Stórmeistarar í skák verða ekki lengur opinberir starfsmenn

Mennta- og barna­mála­ráð­herra ætlar að fella á brot lög um launa­sjóð stór­meist­ara í skák sem hafa verið í gildi frá árinu 1990 og tryggir stór­meist­urum lekt­ors­laun á mán­uði. Fyr­ir­komu­lagið kostar rík­is­sjóð 36 millj­ónir króna á næsta ári.

Stórmeistarar í skák verða ekki lengur opinberir starfsmenn
Ráð­herrar Lilja D. Alfreðs­dóttir boð­aði frum­varp um að breyta lögum um laun stór­meist­ara í skák á þing­mála­skrá fyrir vor­þing 2018. Þau urðu aldrei að veru­leika. Nú ætlar Ásmundur Einar Daðason að ráð­ast í slíkar breyt­ingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur birt áform um að leggja fram frum­varp til nýrra heild­ar­laga um skák í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Samhliða er stefnt að því að núgild­andi lög um launa­sjóð stór­meist­ara í skák og lög um Skák­skóla Íslands verði felld úr gildi. 

Í áforma­skjal­inu segir að helstu breyt­ingar frá eldra fyr­ir­komu­lagi verði þær að stór­meist­arar í skák verði ekki opin­berir starfs­menn og nýtt fyr­ir­komu­lag um laun eða styrki til stór­meist­ara í skák verði tekið upp þar sem horft verði í meira mæli til ein­stakra verk­efna og fram­gangs þeirra. „Þá verður horft til þess mögu­leika að styrkja unga og upp­renn­andi skák­menn, sem stefna að alþjóð­legum árangri, en hingað til hafa ein­göngu þeir sem hlotið hafa nafn­bót­ina stór­meist­ari fengið greiðslur úr rík­is­sjóði.“ 

Í mati á fjár­hags­legum áhrifum breyt­ing­anna, sem eru áætluð engin, segir að lög um launa­sjóð stór­meist­ara í skák séu „gam­al­dags og tæp­lega við­eig­andi í nútíma stjórn­sýslu­um­hverfi. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár