RSÍ segir mál Pálmars sýna að atvinnurekendur eigi ekki erindi í stjórnir lífeyrissjóða

Mið­stjórn Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands gagn­rýnir Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir aðgerð­ar­leysi í máli Pálmars Óla Magn­ús­sonar, full­trúa SA í stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs. Hann eigi að víkja. Málið sýni að atvinnu­rek­endur eigi ekki að sitja í stjórnum líf­eyr­is­sjóða launa­fólks.

RSÍ segir mál Pálmars sýna að atvinnurekendur eigi ekki erindi í stjórnir lífeyrissjóða
Stjórn­ar­for­maður Birtu Pálmar Óli Magn­ús­son hefur ekki ljáð máls á því að víkja úr stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs og Samtök Atvinnu­lífs­ins, sem skip­uðu hann í stjórn­ina, segj­ast ekki geta aft­ur­kallað umboð hans. Stærsta launa­þega­hreyf­ing sjóðs­fé­laga í Birtu segir aðgerð­ar­leysi SA sýna fram á að atvinnu­rek­endur hafi ekk­ert erindi í stjórn líf­eyr­is­sjóða launa­fólks. Mynd: Dagar

Mið­stjórn Raf­iðn­að­ar­sam­band Íslands krefst þess að Pálmar Óli Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Birtu líf­eyr­is­sjóðs, víki þegar úr stjórn sjóðs­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt er á vef Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands (RSÍ) í dag, undir fyr­ir­sögn­inni „Mið­stjórn RSÍ krefst við­bragða“. 

„Seta Pálmars Óla í stjórn og sem stjórn­ar­for­maður Birtu líf­eyr­is­sjóðs getur haft þær afleið­ingar að skaða ímynd Birtu“
Úr ályktun mið­stjórnar RSÍ

Pálmar hefur frá árinu 2018 setið í stjórn Birtu, sem full­trúi Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem til­nefna full­trúa í sjóð­inn ásamt full­trúum laun­þega­hreyf­inga sjóðs­fé­laga. Félagar í Raf­iðn­að­ar­sam­band­inu er fjöl­menn­asti ein­staki hópur laun­þega­hreyf­ingar sem aðild eiga að sjóðnum.

Eins og Heim­ildin hefur sagt frá er sú ein­kenni­lega staða nú uppi að hvorki atvinnu­rek­endur né laun­þegar, telja stjórn­ar­for­mann­inum sætt í stjórn­inni. Samtök atvinnu­lífs­ins telja sig hins vegar ekki geta aft­ur­kallað umboð hans, og þannig rekið hann úr stjórn­inni. Telja sam­tökin að það sé brot á sam­þykktum sjóðs­ins.

Í stað­inn vísa Samtökin mál­inu til fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans, sem þau vilja að end­ur­meti hæfi Pálmars, í ljósi skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­litisns og þáttar hans í sam­keppn­is­brotum Samskipa.

Fjár­mála­eft­irltið bendir á móti á að nú séu fjögur ár síðan stjórnum líf­eyr­is­sjóða var bent á það að skýra þyrfti reglu­verk sjóð­anna svo skýrar heim­ildir væru fyrir því að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna. Það hafi ekki verið gert. Á meðan situr Pálmar sem telur sig í fullum rétti og að skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafi engu breytt.

Í dag birti svo mið­stjórn RSÍ harorða ályktun þar sem skorað er á Pálmar Óla að víkja sæta úr stjórn sjóðs­ins sem beðið hafi skaða af stjórn­ar­setu hans. Þar er ákvörðun Samtaka atvinnu­lífs­ins um að halda að sér höndum í mál­inu, gagn­rýnd harð­lega og vekja enn og aftur spurn­ingar um hvort heppi­legt sé að atvinnu­rek­endur skipi yfir­leitt full­trúa í stjórnir líf­eyr­is­sóða launa­fólks.

Álykt­un­ina fer hér á eftir:

„Mið­stjórn RSÍ gerir veru­legar athuga­semdir við setu Pálmars Óla Magn­ús­sonar í stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs, á meðan hann hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings og í ljósi birt­ingu ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um brot Samskipa gegn banni við ólög­mætu sam­ráði. Pálmar Óli var fram­kvæmda­stjóri milli­landa­sviðs Samskipa á þeim tíma sem ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins nær til.

Seta Pálmars Óla í stjórn og sem stjórn­ar­for­maður Birtu líf­eyr­is­sjóðs getur haft þær afleið­ingar að skaða ímynd Birtu meðal sjóðs­fé­laga og almenn­ings og haft bein áhrif á trú­verð­ug­leika og orð­spor sjóðs­ins.

„[N]auð­syn­legt er að gera breyt­ingar á aðkomu atvinnu­rek­enda í stjórnum líf­eyr­is­sjóða“
úr ályktun mið­stjórnar RSÍ

Mið­stjórn RSÍ skorar á Pálmar Óla Magn­ús­son að stíga til hliðar á meðan rann­sókn máls­ins stendur yfir. Ástæða þess er sú að mið­stjórn sem og full­trúa­ráð launa­fólks hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði metur svo að Pálmar Óli upp­fylli ekki lengur skil­yrði greinar 5.3 sam­þykkta Birtu líf­eyr­is­sjóðs um gott orð­spor, vegna fyrr greindra atriða.

Mið­stjórn RSÍ telur aðgerða­leysi Samtaka atvinnu­lífs­ins gagn­vart þessu máli veru­lega gagn­rýni­vert og vekur upp spurn­ingar um það hvort eðli­legt sé að full­trúar atvinnu­rek­enda sitji í stjórnum sjóða sem hafa það eitt mark­mið að tryggja launa­fólki líf­eyri á efri árum. Einsýnt er að nauð­syn­legt er að gera breyt­ingar á aðkomu atvinnu­rek­enda í stjórnum líf­eyr­is­sjóða.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Formaður RSÍ dregur alranga ályktun af þessu máli. Það sýnir einmitt hversu hættulegt væri ef einn hagsmunahópur gæti ráðið öllu í lífeyrissjóðum. Þótt hinn siðlausi sé í þessu tilviki fulltrúi atvinnurekenda gæti það allt eins verið á hinn veginn; fulltrúar launþega eru ekki hafnir yfir að geta verið breyskir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár