Systkinasambönd á fullorðinsárunum

„Virðing felst í því að fólk leyfi systk­ini sínu að vera eins og það er,“ segir fjöl­skyldu­fræð­ing­ur­inn, sátta­miðl­ar­inn og félags­ráð­gjaf­inn Íris Eik Ólafs­dóttir. Upp­skriftin að góðu systk­ina­sam­bandi er ein­fald­lega að tala saman sam­kvæmt fólki á ferð­inni um bæinn og tveimur systrum sem kalla hvor aðra bestu vin­konu.

Hvað átt þú mörg systkini? Fólk á ferðinni um Mjóddina var spurt að því hvað það ætti mörg systkini og hvernig góðu systkinasambandi er viðhaldið á fullorðinsárunum?

Systk­ina­sam­bönd eru eins mis­mun­andi og þau eru mörg en eitt eiga þau þó sam­eig­in­legt og það er að hafa ein­hver áhrif á líf okkar, hvort sem þau eru jákvæð eða nei­kvæð.

Íris Eik Ólafs­dóttir er félags­ráð­gjafi, fjöl­skyldu­fræð­ingur og sátta­miðl­ari. Hún á stof­una Sam­skipta­stöð­ina, sér­hæfða með­ferð­ar­stöð fyrir ein­stak­linga, fjöl­skyldur, pör og vinnu­staði.

Aðspurð hvað ein­kenni heil­brigt systk­ina­sam­band segir Íris Eik það vera virð­ingu og vin­áttu. 

Íris Eik Ólafs­dóttirTekur eftir því í starfi sínu að systk­ini skortir gjarnan skiln­ing á því að þau geta upp­lifað sama atburð­inn á ólíkan hátt.

„Virðing felst í því að fólk leyfi systk­ini sínu að vera eins og það er. Með vin­áttu er hægt að vera stuðn­ingur fyrir systk­ini og sömu­leiðis deila gleði­stundum saman. Síðan fá systk­ini alls konar sam­eig­in­leg hlut­verk upp í hend­urnar og þurfa oft að kom­ast að nið­ur­stöðu um flókin mál­efni,“ útskýrir Íris Eik.

Skilningur og umburðarlyndi

Fjöl­skyldu­fræð­ing­ur­inn segir umburð­ar­lyndi skipta lyk­il­máli í sam­skiptum systk­ina, og fjöl­skyldu­með­lima yfir höfuð. „Þó að systk­ini deili bæði erfða- og umhverf­is­þáttum ásamt minn­ingum, að þá í raun­inni geta þau verið rosa­lega ólík og per­sónu­ein­kenni eins ólík og hjá mann­eskjum sem eru ekki skyldar.“ 

Óalgengt er að systk­ini upp­lifi bernsk­una, atlæti frá for­eldrum eða heim­il­is­líf á nákvæm­lega sama hátt, enda skynjum við öll heim­inn á okkar eigin máta. Íris Eik und­ir­strikar mik­il­vægi þess að því sé sýndur skiln­ingur í sam­skiptum systk­ina.

„Gott er að átta sig á því að hinn aðil­inn skilur hlut­ina ekki alltaf eins og maður sjálfur. Við­kom­andi er ekki endi­lega að vera með leið­indi, heldur er upp­lifun hvers og eins hans sann­leikur. Við erum ekki að leita að einum réttum sann­leika sem gildir fyrir öll, heldur að ræða það sem fólk upp­lifir og áhrif þess á sam­skiptin."

„Gott er að átta sig á því að hinn aðil­inn skilur hlut­ina ekki alltaf eins og maður sjálfur“
Íris Eik Ólafs­dóttir

Einnig getur ald­urs­röð og jafn­vel fæð­ing­arár systk­ina haft áhrif á mis­mun­andi upp­lifun af sama heim­ili eða atburði. „Það geta verið ólíkar aðstæður á heim­il­inu milli ára,“ segir Íris Eik. „Segjum sem svo að það sé þriggja til fimm ára ald­urs­bil milli systk­ina. Á þeim tíma geta for­eldrar verið í námi og þar með í annarri fjár­hags­stöðu eða að takast á við áskor­anir líkt og veik­indi.“

Að takast á við deilur

„Það eru mikil tengsl sem fel­ast í systk­ina­sam­bandi og þau end­ast ævi­langt hjá flestum,“ segir Íris Eik. En þrátt fyrir að systk­ini geti verið góðir vinir eiga þau það til að velta sér of mikið upp úr lífi hvert ann­ars.

„Það eru mikil tengsl sem fel­ast í systk­ina­sam­bandi og þau end­ast ævi­langt hjá flestum“
Íris Eik Ólafs­dóttir

„Mörg eiga í fal­legu systk­ina­sam­bandi, en stundum er einum of mikil áhersla á hvernig hitt lifir líf­inu. Þá er gott að slaka á í þeim skoð­unum vegna þess að fólk ræður sér sjálft.“ 

Upp geta komið deilur meðal systk­ina og er þá ráð að setj­ast niður til að ræða málin en Íris Eik mælist til þess að fólk tali frekar við hvað annað, í stað­inn fyrir að tala um hvað annað.

Fjöl­skyldu­fræð­ingar líkt og hún sjálf geta veitt fag­að­stoð í aðstæðum þar sem deil­urnar verða miklar. 

„Það er best að einn tali í einu. Ef fólk á erfitt með þetta er hægt að vera með bolta og sá sem er er með bolt­ann talar og hinir hlusta.“ Þetta getur verið gagn­legt til að systk­ini hlusti á hvert annað í stað þess að bíða óþol­in­móð eftir að fá sjálf orðið.

Íris Eik bendir á að ef skoð­unum fólks er sýndur áhugi er lík­legra að áhug­inn sé sýndur til baka. Þess vegna getur verið væn­legt til árang­urs að vera for­vitin, spyrja og rann­saka skoð­anir annnarra með það að mark­miði að öðl­ast dýpri skiln­ing á systk­ini sínu, sér í lagi ef skoð­an­irnar eru fjarri hver annarri. Þannig má einnig kom­ast hjá því að stunda hugs­ana­lestur, enda er hann ómögu­legur í fram­kvæmd.

„Ef manni finnst þau hafa sér­kenni­legar hug­myndir um fyr­ir­bæri eða ákvörðun er gott að líta á sig sem rann­sókn­ar­lög­reglu í sam­tal­inu. Þá er hægt að rann­saka af hverju systk­ini manns hefur sterka skoðun á ein­hverju máli þegar þú ert sjálf kannski á hinum pólnum.“

Einfaldleikinn og aðstoðin

Til þess að við­halda góðum systk­ina­tengslum á full­orð­ins­árum er mik­il­vægt að vera í sam­bandi. „Það virð­ast allir vera rosa­lega upp­teknir, hafa lít­inn tíma og því fylgir mikil streita. Þá er maður ekki endi­lega að hugsa um að fara í heim­sókn til systk­ini síns,“ bendir Íris Eik rétti­lega á en nútíma­sam­fé­lagi fylgir oft og tíðum mik­ill hraði.

Hún hvetur fólk hins vegar til þess að mikla ekki fyrir sér sam­skiptin því að þau þurfi ekki að vera flókin eða hátíð­leg. 

„Stundum snýst þetta um að hringja sím­talið og taka púls­inn á hvert öðru.“ Sömu­leiðis nefnir Íris Eik að heim­sóknir þurfi ekki að taka nokkra klukku­tíma heldur séu korter eða tutt­ugu mín­útur stundum nóg til að ná ágætis teng­ingu.

„Sam­fé­lags­miðlar spila stórt hlut­verk í því að fólk upp­lifi að það sé í miklum tengslum. En ég held að sam­fé­lags­miðlar komi nú seint í stað­inn fyrir það að setj­ast niður með góðan kaffi­bolla við eld­hús­borðið hjá systk­ini sínu.“ Á sam­veru­stundum er síðan til­valið að rifja upp gamla tíma sem veita gleði ásamt því að sýna vænt­um­þykju og áhuga í garð systk­in­is­ins. 

„Stundum snýst þetta um að hringja sím­talið og taka púls­inn á hvert öðru“
Íris Eik Ólafs­dóttir

Sniðugt er að hitt­ast reglu­lega, hvort sem það er í kaffi­bolla, mat­ar­boði, úti­legu eða ein­fald­lega í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inum með börnin eins og Íris Eik segir. „Það er nefni­lega líka mik­il­vægt fyrir systk­ini að láta börnin sín kynn­ast börnum systk­ina sinna.“

Þó að systk­ina­sam­bönd veiti almennt gleði má þó ekki horfa fram­hjá því að líf­inu fylgja erf­ið­leikar. Í slíkum aðstæðum getur stuðn­ingur systk­ina við hvert annað oft verið þýð­ing­ar­mik­ill. „Bjóðum fram aðstoð eða látum vita að við sjáum að það séu erf­ið­leikar í gangi,“ segir Íris Eik en bætir við að ráð sé að passa sig á að vera ekki með stjórn­semi því að hún er jú skað­leg. 

„Við getum ekki stjórn­ast í lífi ann­ars fólks, en við getum góð­lát­lega bent á eitt­hvað sem má betur fara. Aðallega er þó gott að spyrja hvað systk­ini manns þurfi á þessum tíma.“ Félags­ráð­gjaf­inn tekur dæmi af spurn­ingum á borð við, er eitt­hvað sem ég get gert til að létta undir eða er eitt­hvað sem þú þarft? 

Ólíkar systur en bestu vinkonur

Syst­urnar Eva Kristín og Katla Sól Sig­urð­ar­dætur eru 25 ára og 22 ára. Um þessar mundir eru þær staddar í litlum bæ við strönd Portúgal sem heitir Tavira. Þar hafa syst­urnar dvalið ásamt for­eldrum sínum og yngri systur, Tinnu, í tvo mán­uði. Fjöl­skyldan ákvað að verja tíma saman í Portúgal og njóta syst­urnar því lífs­ins áhyggju­lausar í sól og hita.

Eva Kristín og Katla Sól Sig­urð­ar­dæturVerja nú þremur mán­uðum saman í Portúgal ásamt fjöl­skyld­unni.

„Ég er mjög þakk­lát fyrir að eiga systur til að deila líf­inu með,“ segir Katla Sól, sól­brún og sæl. Hún lýsir sam­band­inu við systur sínar tvær sem mjög góðu og lítur á þær sem bestu vin­konur sínar.

Eva Kristín, ald­urs­for­seti systr­anna, tekur undir. „Við höfum alltaf átt gott sam­band og ég sé ekki fram á að það breyt­ist.“ 

Frá því stelp­urnar muna eftir sér hefur þeim líkað vel í félags­skap hvor ann­arrar, og Tinnu eftir að hún bætt­ist í hóp­inn og full­komn­aði þrí­eykið. Katla minn­ist þess að Eva hafi verið henni eins konar vernd­ari á yngri árum. „Maður sér það á myndum. Þegar við vorum litlar var Eva alltaf að passa upp á mig.“

„Ég er mjög þakk­lát fyrir að eiga systur til að deila líf­inu með“
Katla Sól Sig­urð­ar­dóttir

Þrátt fyrir að vera bestu vin­konur og með sömu gildi eru þær Eva Kristín og Katla Sól afar ólíkar í per­sónu­leika. „Katla er jarð­bundn­ari,“ útskýrir Eva Kristín og bætir við: „Ég er meira svona í skýj­unum.“

Katla Sól sam­sinnir því. „Eva lætur sig dreyma en ég er meira excel-skjal og vil hafa næstu skref ákveðin. Þó það sé alveg gaman að fylgja ekki plani að vissu leyti, þá líður mér betur ef ég veit hvað við erum að gera næst. Ég þarf líka oft að hafa eitt­hvað fyrir stafni, ann­ars er ég eirð­ar­laus. En Eva á auð­veld­ara með að slaka á.“ Þessi síð­asta setn­ing fær Evu Kristínu til að skella gleði­lega upp úr. Kötlu Sól finnst þær þó, þegar allt kemur til alls, nokkuð líkar í grunn­inn. „Við eigum það sam­eig­in­legt að elska að ferð­ast og verja tíma með fjöl­skyldu og vinum.“

Systur Katla Sól og Eva Kristín hafa verið nánar frá því þær voru börn.

Þessi munur á per­sónu­leikum þeirra sem Katla Sól lýsti krist­all­ast í fæð­ing­ar­sögum systr­anna. Þær voru nefni­lega settar sama dag, 30 maí, nema Eva Kristín árið 1998 og Katla Sól árið 2001. „Eva lét bíða eftir sér í fæð­ing­unni eins og í mörgu öðru,“ segir Katla Sól og upp­sker á ný hlátur frá systur sinni sem fædd­ist tveimur vikum eftir settan dag. Sjálf fædd­ist Katla Sól deg­inum eftir settan dag, þann 31. maí. „Hún var að flýta sér,“ segir Eva Kristín og glottir.

Hreinskilin samskipti mikilvæg

Í dag líta þær á sig, og Tinnu sem er 15 ára, sem jafn­ingja. Eva Kristín segir þær eiga auð­velt með að tengja við hver aðra þrátt fyrir ald­urs­mun­inn. „Ég segi Kötlu og Tinnu allt það sama, enda er Tinna mjög þroskuð miðað við aldur.“

Þegar Katla Sól fer að tala um að Eva Kristín sé nú reynslu­meiri í líf­inu grípur Eva Kristín orðið af systur sinni og útskýrir: „Ég hef nátt­úr­lega reynslu af vinnu og námi erlendis en fyrir utan það myndi ég segja að reynsla okkar tveggja sé frekar sam­bæri­leg.“ 

„Ef það er eitt­hvað sem kemur upp á er mik­il­vægt að eiga í góðum og hrein­skilnum sam­skiptum“
Eva Kristín Sig­urð­ar­dóttir

Syst­urnar Eva Kristín og Katla Sól upp­lifa sig heppnar með hvað þeim kemur vel saman. Þær veigra sér þó ekki við því að ræða málin ef upp kemur ein­hvers konar ágrein­ingur eða pirr­ingur. „Ef það er eitt­hvað sem kemur upp á er mik­il­vægt að eiga í góðum og hrein­skilnum sam­skiptum,“ tekur Eva Kristín fram. „Þá leysum við það,“ sam­sinnir Katla Sól.

Nú eru stelp­urnar komnar yfir tví­tugs­ald­ur­inn og búnar að ná sér í háskóla­gráður. Eva Kristín í sál­fræði og Katla Sól í við­skipta­fræði. Þær finna fyrir örlitlu stressi í garð þess að flytja end­an­lega úr for­eldra­húsum og vera ekki sjálf­krafa saman á dag­inn. 

Þær ræða málið aðeins sín á milli áður en Katla Sól stingur upp á lausn. „Það er kannski snið­ugt þá að vera með eitt­hvað systra­tengt sem við gerum einu sinni í viku saman. Það getur verið að horfa á mynd eða bara eitt­hvað allt annað.“ Eva Kristín tekur vel í þessa hug­mynd og bætir við að þær myndu líka hringja í hver aðra ef þær væru ekki á sama land­svæði. Syst­urnar átta sig á því að þær gætu farið sitt­hvora leið er varðar vinnu og nám en það breytir því ekki að þær eiga hvor aðra alltaf að.

Eftir dvöl­ina í Portúgal hafa stelp­urnar fengið nægan tíma til góðrar sam­veru. Þegar Heim­ildin náði tali af þeim voru þær nýbúnar að fara á brim­bretti með Tinnu og föður sínum. Það fannst þeim æðis­legt. „Við erum að skapa minn­ingar sem við munum alltaf eiga,“ segir Katla Sól ánægð. „Það er búið að vera svo gaman og styrkj­andi fyrir systk­ina­sam­bandið að vera hér saman, öll fjöl­skyldan, í þennan tíma.“

„Já, ég er svo sam­mála,“ svarar Eva Kristín bros­andi. „Ég vildi að allir ættu svona góðar systur og gott systk­ina­sam­band.“

Engin ein aðferð

Nokkrir borg­arar á ferð­inni um Mjóddina svör­uðu spurn­ingum um systk­ina­sam­bönd sín og deildu því hver upp­skriftin að góðu systk­ina­sam­bandi á full­orð­ins­árum er.

Eiríkur Helgason er næstelstur af sex systk­inum. Hann á í góðum sam­skiptum við hóp­inn og leggur sig fram um að hitta þau reglu­lega. 

Eiríkur HelgasonÞykir afar vænt um systk­ini sín og hittir þau reglu­lega.

„Ég held það sé engin ein aðferð,“ segir hann aðspurður hvað þurfi að gera til að við­halda góðu systk­ina­sam­bandi á full­orð­ins­árum.

„En við systk­inin töl­umst mikið við í síma og við hitt­umst. Síðast var það bara núna af því að eig­in­kona mín var erlendis, að þá höm­uð­ust þau systk­inin við að bjóða mér í mat,“ segir Eiríkur ánægður.

Næst á dag­skrá hjá systk­ina­hópnum er stór fögn­uður um helg­ina í til­efni af 100 ára afmæli móður þeirra. „Þá mæta allir og makar.“ 

Systk­inin eru á breiðu ald­urs­bili og er Eíríkur í hópi þeirra sem eru eldri. „Þessi systk­ina­hópur er svo­lítið tví­skiptur. Við erum þrjú elst og svo eru þrjú yngst. Ég á systur sem er 81 árs og systur sem er sex­tug. Þannig að sjáið þið nú bara mun­inn sko, þetta spannar allt.“

Vænt­um­þykja bróð­ur­ins í garð hinna systk­in­anna leynir sér ekki. „Ég kvarta ekki yfir þessu. Þetta er bara mjög gott,“ segir Eiríkur með hlýju í hjarta og heldur áfram út í dag­inn. 

Mikilvægt að hafa samband

„Ég fæ að stjórna pínu­lítið,“ segir elsta systkinið Valdís Gests­dóttir og brosir. Hún á fjögur yngri systk­ini.

Að hennar mati skiptir máli að halda sam­bandi ef ætl­unin er að eiga gott systk­ina­sam­band á full­orð­ins­ár­unum. „Ég á einn bróður sem hringir í mig á hverjum degi, svo það er mik­il­vægt að hafa sam­band.“

Valdís Gests­dóttirNýtur þess að vera elsta systkinið.

Valdís svarar því hvað sé það besta við að eiga í sam­skiptum við systk­ini sín. „Það er best að eiga sína fjöl­skyldu sem maður getur leitað til.“

„Það er best að eiga sína fjöl­skyldu sem maður getur leitað til“
Valdís Gests­dóttir

Sjö systkini

Magnús Gunn­ars­son á ekki bara eitt, tvö eða þrjú systk­ini heldur sjö. „Ég á engin alsystkin en ég á hálf­systk­ini. Þau eru sjö, við vorum átta.“ Af þessum stóra hópi er Magnús elstur. „Svo á ég tvö hálf­systk­ini frá föður í við­bót.“ 

Magnús Gunn­ars­sonLeggur upp úr því að njóta tím­ans sem hann á með systk­inum sínum.

Á full­orð­ins­árum hefur Magnús not­ast við síma og sam­fé­lags­miðla til að við­halda sam­skiptum þar sem öll systk­inin búa ekki á Íslandi. Það er Magnúsi því kært að njóta tím­ans sem hann á með systk­inum sínum til fulls þegar þau ná að hitt­ast.  

„Það er bara albesta sem til er að eiga svona mörg systk­ini á öllum aldri. Ég er mjög tengdur þeim, sér­stak­lega þessum yngri. Við náum mjög vel saman,“ segir Magnús og útskýrir nánar: „Nú eru þau farin að flytj­ast út í heim, það eru ekki allir á Íslandi en þá er bara að halda góðu sam­bandi. Maður veit aldrei hvað maður hefur langan tíma, um að gera að njóta tím­ans meðan hann er.“ 

„Maður veit aldrei hvað maður hefur langan tíma, um að gera að njóta tím­ans meðan hann er“
Magnús Gunn­ars­son

Ólík en lík

„Ég er elstur af þessum sem eru á lífi enn þá,“ segir Hreiðar Gíslason, en hann á þrjár systur á lífi. „Sá elsti er dáinn, systir mín er á elli­heim­ili og yngri systir mín er bara í fullu fjöri.“

Hreiðar er dug­legur að hitta systur sínar enda skipti það hann máli til að við­halda góðum sam­skiptum á full­orð­ins­árum. „Við hitt­umst reglu­lega, tölum saman um dag­inn og veg­inn og það sem er að ger­ast hverju sinni.“

Hreiðar GíslasonRæðir dag­inn og veg­inn við systur sínar.

Aðspurður hvort þau systk­inin séu lík finnur Hreiðar sumt sem er líkt með þeim, en annað sem er ólíkt. „Það er svona margt í okkur sam­eig­in­legt en vantar eitt­hvað upp á að við séum öll­sömul lík. Ég er til dæmis sjúkur í íþróttir og golf. Systur mínar tvær, þær hafa nú lít­inn áhuga á því,“ segir Hreiðar og brosir.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár