Haldið veikum á sjó í þrjár vikur og fær vikulaun í skaðabætur

Skip­stjóri dæmdur fyrir stór­fellt gáleysi þegar hann hélt veikum mönnum á sjó í miðjum heims­far­aldri. For­stjóri og útgerð­ar­stjóri sýkn­aðir þrátt fyrir dag­leg sam­skipti við skip­stjór­ann. Sjó­manna­lögin úr takti við raun­veru­leik­ann.

Haldið veikum á sjó í þrjár vikur og fær vikulaun í skaðabætur
Gamblað með líf Kjartani Ágústi Pálssyni og ríf­lega tutt­ugu öðrum sjó­mönnum var haldið á sjó veikum og smit­uðum af Covid. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sveinn Geir Arnarson, skip­stjóri frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS, var í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mánu­dag dæmdur til að greiða Kjartani Ágústi Pálssyni, fyrr­ver­andi háseta tog­ar­ans, 400 þús­und krónur í miska­bætur, fyrir að hafa með stór­felldu gáleysi stefnt heilsu Kjartans og vel­ferð í hættu.

Kjartan Ágúst var einn 22 skip­verja á Júlíusi sem veikt­ist af Covid um borð í októ­ber­túr tog­ar­ans árið 2020. Það vakti að vonum mikla athygli þegar í ljós kom að tog­ar­inn hafði verið að veiðum í rúmar þrjár vikur, í miðjum heims­far­aldri, og að skip­verjar hafi hver af öðrum veikst, allt frá öðrum degi veiði­ferðar til þess síð­asta, án þess að farið hefði verið að lögum og leið­bein­ingum yfir­valda um að færa togar­ann í land.

Kjartan Ágúst veikt­ist hast­ar­lega um borð á fyrstu viku veiði­ferð­ar­innar en þurfti engu að síður að halda út næstu rúmu tvær vikur, mis­veikur og við vinnu.

„Ég hef aldrei orðið svona veikur áður,“ …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Útgerðin ber aldrei ábyrgð á neinu, þarf þess ekki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Martröðin á Júllanum

Opnaði sig um Covid-túr og hætti í mótmælaskyni
ViðtalMartröðin á Júllanum

Opnaði sig um Covid-túr og hætti í mót­mæla­skyni

Sjón­varps­við­tal við Arnar Gunnar Hilm­ars­son, skip­verja á Júlíusi Geir­munds­syni ÍS, vakti mikla athygli fyrir tveimur árum. Hann lýsti þar nöt­ur­legri mán­að­ar­langri sjó­ferð áhafn­ar­innar, veikri af Covid. Arnar sagði upp störfum í mót­mæla­skyni við fram­göngu útgerð­ar­innar stuttu seinna. Hann segir nýjar upp­lýs­ingar styrkja sig í þeirri trú að áhöfnin hafi verið mis­notuð af útgerð­inni.
„Útgerðin ætlaði að gera mig ábyrga“
FréttirMartröðin á Júllanum

„Útgerðin ætl­aði að gera mig ábyrga“

Súsanna Ást­valds­dóttir, yfir­læknir á Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða, segir það hafa verið sér áfall að málsvörn skip­stjóra og útgerðar Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS hafi falist í því að gera hana ábyrga fyrir mál­inu. Farið hafi verið fram á að hún skrif­aði undir yfir­lýs­ingu með HG þar sem ætl­unin var að hún axl­aði ábyrgð. Fyr­ir­tækið hafi reynt að grafa undan trausti á henni og sam­fé­lag­inu fyrir vestan.
„Þeir lugu að okkur í mánuð“
ÚttektMartröðin á Júllanum

„Þeir lugu að okkur í mánuð“

Tveimur árum eftir alræmdan Covid-túr frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS glíma margir úr áhöfn­inni enn við afleið­ingar veik­ind­anna. Lög­reglu­skýrslur, sjó­próf og sam­töl Stund­ar­innar við fjölda skip­verja varpa ljósi á hvernig áhöfn­inni var ítrekað sagt ósatt með þeim afleið­ingum að mun fleiri veikt­ust. Gögnin vekja líka spurn­ingar um hvers vegna dag­leg og ítar­leg sam­skipti skip­stjór­ans við útgerð­ina voru ekki rann­sökuð frekar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár