Óttar Pálsson hafnar sökum sem á hann er bornar og segir þær meiðandi

Lögmaður sem hefur verið til umfjöll­unar í ýmsum vef­miðlum síð­ustu daga vegna ætl­aðs ofbeld­is­brots segir að lýs­ingar þeirra af atvik­inu séu „að veru­legu leyti ósannar“ og til þess fallnar að valda „sárs­auka þeirra sem síst skyldi“.

Óttar Pálsson hafnar sökum sem á hann er bornar og segir þær meiðandi
Lögmaður Óttar Pálsson er lög­maður og einn eig­enda LOGOS lög­manns­stofu. Mynd: LOGOS

Óttar Pálsson, lög­maður og einn eig­enda lög­manns­stof­unnar LOGOS, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar ýmissa vef­miðla síð­ustu daga af ætl­aðri lík­ams­árás sem nafn hans hefur verið tengt við. Í yfir­lýs­ing­unni segir Óttar að lýs­ingar af umræddu atviki „sem átti sér stað fyrir rúm­lega tveimur vikum síðan, eru að veru­legu leyti ósannar, meið­andi og til þess fallnar að valda sárs­auka þeirra sem síst skyldi. Því finnst mér rétt að fram komi að ég hafna hvers kyns sökum sem á mig eru bornar.“

Hann seg­ist ekki ætla að tjá mig frekar um málið að sinni.

Sú umfjöllun sem Óttar vísar í hófst með frétt sem vef­ur­inn Mannlíf birti á föstu­dag. Í þeirri umfjöllun var eng­inn nafn­greindur en því haldið fram að sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs hefði þekktur hæsta­rétt­ar­lög­maður gengið í skrokk á öðrum manni í vitna við­ur­vist með þeim afleið­ingum að hann hefði nef­brotnað og rif­bein brákast. Þar var því einnig haldið fram að kæra væri yfir­vof­andi í mál­inu. 

Aðrir miðlar: Vísir, DV og mbl.is, tóku málið upp á sömu for­sendum, án þess að nafn­greina hlut­að­eig­andi en með því að vísa í að mað­ur­inn sem grun­aður væri um ofbeldi væri með­eig­andi einnar stærstu lög­manns­stofu lands­ins og ætti sæti í stjórnum nokk­urra fyr­ir­tækja. Bæði Vísir og mbl.is birtu fréttir um skilnað Óttars við eig­in­konu sína um liðna helgi án þess að setja í beint sam­band við annan frétta­flutn­ing miðl­anna af ætl­uðu ofbeld­is­broti. 

Mannlíf nafn­greindi Óttar svo í morgun og sagði hann vera mann­inn sem væri bor­inn þeim sökum að hafa ráð­ist á annan mann í verslun þess síð­ar­nefnda í mið­borg Reykja­víkur fyrr í þessum mán­uði. DV fylgdi í kjöl­farið og birti frétt þar sem Óttar var nafn­greindur, en vísað í frétt Mannlífs því til stuðn­ings. Vísir birti einnig frétt síð­degis þar sem greint var nánar frá því hvernig þeir tveir menn sem snerta atburða­rás­ina beint sjá hana, án þess að nafn­greina þá. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár