Einn látinn eftir bruna á Funahöfða

Einn er lát­inn eftir að eldur kom upp í iðn­að­ar­hús­næði á Funa­höfða í gær. Elds­upp­tök eru enn ókunn en rann­sókn lög­reglu á vett­vangi stendur yfir. Allt að 30 manns bjuggu í hús­næð­inu, aðal­lega Pól­verjar.

Þrír menn voru fluttir á slysa­deild eftir að eldur kom upp í hús­næði við Funa­höfða 7 síð­degis í gær. Einn hinna slös­uðu lést á gjör­gæslu­deild  nokkru síðar en hinir tveir eru ekki taldir í lífs­hættu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. 

Elds­upp­tök eru ókunn en rann­sókn lög­reglu á bruna­vett­vangi stendur yfir.

Til­kynn­ing um eld­inn barst upp úr klukkan þrjú í gær­dag og hélt fjöl­mennt lið við­bragðs­að­ila þegar á stað­inn. Slökkvi­starf gekk vel og var að mestu lokið innan klukku­stundar.

Eldurinn kom upp á fyrstu hæð húss­ins í her­bergi sem var alelda þegar slökkvi­lið kom á stað­inn. Húsnæðið að Funa­höfða 7 er skil­greint sem atvinnu- og skrif­stofu­hús­næði.

Vísir ræddi í gær við Jakub Malinowski, sem býr á annarri hæð­inni og sagði hann að um 20-30 manns byggju þar; flestir pólskir eins og hann sjálfur en einnig ein­hverjir lit­háar og nokkrir frá öðrum löndum. 

Funa­höfði 7 er að mestu í eigu tveggja félaga sem eru í eigu þeirra Péturs Árna Jóns­sonar, fram­kvæmda­stjóra HEILD fast­eigna­fé­lags­ins og aðal­eig­anda útgáfu­fé­lags Við­skipta­blaðs­ins, Jóns Einars Eyj­ólfs­sonar, stjórn­ar­manni hjá ELJU starfs­manna­þjón­ustu, og Arnars Hauks­sonar, sem hefur unnið sem stjórn­andi hjá ELJU. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Og nú a að heimila þetta I stað þessa að banna og gera refsivert og framfylgja banni og refsa harðlega. Til að þurfa ekki að leysa vandann og styðja slumlords. Tær snilld og svo eru allir hissa.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár