Framlegð smásölurisans Haga jókst um 1,5 milljarða króna milli ára

Stærsta smá­sölu­sam­stæða lands­ins hagn­að­ist um 2,1 millj­arða króna frá byrjun júní og út ágúst­mánuð. Framlegð félags­ins, sem rekur meðal ann­ars Bón­usversl­an­irnar, jókst um 18,1 pró­sent í krönum talið milli ára.

Framlegð smásölurisans Haga jókst um 1,5 milljarða króna milli ára
Krúnu­djá­snið Hagar reka meðal ann­ars versl­anir Bónus, sem eru alls 32 tals­ins víðs­vegar um landið. Bónus hefur inn­leitt ýmsar tækni­lausnir í starf­semi sína á síð­ustu árum sem gera við­skipta­vinum kleift að afgreiða sig sjálfir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Smá­söluris­inn Hagar hagn­að­ist um 2,4 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi upp­gjörs­tíma­bils síns í ár, sem stóð frá 1. júní til 31. ágúst. Það er umtals­vert meiri hagn­aður en varð hjá félag­inu á sama tíma­bili í fyrra, þegar hann nam um 2,1 millj­arði króna. Í fyrra­sumar var hins vegar bók­færður umtals­verður hagn­aður vegna áhrifa við­skipta með fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Klasa og í nýbirtum árs­hluta­reikn­ingi félags­ins kom fram að hagn­aður vegna þeirra við­skipta hafi verið 966 millj­ónir króna. 

Framlegð Haga – tekjur að frá­dregnum breyti­legum kostn­aði – á umræddu tíma­bili í ár var enda 9,9 millj­arðar króna en hafði verið tæp­lega 8,4 millj­arðar króna í fyrra. Framlegð félags­ins, sem selur að uppi­stöðu vörur og þjón­ustu til við­skipta­vina á íslenskum neyt­enda­mörk­uðum, yfir sum­ar­mán­uð­ina jókst því um 1,5 millj­arð króna milli ára. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að fram­legð í krónum talið hafi auk­ist um 18,1 pró­sent milli ára. Þar segir enn fremur að hækkun á fram­legð megi „að mestu rekja til við­skipta stórnot­enda hjá Olís en fram­legð­ar­hlut­fall í dag­vöru stendur í stað.“

Mark­aðsvirði Haga var um 75 millj­arðar króna við lok við­skipta í dag og bréf í félag­inu hafa hækkað um fimm pró­sent síð­ast­lið­inn mánuð. Mark­aðsvirðið er þó 6,5 pró­sent lægra en það var fyrir ári síðan. 

Halda kostnaði í skefjum en selja fyrir meira

Hagar er afar umsvifa­mikil sam­stæða sem rekur 39 mat­vöru­versl­anir, 22 Olís þjón­ustu­stöðvar, 45 ÓB-stöðvar, tvö vöru­hús, eina fram­leiðslu­stöð, eina net­verslun með mat­ar­pakka, eina birgða­verslun og eina sér­vöru­verslun. 

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Finni Oddssyni, for­stjóra Haga, að sterkur tekju­vöxtur í hafi verið í versl­unum og vöru­húsum, en þar undir falla meðal ann­ars  versl­anir Bónus og Hagkaups, Eldum rétt, Aðföng og Bananar. „Tekjur juk­ust um tæp­lega 17 pró­sent á milli fjórð­unga, en eins og áður má að hluta rekja þessa aukn­ingu til verð­bólgu, hækk­andi verðs aðfanga frá heild­sölum og fram­leið­endum sem hefur verið við­var­andi við­fangs­efni und­an­farin ár og sér­stak­lega síð­ustu 12 mán­uði.“

For­stjór­innFinnur Oddsson stýrir Haga­sam­stæð­unni.

Tekju­aukn­ingin er tölu­vert umfram verð­bólgu, sem mæld­ist átta pró­sent um þessar mundir og jókst lít­il­lega í síð­asta mán­uði, sem var sá fyrsti eftir að upp­gjörs­tíma­bili Haga lauk. 

Hagar hafa inn­leitt ýmsar tækni­lausnir í smá­sölu sína und­an­farin miss­eri sem hafa dregið úr rekstr­ar­kostn­aði. Kostn­að­ar­verð seldra vara jókst um ein­ungis 1,1 pró­sent milli ára á meðan að vöru­sala skil­aði 4,4 pró­sent meira í kass­ann á nýliðnu sumri en sum­arið 2022. 

Má þar nefna þróun net­versl­ana fyrir Hagkaup, Stórkaup og fleiri og þróun Gripið & Greitt fyrir Bónus, sem gerir það að verkum að við­skipta­vin­ur­inn gengur sjálfur í störf sem afgreiðslu­fólk sinnti áður. Finnur segir í til­kynn­ing­unni að þessi þróun hafi „myndað mik­il­vægan grunn að tækni­um­hverfi sem mun nýt­ast til að efla þjón­ustu rekstr­ar­ein­inga Haga við við­skipta­vini enn frekar og horfum við þar til fjölda nýrra og spenn­andi tæki­færa.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár