Fjórfættu fjölskyldumeðlimirnir: „Hann hefur alltaf verið til staðar, elskað mig, aldrei dæmt mig eða farið neitt“

Hlutverk hunda í íslensku sam­fé­lagi hefur breyst tölu­vert hér­lendis síð­ustu ára­tugi. Aðeins eru tæp 40 ár liðin frá því hunda­bann var í Reykja­vík en nú eru fjór­fæt­ling­arnir tíðir gestir í fjöl­skyldu­mynda­tökum og Kringl­unni og breyta lífi fólks til hins betra.

<span>Fjórfættu fjölskyldumeðlimirnir:</span> „Hann hefur alltaf verið til staðar, elskað mig, aldrei dæmt mig eða farið neitt“
Hundar veita gleði Fenrir og Elísa eiga sterkt og traust sam­band. Hún, líkt og aðrir við­mæl­endur, segir hann ómet­an­legan hluta af fjöl­skyld­unni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fenrir er fimm ára Alaskan Malamute-hundur búsettur í Graf­ar­vogi með eig­anda sínum, Elísu Elín­ar­dóttur, og tveimur sonum hennar. Hann er hár í loft­inu, afar loð­inn og tekur vel á móti blaða­konu. Elísa segir Fenri mik­il­vægan hluta af fjöl­skyld­unni enda hefur hann reynst henni dýr­mætur stuðn­ingur á erf­iðum tímum. Fyrir fimm árum síðan sáu Elísa og barns­faðir hennar aug­lýst got. „Okkur hafði bæði alltaf langað í Husky eða ein­hvern sleða­hund. Við hugs­uðum bara: Ókei, fokk it, þeir verða stórir og miklir en prufum þetta! Af hverju ekki?“

Fenrir og ElísaHafa gengið í gegnum ýmis­legt saman.

„Við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað hann yrði stór,“ segir Elísa með bros á vör. „Svo hætti hann ekki að stækka eða borða, og við bara: Já, hvar ætli þetta endi eig­in­lega?“ Skýr­ingin á stærð­inni er sú að pabbi Fenris er hálfur risi en í dag er Fenrir heil 50 kíló. 

Klettur fjölskyldunnar

Elísa lýsir Fenri sem afar góðum en líka svo­lítið upp­á­tækja­sömum. „Hann tekur upp á alls konar en heilt yfir hefur gengið vel. Maður verður líka að átta sig á því að hann er sinn eigin karakter.“ Þegar Fenrir var lít­ill hvolpur fór Elísa að velta því fyrir sér hvað hund­ur­inn væri að hugsa. Hún tók upp á því að skrifa dag­bók­ar­færslur út frá sjón­ar­horni Fenris sem hún deildi í Facebook-hópnum Hunda­sam­fé­lagið. Færsl­urnar fengu góðar und­ir­tektir. „Fenrir gerir kannski eitt­hvert prakk­ara­strik, ég skrifa um það og deili því. Fólk sér það og hugsar, já! Þetta er það sem minn hundur gerir. Það tengir við þetta.“ Elísa gaf út bók með færsl­unum árið 2021 og vinnur nú að næstu bók sem hún stefnir á að klára fyrir jólin.

FenrirPrakk­ar­ast Elísu til mik­illar skemmt­unar.

„Fólk úti á götu þekkir okkur stundum og spyr hvort þetta sé Fenrir. Það er ótrú­lega gaman. Svo fæ ég oft sendar vina­beiðnir eða skila­boð þar sem fólk spyr hvort við getum hist með hundana okkar, mér finnst það geggjað því að þá næ ég líka að kynna þessa teg­und á Íslandi,“ segir Elísa.

Hvert er hlut­verk Fenris í þinni fjöl­skyldu?

„Hann er búinn að taka sér svo­lítið það bessa­leyfi að vera lög­reglu­stjór­inn. Ef ég er að ærsl­ast með strák­unum mínum, þá vill hann stilla til friðar. Þá geltir hann og ýlfrar, vill ekki læti hérna inni. Ef ég labba með hann úti seint á kvöldin og það kemur karl­maður á móti mér, þá alveg ...“ Elísa setur í brún­irnar. „Það er smá varn­ar­eðli í honum.“

„Fyrir mér hefur hann verið mín huggun og minn klettur, eins fárán­legt og það hljómar kannski fyrir fólki sem á ekki hund. En allt sem ég hef gengið í gegnum með honum ... hann hefur alltaf verið til staðar, elskað mig, aldrei dæmt mig eða farið neitt. Þannig að manni þykir ótrú­lega vænt um hann.“ Elísa segir syni sína dýrka Fenri. „Hann er klett­ur­inn okkar allra.“

„Fyrir mér hefur hann verið mín huggun og minn klettur,“
Elísa Elín­ar­dóttir

Óvæntur gleðigjafi

Hjónin Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir og Styrmir Kári eru ljós­mynd­arar með sinn fyrsta hvolp. „Mig hefur langað í hund í mörg ár,“ segir Styrmir en lýsir Heiðdísi sem meiri katta­mann­eskju. Fyrir tveimur árum lést köttur hjón­anna og í júní á þessu ári, eftir smá umhugs­un­ar­tíma, sagð­ist Heiðdís til­búin í að verða hunda­eig­andi. „Styrmir hafði sam­band við rækt­anda og bjóst við að það væri bið en hún var akkúrat með got og var ekki búin að finna heim­ili fyrir alla, þannig að við slógum til,“ segir Heiðdís. Aðeins tveimur vikum seinna var hinn átta vikna Stígur, skjanna­hvítur og mjúkur Samoyed, kom­inn til þeirra. 

Styrmir, Stígur og HeiðdísHafa verið þrjú saman í hálft ár og gengur vel.

Nafnið Stígur er lýsandi fyrir lífs­stíl hjón­anna sem fóru hring­inn í kringum landið með hvolp­inn nú í sumar. „Það þýðir sá sem ferð­ast, við vorum að reyna að miðla því að við ætlum að fara með hann um allt land,“ segir Heiðdís sposk, en þau hjónin eru brúð­kaups­ljós­mynd­arar og því oft á flakki um landið. „Við erum aðal­lega að mynda erlenda ferða­menn sem eru að gifta sig úti í nátt­úr­unni.“ Hund­ur­inn nýtur vin­sælda meðal brúð­hjóna sem sum hver biðja um að fá myndir með honum á stóra deg­inum.

Heiðdís og Styrmir lýsa hvolpa­líf­inu sem krefj­andi en gef­andi á sama tíma. „Maður hugsar ekki um neitt annað en piss, kúk og hvort hann sofi nóg. Fyrstu vik­urnar fara bara í að hugsa um hann og reyna að vinna með,“ segir Heiðdís. 

„Það finnst öllum hann svo sætur,“
Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Styrmir nýtur þess að þjálfa Stíg og leggur áherslu á umhverf­is­þjálfun um þessar mundir. „Við erum að klára hunda­nám­skeið núna í vik­unni,“ segir Styrmir sem bætir við: „Hann elskar mat þannig að það er auð­velt að stjórna honum. Maður er bara með mat í vas­anum. Það er eig­in­lega erf­ið­ast þegar við erum á ferða­manna­stöðum, það finnst öllum hann svo sætur,“ segir Heiðdís bros­andi.

Amma Voffa

Helga Þórunn Sig­urð­ar­dóttir ræktar teg­und­ina Border Terrier á Íslandi undir nafn­inu Fjalla­dals Border Terrier. Um þessar mundir eru fimm hundar á heim­ili Helgu en tveir af þeim eru hvolpar sem að öllum lík­indum fara á fram­tíð­ar­heim­ili sín bráðum. 

Helga og hvolp­arnirEftir langa bið eign­ast Helga loks­ins hund fyrir níu árum, í dag ræktar hún teg­und­ina Border Terrier.

„Mig lang­aði alltaf í hund og var alltaf vælandi um hund sem krakki en þá var nátt­úr­lega hunda­bann,“ segir Helga, sem eign­að­ist sinn fyrsta hund, Línu Langsokk, fyrir níu árum síðan. Lína er Border Terrier-hundur. „Þetta eru hundar sem eru rækt­aðir til minka- og refa­veiða á Íslandi. Þeir eru svo litlir að þeir kom­ast ofan í holu til að ná í kvik­indin,“ tekur rækt­and­inn fram en hún lýsir teg­und­inni sem mann­góðri og orku­mik­illi. 

Það var aldrei á dag­skránni að verða hunda­rækt­andi en eftir að Lína eign­að­ist tvo hvolpa var ekki aftur snúið. Úr got­inu kom Gjóska en hún er íslenskur, Norð­ur­landa- og alþjóð­legur meist­ari í hunda­sýn­ingum.

Nýverið sló Gjóska met og eign­að­ist tíu hvolpa í einu goti. „Við fórum í hvolpa­taln­ingu nokkrum dögum fyrir got. Þar eru hryggjar­súl­urnar taldar á röntgen­myndum. Ég man þegar að þau voru komin upp í sjö. Ég sagði bara: Ertu ekki að grín­ast?“ Helga hafði von­ast eftir fjórum, fimm eða jafn­vel sex hvolpum. „Þau héldu áfram að telja, átta, níu og svo kom tíundi!“ Þegar hvolp­arnir komu í heim­inn flutti Helga inn í her­bergi til Gjósku og hvolpanna þar sem hún vakti yfir þeim og sá til þess að öll væru þau vel nærð.

Hvert er hlut­verk hund­anna í þinni fjöl­skyldu? 

„Þeir eru rosa­legir gleði­gjafar og ég á tvö barna­börn. Strák­ur­inn er níu ára og honum finnst þetta æðis­legt. Svo á ég eina litla sem er tveggja og hálfs, hún kallar mig amma Voffa. Hún segir: Mamma kíkja amma voffa. Það er ótrú­lega sætt.“ 

Eðli hunda

Þór­hildur Bjartmarz þekkir vel til sögu hunda á Íslandi en hún er hunda­eig­andi, þjálf­ari og fyrrum for­maður Hunda­rækt­un­ar­fé­lags Íslands. Á heim­ili Þór­hildar eru yfir­leitt tveir, þrír eða jafn­vel fjórir hundar í senn. „Ég hef verið með alls konar hunda, Scheffer, Border Collie, Springer Spaniels, Border Terrier og fleiri.“ Þjálf­ar­inn segir það skemmti­legt hvað eðli hunda sé ólíkt eftir teg­undum en að einnig sé ein­stak­lings­bund­inn munur innan hvers kyns.

Þór­hildur BjartmarzÁ yfir­leitt tvo, þrjá eða fjóra hunda í senn.

Fyrir 12 árum síðan fékk Þór­hildur sér íslenskan fjár­hund. Hún lýsir þeim sem hraustum, vina­legum, góðum og traustum hundum í mátu­legri stærð. Þór­hildur minn­ist þess að hund­ur­inn hennar hafi séð hesta í um það bil kíló­metra fjar­lægð og byrjað að gelta að þeim og fylgj­ast með. Þegar Þór­hildur varð vitni að þess­ari hegðun vakn­aði áhugi hennar á að skilja eðli hunds­ins, en hún segir hlut­verk íslenskra fjár­hunda hér áður fyrr gjarnan hafa verið að reka úr túnum og smala hestum. 

Úr hundabanni í myndatökur

Á sjötta ára­tug síð­ustu aldar þurrk­að­ist íslenski fjár­hund­ur­inn nán­ast út vegna þess að mælst hafði verið til þess að honum yrði blandað við Border Collie. „Sá sem gerði sér fyrstur grein fyrir stöð­unni var enskur aðals­maður að nafni Mark Watson,“ segir Þór­hildur. Watson tók að safna saman íslenskum fjár­hundum um allt land til að bjarga teg­und­inni. „Þess vegna höldum við upp á dag íslenska fjár­hunds­ins á fæð­ing­ar­degi Mark Watson. Til að heiðra hans minn­ingu, hans störf og þeirra sem komu með honum. Hann fékk fólk í lið með sér til að sinna þessum störfum, til dæmis þáver­andi yfir­dýra­lækni, Sigríði Pét­urs­dóttur, og fleira fólk austur í sveit.“

Þótt tek­ist hafi að bjarga teg­und­inni og hún sé ein sú vin­sælasta í dag er ekki langt síðan að almenn­ingur taldi hunda eiga heima úti í sveit. „Árið 1924 var sett á hunda­bann í Reykja­vík og flestum kaup­stöðum lands­ins. Það var ekki fyrr en 1984 að það fékkst und­an­þága frá þessu banni með ströngum skil­yrðum. Þú þurftir að sækja um leyfi til að halda hund og borga til­tölu­lega háa upp­hæð fyrir það,“ segir Þór­hildur en hún átti sjálf hund á þessum tíma. „Maður var alltaf með hund­inn í bílnum og kenndi honum að leggj­ast niður, sér­stak­lega ef það sást til lög­reglu­bíls.“ Hún segir það hafa verið létti þegar bann­inu var aflétt þó að regl­urnar hafi enn verið strangar. 

Í dag er raun­veru­leik­inn allt annar eins og sjá má á við­horfum við­mæl­enda grein­ar­innar til hunda sinna. Þeir eru hluti af fjöl­skyld­unni og veita fólki gleði, til­gang og stuðn­ing. Þór­hildur hefur tekið eftir þess­ari breyt­ingu. „Þegar fjöl­skylda fer í mynda­töku þá fer hund­ur­inn með. Þetta var óhugs­andi fyrir ein­hverjum árum síðan en nú eru þeir partur af fjöl­skyld­unni.“

Hundavinir

Karen Björg Jóhanns­dóttirVerk­efna­stjóri Vina­verk­efnis Rauða kross­ins

Karen Björg Jóhanns­dóttir er verk­efna­stjóri Vina­verk­efnis hjá Rauða krossi Íslands. „Markmið Vina­verk­efna er í grunn­inn að styrkja og efla félags­lega þátt­töku þeirra sem upp­lifa félags­lega ein­angrun eða ein­mana­leika. Allir þátt­tak­endur í verk­efn­inu veita félags­skap, nær­veru og hlýju. Við förum vel yfir það í und­ir­bún­ingi með sjálf­boða­liðum hvað félags­leg ein­angrun er og hvernig hún birt­ist í sam­skiptum við gest­gjafa.“ Einn hluti Vina­verk­efn­is­ins kall­ast Hunda­vinir og var stofnað árið 2006. Verk­efnið nýtur mik­illa vin­sælda og byggir á norskri for­skrift.

Hund­ur­inn virkar sem eins konar milli­liður gest­gjafa, þess sem óskar eftir heim­sókn­inni, og sjálf­boða­liða. „Þeim sem eru ekki jafn sterk félags­lega finnst oft betra að geta haft hund­inn sem milli­lið. Þá get­urðu alltaf leitt sam­talið að hund­inum eða klappað honum.“

Sjálf­boða­liðiHeim­sóknir sjálf­boða­liða með hunda og göngut­úrar geta gert gæfumun fyrir gest­gjafa Hunda­vina.

„Heim­sóknin miðar við þann tíma sem hund­ur­inn treystir sér til að vera. Það getur verið allt frá 35 mín­útum upp í 45, jafn­vel klukku­tíma,“ segir Karen, sem bætir við að sjálf­boða­liðar læri að fylgj­ast vel með þeim merkjum sem hundar senda frá sér þegar þeir vilja fara heim. 

VinurÞessi hundur hefur tekið þátt í Hunda­vina-verk­efni Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn leitar ekki eftir sér­stökum hunda­teg­undum heldur er áherslan frekar lögð á gott geðslag. „Að hund­arnir séu félags­lyndir og for­vitnir um umhverfið sitt, jafnt og aðra ein­stak­linga. Við gerum líka kröfur um að þeir séu orðnir tveggja ára því að þá eru helstu hvolpa­lætin farin.“

Karen segir verk­efnið skila góðum árangri en mikil eft­ir­spurn er eftir sjálf­boða­liðum. „Gest­gjafar tala um að heim­sókn­irnar veiti þeim mikla hlýju. Svo eru sjálf­boða­lið­arnir mjög jákvæðir í garð verk­efn­is­ins og tala um að þau finni fyrir því að þetta skipti máli.“ 

„Svo eru sjálf­boða­lið­arnir mjög jákvæðir í garð verk­efn­is­ins og tala um að þau finni fyrir því að þetta skipti máli,“
Karen Björg Jóhanns­dóttir,
verk­efna­stjóri Vina­verk­efnis Rauða kross­ins

Hundar í Kringlunni

Hundar fá æ meira pláss innan sam­fé­lags­ins þótt þeir séu ekki boðnir vel­komnir alls staðar. Fyrir þremur árum opn­aði Kringlan dyr sínar fyrir smá­hundum alla sunnu­daga. Baldvina Snæ­laugs­dóttir, mark­aðs­stjóri Kringl­unnar, lýsir þess­ari nýj­ung sem til­rauna­verk­efni sem gekk vonum framar. „Í raun­inni kom þetta fyrst upp sem hug­mynd frá rekstr­ar­að­ila í hús­inu sem var með margar ungar konur í vinnu og tók eftir því að fleiri og fleiri voru að fá sér smá­hunda.“ Starfs­fólkið ræddi mikið hvers vegna það mætti ekki koma með hundana með sér í versl­un­ar­mið­stöð­ina. „Þetta var bara tekið fyrir og ákveðið að prófa,“ segir Baldvina. 

Smá­hundurVel greiddur smá­hundur í búð­ar­leið­angri með eig­anda sínum.

„Við köllum þetta smá­hunda­daga af því að það er skil­yrði að þú getir haldið á hund­inum þínum í rúllu­stig­anum og líka tekið hann í fangið, ef hund­ur­inn verður hræddur eða gestur í hús­inu. Þá viljum við að eig­and­inn geti tekið stjórn­ina.“ 

Baldvina segir við­brögð við­skipta­vina hafa verið jákvæð, sér í lagi vegna þess að heim­sókn­irnar séu góð umhverf­is­þjálfun fyrir hunda. „Sunnu­dagar eru oft­ast rólegri en laug­ar­dagar í hús­inu. Það lifnar yfir öllum og það brosa allir. Þetta er það sem við höfum fengið að heyra frá gestum. Þeim finnst gaman að sjá þessi krútt og finnst þetta skapa öðru­vísi stemn­ingu.“

„Við erum bara að taka þátt í þessu með breyttum tímum og nýrri hugsun hjá nýjum kyn­slóðum. Maður veit ekki neitt nema prófa og reynslan er það góð af þessu að við erum klár­lega að fara að halda áfram og hlúa betur að þessu.“

MíaFjór­fæt­lingur í lopa­peysu stillir sér upp fyrir mynda­vél­ina.

Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort fjölga eigi þeim dögum þar sem hundar eru leyfi­legir sem stendur. „Við tökum þetta reglu­lega fyrir á  mark­aðs­ráðs­fundum og förum yfir þetta. Við þurfum nátt­úr­lega að vinna þetta í góðu sam­starfi við alla aðila í hús­inu sem eru með rekstur.“ 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu