Sameiginlegur yfirdráttur heimila í fyrsta sinn yfir 100 milljarða króna

Umboðs­maður skuld­ara segir róð­ur­inn hjá fólki far­inn að þyngj­ast og þau hafi áhyggjur af stöð­unni. Í fyrsta sinn er sam­eig­in­legur yfir­dráttur heim­ila í land­inu kom­inn yfir 100 millj­arða króna. Yfir­drátt­ar­lán eru dýr­ustu lán sem ein­stak­lingar geta tekið hjá banka. Umboðs­maður skuld­ara hvetur fólk til að leita sér aðstoðar fyrr en seinna, áður en allt er komið í óefni.

Sameiginlegur yfirdráttur heimila í fyrsta sinn yfir 100 milljarða króna

Heimili lands­ins höfðu tekið 100,3 millj­arða króna að láni með yfir­drætti hjá stóru bönk­unum þremur, Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka, um síð­ustu mán­aða­mót. Það er í fyrsta sinn sem sam­eig­in­leg yfir­drátt­ar­heim­ild íslenskra heim­ila fer yfir 100 millj­arða króna markið. Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um banka­kerfið.

Yfir­drátt­ar­lán heim­ila hafa hækkað umtals­vert á síð­ustu árum. Þau voru 84,3 millj­arðar króna í lok árs 2021 og 91,9 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Aukn­ingin nemur því 19 pró­sentum á tutt­ugu mán­uðum og níu pró­sentum það sem af er ári. 

Róðurinn farinn að þyngjast

„Við finnum fyrir því að róð­ur­inn er að þyngj­ast,“ segir Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, en þangað leitar fólk sem er komið í mikla greiðslu­erf­ið­leika. Hún bendir á að fólk hafi oft ekki sam­band við emb­ættið fyrr en það er komið í þrot og því finni þau oft fyrir aukn­ingu nokkuð á eftir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár