Heimilin hafa tekið verðtryggð lán upp á 100 milljarða frá áramótum

Enn eitt metið var sett í töku verð­tryggðra lána í síð­asta mán­uði. Heimilin eru að flýja óverð­tryggðu íbúða­lánin í stærri stíl en nokkru sinni áður, þar sem greiðslu­byrði þeirra hefur í mörgum til­vikum tvö­fald­ast.

Heimilin hafa tekið verðtryggð lán upp á 100 milljarða frá áramótum
Íbúða­verð gæti hækkað Seðla­bank­anum hefur tek­ist vel til við að kæla íbúða­mark­að­inn og verð hefur verið að lækka. Miklar vaxta­hækk­anir hafa hins vegar líka gert það að verkum að mik­ill sam­dráttur hefur orðið á fjölda nýrra fram­kvæmda. Það gæti búið til stöðu þar sem eft­ir­spurn verður mun meiri en fram­boð á næsta ári og stuðlað að verð­hækk­unum að nýju. Mynd: Shutterstock

Frá byrjun árs 2023 og út sept­em­ber­mánuð tóku heim­ili lands­ins verð­tryggð íbúða­lán hjá stóru bönk­unum þremur, Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka, fyrir sam­tals 100 millj­arða króna umfram það sem þau greiddu slík lán niður. Það er næstum því þre­föld sú upp­hæð sem bankar lands­ins lán­uðu verð­tryggt allt árið í fyrra.

Í síð­asta mán­uði einum saman var umfang verð­tryggðrar lán­töku 25,6 millj­arðar króna sem er Íslands­met í töku verð­tryggðra íbúða­lána á einum mán­uði. Fyrra met var sett í ágúst þegar heim­ilin tóku slík lán upp á 17,7 millj­arða króna. Munurinn á milli ágúst og sept­em­ber var því um 45 pró­sent.  

Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um íslenska banka­kerfið.  

Umfang verðtryggðra lána aldrei meira

Á sama tíma og heim­ilin flýja á met­hraða í verð­tryggð lán eru þau að greiða upp óverð­tryggð íbúða­lán á áður óþekktum hraða. Alls hafa þau greitt slík niður um 59,2 millj­arða …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár