Borgarstjóri vill Parísarhjól við Gömlu höfnina

Borg­ar­stjóri vill láta skoða hvort raun­hæft sé að koma upp Par­ís­ar­hjóli á Mið­bakk­anum. Hug­myndin er að þetta væri til­rauna­verk­efni til nokk­urra ára þar sem Par­ís­ar­hjólið stæði á sumrin. „Sérstök ástæða er til að setja hug­mynd um Par­ís­ar­hjól í far­veg,“ segir í til­lögu sem Dagur B. Egg­erts­son lagði fyrir borg­ar­ráð.

Í tillögunni segir mikilvægt að hugað verði að útfærslu almennings- og leiksvæða á Miðbakka samhliða uppsetningu Parísarhjóls, reynist hugmyndin raunhæf.
Í til­lög­unni segir mik­il­vægt að hugað verði að útfærslu almenn­ings- og leik­svæða á Miðbakka sam­hliða upp­setn­ingu Par­ís­ar­hjóls, reyn­ist hug­myndin raun­hæf. Mynd: Shutterstock

Borg­ar­ráð sam­þykkti á fundi sínum í dag til­lögu borg­ar­stjóra, Dags B. Egg­erts­sonar, um að borgar- og atvinnu­þró­un­arteymi á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara verði falið að kanna raun­hæfni hug­myndar um að Par­ís­ar­hjóli verði komið fyrir í til­rauna­skyni til nokk­urra ára á Miðbakka. 

Tillagan var lögð fram í sam­ræmi við hug­mynd í minn­is­blaði starfs­hóps um haf­tengda upp­lifun og úti­vist við úti­svæði Faxa­flóa­hafna. 

Þetta væri ekki í fyrsta skipti sem Par­ís­ar­hjól risi við Gömlu höfn­ina því hér á árum áður kom far­and-tívolí reglu­lega til lands­ins þar sem hægt var að fara í Par­ís­ar­hjól.

Hugsað á viðskiptalegum grunni

Í minn­is­blað­inu koma fram ýmiss konar hug­myndir að haf­tengdri upp­lifun og úti­vist við hafn­ar­svæðið sem borg­ar­stjóri mun fylgja eftir en „sér­stök ástæða er til að setja hug­mynd um Par­ís­ar­hjól í far­veg,“ segir í til­lögu Dags sem lögð var fyrir borg­ar­ráð.

Þá segir eðli­legt að verk­efnið verði hugsað á við­skipta­legum grunni, án fjár­út­láta borg­ar­innar eða hafn­ar­innar. Jafn­framt sé mik­il­vægt að hugað verði að útfærslu almenn­ings- og leik­svæða á Miðbakka sam­hliða upp­setn­ingu Par­ís­ar­hjóls, reyn­ist hug­myndin raun­hæf. 

Tekið er fram í til­lög­unni að ljóst sé að umtals­vert flækju­stig geti fylgt fram­kvæmd­inni og útfærslu hennar og ljóst að hafa þurfi víð­tækt sam­ráð um það og vinna nauð­syn­lega grein­ingu og vinnu sam­eig­in­lega af Reykja­vík­ur­borg og Faxa­flóa­höfnum. 

Fjölþætt haftengd upplifun

Starfs­hópur um haf­tengda upp­lifun og úti­vist við úti­svæði Faxa­flóa­hafna var falið að skil­greina tæki­færi borg­ar­innar til auk­innar upp­bygg­ingar á haf­tengdri upp­lifun og úti­vist við strand­lengj­una í Reykja­vík, meðal ann­ars í sam­ræmi við Aðal­skipu­lag Reykja­víkur, Græna planið, Meiri­hluta­sátt­mála 2022-2026 og lýð­heilsu­stefnu Reykja­víkur. 

Verk­efnið fólst í að greina og kort­leggja svæði sem henta fyrir ýmiss konar haf­tengda upp­lifun, hvort sem um er að ræða gufu­böð, heit böð, sjó­sund, sjó­sport eða ann­ars konar upp­lifun við hafið og strand­lengju Reykja­víkur. 

Áhyggjur af rekstrarkostnaði og landfyllingum

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hildur Björns­dóttir og Kjartan Magn­ús­son, létu bóka að þeir sam­þykktu málið á þeirri for­sendu að hvorki Reykja­vík­ur­borg né Faxa­flóa­hafnir bæru af því nokkurn kostnað, hvorki af fram­kvæmd­inni né rekstri Par­ís­ar­hjóls­ins, að um einka­fram­kvæmd yrði að ræða og rekst­ur­inn yrði í höndum einka­að­ila. 

„Par­ís­ar­hjól er skemmti­leg hug­mynd en er nauð­syn­legt að fara í fyll­ingar til að finna því stað?“
Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­ráðs­full­trúi Flokks fólks­ins

Fulltrúi Flokks fólks­ins í borg­ar­ráði, Kolbrún Bald­urs­dóttir, lét hins vegar bóka áhyggjur sínar af land­fyll­ingu. „Par­ís­ar­hjól er skemmti­leg hug­mynd en er nauð­syn­legt að fara í fyll­ingar til að finna því stað? Nóg er komið af eyði­legg­ingu á fjörum. Með land­fyll­ingu þar sem setja á afþrey­ing­ar­tæki mun verða að mal­bika stíga og gera göngu­leiðir til að hafa aðgengi fyrir alla,“ segir í bók­un­inni. 

Risaróla sem rólar í átt að hafi

Fjöl­margar aðrar hug­myndir er að finna í minn­is­blað­inu. Þar kom fram að nið­ur­stöður gerla­rann­sóknar Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur heim­ili sjó­böð norðan Hörpu sunnan við flot­bryggj­urnar. Því er lagt til að koma upp bryggju­böðum með útsýni yfir haf og fjöll, fljót­andi gufu­baði og risar­ólu sem rólar í átt að hafi. 

Við Suð­ur­bugt og Stein­hús­vör við Gömlu Höfnina er lagt til að setja göngu- og dval­ar­pall með­fram bryggju „sem eykur aðgengi allra og skapar góðar aðstæður til félags­legra sam­skipta, íhug­unar og hvíldar“ með mögu­leikum á fljót­andi úti­veit­inga­svæði og fljót­andi kaffi­húsi. 

Þegar kemur að Grand­anum er viðruð sú hug­mynd, meðal ann­arra, að byggja sund­laug/spa sem er opið að hafi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Af hverju er þetta kallað Parísarhjól ?
    En ekki Ferrishjól og eða Chicagohjól ?
    https://en.wikipedia.org/wiki/Ferris_wheel
    https://en.wikipedia.org/wiki/Ferris_Wheel_(1893)
    The original Ferris Wheel, sometimes also referred to as the Chicago Wheel, was designed and built by George Washington Gale Ferris Jr. as the centerpiece of the Midway at the 1893 World's Columbian Exposition in Chicago, Illinois.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár