að vegna blóð­ugra átaka fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs, líka í Úkraínu og reyndar á fleiri stöðum í heim­inum. Hann vildi ræða við okkur um mik­il­vægi þess að trú­fé­lög leggi sitt af mörkum til að reyna að stilla til friðar, forð­ast átök og að hér á landi skuli áfram ríkja and­rúms­loft sam­lyndis og umburð­ar­lyndis,“ segir séra Jakob Rolland hjá kaþ­ólsku kirkj­unni en hann er tals­maður Sam­ráðs­vett­vangs trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga á Íslandi.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, boð­aði full­trúa sam­ráðs­vett­vangs­ins á fund sinn á Bessa­stöðum fyrir helgi.

Full­trúar 18 trúar- og lífs­skoð­un­ar­hópa komu saman á Bessa­stöðu til að ræða um frið.

„Ég vildi hvetja full­trúa trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga til að leggja áherslu á það í öllum sínum boð­skap að tala máli mann­úðar og mildi, víð­sýni og umburð­ar­lyndis. …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    zæónistinn sem boðar til fundar er vandamálið . . . hinir hafa búið saman um allan heim án vandræða . . .
    -7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár