Samfylkingin stærri en Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn samanlagt

Vinstri græn eru sá flokkur á þingi sem mælist með minnst fylgi. Einungis einn af hverjum þremur kjós­endum myndi kjósa stjórn­ar­flokk­anna. Mið­flokk­ur­inn hefur bætt næst mestu við sig á eftir Sam­fylk­ingu sem hefur næstum þre­faldað fylgi sitt á kjör­tíma­bil­inu.

Samfylkingin stærri en Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn samanlagt
Fallandi fylgi Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar og Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar mæl­ast nú sam­an­lagt með 27,5 pró­sent fylgi. Mynd: Golli

Einn af hverjum þremur lands­mönnum myndu kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þrjá ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Sam­an­lagt hafa þeir tapað 21 pró­sentu­stigi af fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

Fylgi Vinstri grænna er nú komið fyrir neðan sex pró­sent í fyrsta sinn í mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins, en það mælist 5,9 pró­sent, sem er rúm­lega helm­ingi minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Slík nið­ur­staða myndi þýða að flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra væri minnstur þeirra átta flokka sem eiga full­trúa á þingi. Vikmörk í könn­un­inni eru 1,1 pró­sent. Það þýðir að ef fylgi Vinstri grænna yrði við neðri vik­mörk myndi flokk­ur­inn senni­lega detta út af Alþingi. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er líka að mæl­ast með sögu­lega lágt fylgi, eða 17,7 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur aldrei fengið minna en 23,7 pró­sent fylgi í kosn­ingum í sögu sinni og því væri um sögu­legt afhroð að ræða ef þetta yrði nið­ur­staðan. Hann hefur tapað 6,7 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum sem fram fóru haustið 2021.  

Mestu fylgi hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 17,3 pró­sent atkvæða í kosn­inga­sigrinum fyrir rúmum tveimur árum, tapað það sem af er kjör­tíma­bili. Hann mælist nú með 9,8 pró­sent fylgi, sem er 7,5 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ingum. Stjórn­ar­flokk­arnir gætu ekki reiknað með að fá meira en 21 eða 22 þing­menn að óbreyttu, en þeir eru með 38 í dag. 

Allir nema einn í andstöðu bætt við sig

Sam­fylk­ingin mælist nú með meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur sam­an­lagt, eða 27,8 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur næstum þre­faldað fylgi sitt í könn­unum Maskínu frá kosn­ing­unum haustið 2021. 

Hann er þó ekki eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur bætt við sig fylgi, þótt fylg­is­aukn­ing Sam­fylk­ing­ar­innar á kjör­tíma­bil­inu, alls 17,9 pró­sentu­stig, sé sér á báti. Næst mestu hefur Mið­flokk­ur­inn bætt við sig, eða 2,8 pró­sentu­stigum, sem skilar flokki Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar 8,2 pró­sent fylgi. 

Píratar mæl­ast nú með 10,8 pró­sent stuðn­ing, eða 2,2 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu síð­ast, og Viðreisn hefur bætt við sig einu pró­sentu­stigi og mæl­ast með 9,3 pró­sent fylgi. 

Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu er Flokkur fólks­ins, sem mælist nú með 6,1 pró­sent stuðn­ing, eða 1,7 pró­sentu­stigi minni en hann fékk í kosn­ing­unum 2021. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands virð­ist fastur við kjör­fylgi sitt og mælist með 4,3 pró­sent fylgi, sem myndi ekki duga honum inn á þing. 

Nokkrir kostir í stöðunni

Ef nýjasta könnun Maskínu yrði nið­ur­staða kosn­inga myndi ekki vera hægt að mynda tveggja flokka stjórn með meiri­hluta atkvæða á bak­við sig. Þá liggur fyrir að ómögu­legt væri að mynda þriggja flokka stjórn án aðkomu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Ef gengið er út frá því að nær úti­lokað er að Sam­fylk­ingin myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki miðað við yfir­lýs­ingar for­ystu­manna hennar, þá gæti senni­lega myndað þriggja flokka stjórn með minni­hluta atkvæða á bak­við sig í ýmsum mynstrum. Mögulegt væri að gera slíkt með tveimur af þremur eft­ir­far­andi flokkum: Pírötum, Framsókn eða Viðreisn, sem allir mæl­ast með svipað fylgi. Slík stjórn væri þó senni­lega með minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi. Því er ekki úti­lokað að sögu­lega afar óvenju­leg fjög­urra flokka stjórn sé í kort­unum eftir næstu kosn­ingar að óbreyttu.  

Könnunin fór fram dag­anna 12. til 18. októ­ber ann­ars vegar og 20. til 24. októ­ber hins vegar. Alls tók 1.935 svar­endur afstöðu til flokks.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár