Vísitala neysluverðs heldur áfram að hækka en tólf mánaða verðbólga lækkaði lítillega

Matur, drykkja­vara, veit­ing­ar­staðir og hús­næð­is­kostn­aður eru allt und­ir­liðir sem hafa hækkað mikið síð­ast­liðið ár og vigta þungt í þeirri stöðu að árs­verð­bólga mælist enn 7,9 pró­sent þrátt fyrir að stýri­vextir Seðla­bank­ans séu 9,25 pró­sent.

Vísitala neysluverðs heldur áfram að hækka en tólf mánaða verðbólga lækkaði lítillega
Dýrtíð Verðlag hefur hækkað veru­lega síð­ustu mán­uði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði um 0,6 pró­sent í októ­ber. Þar mun­aði mestu um að búseta í eigin hús­næði hækk­aði um tvö pró­sent milli mán­aða, verð á mat­vöru um eitt pró­sent og verð á tóm­stundum og menn­ingu hækk­aði sömu­leiðis um eitt pró­sent. 

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu íslands.

Tólf mán­aða verð­bólga lækkar lít­il­lega, fer úr átta pró­sent í 7,9 pró­sent. Áfram sem áður er sá und­ir­liður sem hækkað hefur mest síð­ast­liðið ár matur og drykkj­ar­vara, en hann hefur hækkað um 11,7 pró­sent. Hús­næð­is­kostn­aður, ásamt hita og raf­magni, hefur hækkað um 9,6 pró­sent og verð fyrir gist­ingu á hót­elum og að borða á veit­inga­stöðum hefur hækkað um 10,3 pró­sent. 

Þrátt fyrir að stýri­vextir hafi verið hækk­aðir upp í 9,25 pró­sent, til þess að bremsa af hag­kerfið með því að gera alla fjár­mögnun dýr­ari, þá hefur verð­bólgan ekki lækkað meira en þetta. Hún náði hápunkti í febr­úar þegar tólf mán­aða verð­bólga mæld­ist 10,2 pró­sent en hefur lægst mælst á þessu ári 7,6 pró­sent í júlí. 

Met sett í verðtryggðum útlánum

Hækkandi stýri­vextir hafa haft mikil áhrif á greiðslu­byrði heim­ila og fyr­ir­tækja og hratt hefur dregið úr lán­tökum þeirra. Hærri greiðslu­byrði heim­ila, sem hefur í mörgum til­vikum allt að tvö­fald­ast hjá þeim sem eru með óverð­tryggð lán, hefur leitt til þess að sífellt fleiri færa sig úr því lána­formi og yfir í verð­tryggð íbúða­lán. Þau hafa þann kost að greiðslu­byrðin er lægri en þann van­kant að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól lána í mik­illi verð­bólgu. 

Á því vaxta­hækk­un­ar­tíma­bili sem hófst 2021 og stóð óslitið fram að síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi Seðla­bank­ans voru raun­vextir óverð­tryggðra lán­tak­enda lengi vel nei­kvæðir. Það þýðir að vext­irnir sem þeir borg­uðu voru lægri en verð­bólgan. Sömu sögu er að segja að inn­láns­vöxtum. Vext­irnir sem fólk fékk fyrir að geyma pen­ing­anna sína í banka voru almennt lægri en verð­bólgan og því rýrn­aði raun­virði sparn­að­ar­ins. 

Á síð­ustu mán­uðum hefur það snú­ist við og raun­vextir eru nú ekki lengur nei­kvæðir. 

Sú staða, ásamt því að mörg fast­vaxta­lán á óverð­tryggðum vöxtum hafa verið að losna, hefur stór­aukið flutn­ing heim­ila yfir í verð­tryggð lán. 

Í síð­asta mán­uði einum saman var umfang verð­tryggðrar lán­töku 25,6 millj­arðar króna sem er Íslands­met í töku verð­tryggðra íbúða­lána á einum mán­uði. Fyrra met var sett í ágúst þegar heim­ilin tóku slík lán upp á 17,7 millj­arða króna. Munurinn á milli ágúst og sept­em­ber var því um 45 pró­sent.  

Mun halda áfram

Búast má við að til­færslan yfir í verð­tryggð lán muni halda áfram næstu ár að óbreyttu. Allt í allt eru um 706 millj­arðar króna af óverð­tryggðum lánum á föstum vöxtum með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði. Fram til loka árs 2025 munu 569 millj­arðar króna, 80 pró­sent allra þeirra lána, losna og lán­tak­arnir að óbreyttu færðir úr mjög lágum vöxtum yfir í mjög háa vexti. Vegnir með­al­vextir lána sem losna á næsta ári eru 4,5 pró­sent en lán sem koma til end­ur­skoð­unar árið 2025 bera 5,1 pró­sent vegna með­al­vexti. Í dag eru lægstu breyti­legu óverð­tryggu vextir hjá bönk­unum í kringum ell­efu pró­sent. 

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar segir að heim­ili með háa greiðslu­byrði séu þegar byrjuð, og eigi vænt­an­lega eftir í miklum mæli, að færa sig yfir í verð­tryggð lán þegar til fyrr­nefndrar end­ur­skoð­unar kemur. Vilji þeir ekki færa sig yfir í slík lán að öllu leyti eða hluta stendur einnig til boða að lengja í lánum, greiða sparnað inn á lán eða semja um að færa hluta af vöxtum á höf­uð­stól.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár