Ríkisvaldið geti mildað áhrif stýrivaxta á hag hinna lægst launuðu

Gylfi Zoega skrifar um áhrif vaxta, lífs­kjör og sjálf­stæði seðla­banka í nýj­ustu Vís­bend­ingu.

Ríkisvaldið geti mildað áhrif stýrivaxta á hag hinna lægst launuðu
Pró­fessor í hag­fræði Gylfi Zoega segir æski­legt að aðilar vinnu­mark­aðar, rík­is­stjórn og seðla­banki vinni saman að hjöðnun verð­bólgu til þess að vextir á næstu miss­erum verði lægri. Mynd: RÚV

„Áhrif pen­inga­stefn­unnar og einnig áhrif þess að verð­bólga hækki yfir mark­mið á skipt­ingu tekna og eigna gera það að verkum að Seðla­bank­inn og pen­inga­stefnan verður umdeild og sjálf­stæði hans jafn­vel stundum ógnað. Það er því mik­il­vægt að vel tak­ist með hag­stjórn þannig að áhrif á skipt­ingu tekna og eigna sé sem minnst þótt hún verði alltaf ein­hver.“

Þetta er meðal þess sem Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, segir í grein í nýj­ustu Vís­bend­ingu sem kom út í dag þar sem hann skrifar um vexti, lífs­kjör og sjálf­stæði seðla­banka. 

Gylfi segir að til þess að svo megi verða sé mik­il­vægt að rík­is­fjár­málum, sköttum og útgjöldum sé stýrt á þann hátt að vextir geti verið sem stöðug­astir. „Seðla­bank­inn ber einn ábyrgð á því að verð­bólga sé í mark­miði, ekki rík­is­stjórn, en hún getur hjálpað til með ýmsu móti. Í fyrsta lagi verður að leyfa svoköll­uðum sjálf­virkum sveiflu­jöfn­urum að hafa áhrif en þeir fel­ast í því að afgangur mynd­ast á rekstri rík­is­sjóðs í upp­sveiflu og halli í kreppu. Með þessu móti dregur rekstur rík­is­sjóðs úr hag­sveifl­unni. Í öðru lagi getur rík­is­vald mildað áhrif pen­inga­stefnu á hag hinna lægst laun­uðu með skatta­legum aðgerðum undir sér­stökum aðstæðum þegar sveiflur eru eða hafa verið mjög miklar. Það er einnig hægt að hafa sam­ráð við við­skipta­banka og líf­eyr­is­sjóði um mild­andi aðgerðir.“

Nú þegar end­ur­fjár­mögnun hund­ruð millj­arða óverð­tryggðra hús­næð­is­lána standi fyrir dyrum sé æski­legt að aðilar vinnu­mark­aðar, rík­is­stjórn og seðla­banki vinni saman að hjöðnun verð­bólgu til þess að vextir á næstu miss­erum verði lægri.

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið grein­ina í heild á Vís­bend­ing.is.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár