Framkvæmdastjóri Vinstri grænna verður framkvæmdastjóri Landverndar

Björg Eva Erlends­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Hún hefur störf í októ­ber. Björg Eva hefur verið fram­kvæmda­stjóri Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs síðan árið 2016. Hún fetar hér í fót­spor Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, vara­for­manns VG, sem yfir­gaf stöðu sína sem fram­kvæmda­stjóri Land­verndar árið 2017 til að verða umhverf­is­ráð­herra utan þings.

Björg Eva hættir hjá VG eftir sjö ár sem framkvæmdastjóri hreyfingarinnar.
Björg Eva hættir hjá VG eftir sjö ár sem fram­kvæmda­stjóri hreyf­ing­ar­innar. Mynd: Aðsend

Björg Eva Erlends­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Hún hefur störf í októ­ber. Björg Eva hefur verið fram­kvæmda­stjóri Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs síðan árið 2016.

Hún hefur verið afkasta­mik­ill fram­kvæmda­stjóri flokks­ins og afar áber­andi í starfi hans síð­ustu árin, og sinnt hinum ýmsu trún­að­ar­störfum innan flokks­ins.

Í til­kynn­ingu frá Lands­vernd segir að stjórnin hafi samið við Björgu Evu, eftir að Auður Önnu- Magn­ús­dóttir sagði starfi sínu lausu í vor.

Björg Eva fetar hér í fót­spor Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, vara­for­manns VG, sem yfir­gaf stöðu sína sem fram­kvæmda­stjóri Land­verndar árið 2017 til að verða umhverf­is­ráð­herra utan þings. 

„Stjórn Land­verndar horfði til þess að Björg Eva hefur víð­tæka reynslu af rekstri félaga­sam­taka, reynslu úr fjöl­miðlum og úr alþjóða­starfi á nor­rænum vett­vangi. Nú síð­ast starf­aði hún sem fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna. Stjórnin metur einnig mik­ils að í ráðn­inga­ferl­inu sýndi Björg Eva eld­móð fyrir mál­efnum nátt­úru og umhverf­is­verndar, enda hefur hún tekið þátt í nátt­úru­vernd­ar­bar­áttu lengst af ævinnar,“ segir þar.

Björg Eva á fjöl­breyttan feril að baki sem frétta­maður og stjórn­andi í tveimur lönd­um. Lengst af  vann hún hjá Rík­is­út­varp­in­u.  Hún hefur lokið háskóla­prófi í íslensku, norsku og blaða­mennsku og stefnir að útskrift sem meist­ari í Norð­ur­landa­fræðum frá Háskóla Íslands.  Björg Eva hefur verið virk í umhverf­is­bar­áttu og félags­lífi.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Hallsson skrifaði
    Björg Eva er afburðakona. Til hamingju Landvernd og náttúruvernd á Íslandi.
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað hlaupa þeir burtu VG liðarnir , því þeir vita að engum dettur lengur í hug að eyða atkvæði sínu á VG.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár