Fjölsótt á fund um kynfræðslu barna: „Djöfulleg áætlun WHO um börnin“

Aukin upp­lýs­inga­óreiða og upp­gangur sam­sær­is­kenn­inga verða sífellt meira áber­andi í íslensku sam­fé­lagi. Stjórn­mála­fræði­pró­fessor segir klass­ískt stef í slíkum kenn­ingum að verið sé að vernda sak­laus börn. Besta for­spár­gildið til að vita hvort fólk trúi sam­sær­is­kenn­ingu sé hvort það trúi ein­hverri annarri sam­sær­is­kenn­ingu.

Á Catalínu
Á Catalínu Um fimm­tíu manns mættu á fund um kyn­fræðslu í grunn­skólum Mynd: EH

„Óvið­eig­andi kennslu­efni í skólum“ var yfir­skrift fundar hjá mál­funda­fé­lag­inu Frelsi og full­veldi sem hald­inn var á Catalínu í Kópavogi á mánu­dag. Um fimm­tíu manns mættu á fund­inn og var fólk almennt sam­mála um að ný kennslu­bók í kyn­fræðslu fyrir grunn­skóla­nema inni­haldi klám og þannig verði klámi haldið að börnum í skól­anum. „Klám getur leitt til fíknar,“ sagði einn fund­ar­gesta.

Fund­ar­stjóri var séra Geir Waage en Kristín Þormar skrif­stofu­stjóri var annar fram­sögu­manna á fund­inum. Vísaði hún end­ur­tekið í bloggið sitt þar sem hún kallar for­stjóra Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (WHO) „glæpa- og hryðju­verka­mann“.

Hún spurði á fund­inum: „Hafið þið kynnt ykkur hina djöf­ul­legu áætlun WHO um börnin?“ Eins og einnig er rakið á blogg­síðu hennar heldur hún því fram að í íslenskum grunn­skólum sé verið að inn­leiða kyn­fræðslu­efni frá WHO þar sem mark­miðið er að „kyn­líf­s­væða“ börn og á end­anum „afglæpa­væða kyn­líf með börnum“.

Tvær álykt­anir voru sam­þykktar á fund­inum. Önnur …

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Auður Helg skrifaði
    Það er augljóst að Vilhelm hefur látið afvegaleiðast af óheiðarlegri framsetningu Heimildarinnar. Það er nákvæmlega ekkert vandað við það að láta að því liggja að fólki sem hugnast ekki umtalað kynfræðsluefni fyrir 7-10 ára börn sé ruglað eða fari með fleipur. Bókin Kyn kynlíf og allt hitt er raunveruleg bók og fjölmargir foreldrar og aðrir uppalendur telja hana óhæfa og skaðlega börnum. Af hverju vill fréttamaður Heimildarinnar tengja andófið við upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar?
    -5
  • Auður Helg skrifaði
    Leitt að sjá hvað Heimildin stundar óheiðarlega fréttamennsku.
    -14
    • VS
      Vilhelm Sigmundsson skrifaði
      Þetta er þvert á móti mjög vönduð og þörf fréttamennska, en svo virðist sem þú gætir hafa látið plata þig til að trúa einhverjum undarlegum samsæriskenningum. Getur verið að þú sért haldin ranghugmyndum um Covid? Trump? Trans-fólk? Loftslagsmál? Ef þig grunar að svo gæti verið er um að gera að spyrja sjálfan sig: Er eitthvað sem gæti hnikað skoðunum mínum á þessum atriðum? Gætu einhverjar viðurkenndar staðreyndir haft áhrif á mínar skoðanir í þessum efnum? Ef svarið við þessari spurningu er neikvætt, þá er ekki um vel ígrundaðar málefnalegar skoðanir að ræða, heldur miklu fremur trúarbrögð. Margir grípa í þannig nýmóðins trúarbrögð til að finna einhverskonar fullvissu í heimi þar sem biblíutrúin er heldur betur á undanhaldi og gamli skeggjaði kallinn fullnægir ekki lengur þeirri ríku trúarþörf sem margt fólk hefur. :)
      20
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár