Tíu af stærstu útgerðarfélögunum fjárfesta beint eða óbeint í laxeldi

Fyrir fimm árum síðan höfðu engar stórar útgerðir á Íslandi fjár­fest í lax­eldi í sjó­kvíum. Nú hefur þessi staða ger­breyst og hafa nú tíu af tutt­ugu stærstu útgerðum lands­ins fjár­fest beint eða óbeint í eld­inu. Samtímis hefur komið upp vax­andi óánægja meðal ein­hverra útgerð­ar­manna að sjó­kvía­eldið til­heyri sömu hags­muna­sam­tökum og útgerð­ar­fé­lögin, SFS.

Tíu af stærstu útgerðarfélögunum fjárfesta beint eða óbeint í laxeldi
Mesta fjár­fest­ingin í Fiskeldi Aust­fjarða Þrjú stór útgerð­ar­fé­lög fjár­festa nú í Fiskeldi Aust­fjarða. Myndin sýnir lax­eld­iskvíar í Fáskrúðs­firði. Mynd: Heimildin / Aðalsteinn

Tíu af tutt­ugu stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins fjár­festa nú, beint eða óbeint í sjóa­kvía­eldi á eld­is­laxi. Fimm af útgerð­unum fjár­festa beint í sjóa­kvía­eld­inu á meðan aðrar fimm eru óbeinir fjár­festar í gegnum önnur útgerð­ar­fé­lög sem þær eiga hluti í eða sem eiga þær. Þannig hafa tíu af tutt­ugu stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins beina eða óbeina hags­muni af sjóa­kvía­eldi á Íslandi. 

Þetta er ger­breytt staða frá því fyrir fimm árum síðan þegar engin stór útgerð­ar­fé­lög höfðu fjár­fest í sjóa­kvía­eldi á eld­is­laxi. Eina útgerðin sem þá stund­aði lax­eldi var Samherji en það var og er land­eldi en ekki eldi í sjó­kvíum.

„Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir um það, bara eins og á öllu í líf­inu.“
Friðrik Þór Guð­munds­son,
fram­kvæmda­stjóri Loðnu­vinnsl­unnar

Þetta kemur fram í úttekt Heim­ild­ar­innar á fjár­fest­ingum stórra útgerð­ar­fé­laga í sjóa­kvía­eldi á Íslandi og þeirri tog­streitu sem hefur skap­ast á milli þeirra útgerða sem eru fylgj­andi eld­inu og ann­arra sem telja að best væri að sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin til­heyri ekki Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­ú­vegi (SFS). 

Þessar mis­mun­andi skoð­anir útgerð­ar­manna á sjó­kvía­eld­inu koma ágæt­lega fram í máli Friðriks Þórs Guð­munds­sonar, fram­kvæmda­stjóra Loðnu­vinnsl­unnar á Fáskrúðs­firði, sem segir við Heim­ild­ina að skoð­an­irnar á veru sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækj­anna séu skiptar en að fyr­ir­tækin hafi verið sam­þykkt inn í SFS árið 2019.  „Menn sam­þykktu þetta á sínum tíma og það er bara þannig. Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir um það, bara eins og á öllu í líf­inu. Það er mót­læti í þessu.“

Tíu af tutt­uguTíu af tutt­ugu stærstu útgerðum lands­ins eiga nú beinna og óbeinna hags­muna að gæta í sjóa­kvía­eldi við Ísland. Auk þess hafa fimm hags­muna að gæta í land­eldi.

Fimm  fjárfesta beint

Síðasta beina fjár­fest­ing íslenskrar stór­út­gerðar í sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæki átti sér stað í byrjun októ­ber þegar Eskja á Eski­firði ákvað að fara inn í hlut­hafa­hóp­inn hjá Fiskeldi Aust­fjarða og keypti 1,40 pró­senta hlut í félag­inu af stofn­anda þess, Guðmundi Gísla­syni.

Áður hafði félagið Hólmi ehf., eign­ar­halds­fé­lag stærstu hlut­hafa Eskju þeirra Þor­steins Krist­jáns­sonar og Bjarkar Aðal­steins­dóttur, fjár­fest í Fiskeldi Aust­fjarða.

Fyrir voru útgerð­ar­fé­lögin Skinney-Þinganes og Ísfélag Vest­manna­eyja fjár­festar í Fiskeldi Aust­fjarða. Þannig eru þrjú stór útgerð­ar­fé­lög hlut­hafar í Fiskeldi Aust­fjarða. 

Síld­ar­vinnslan er svo annar stærsti hlut­hafi Arctic Fish á Ísafirði eftir að hafa keypt hluta­bréf í því af pólskum fjár­festi.

Hrað­frysti­húsið Gunnvör í Hnífsdal er eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Háafells, sem hefur hafið sjó­kvía­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi, meðal ann­ars við Vigur.

Raunar er það bara stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækið, Arnarlax, sem er ekki með neina stór­út­gerð í hlut­hafa­hópnum. 

Fimm fjárfesta óbeint

Þar að auki eru önnur fimm útgerð­ar­fé­lög óbeinir hlut­hafar í lax­eld­is­fyr­ir­tækjum vegna þess að þau eiga eða eru í eigu útgerða sem eiga í slíkum fyr­ir­tækjum.

Dæmi um þetta eru Jakob Valgeir í Bol­ung­ar­vík, sem er hlut­hafi í fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Háafelli, sem er í eigu Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar.

Þá er Samherji hlut­hafi í Síld­ar­vinnsl­unni, sem fjár­festir í Arctic Fish, sem og Gjögur og Vísir í Grinda­vík. Loks er Bergur-Huginn í Eyjum í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar. Þannig tengj­ast fjögur stór útgerð­ar­fé­lög sjóa­kvía­eld­inu óbeint í gegnum Síld­ar­vinnsl­una. 

Heilt yfir eru því tíu af tutt­ugu stærstu útgerðum Íslands sem fjár­festa beint eða óbeint í sjó­kvía­eldi og þá ein­ungis tíu sem gera það ekki með beinum eða óbeinum hætti. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár