Rekstartap Alvotech var 25 milljarðar á fyrri hluta árs og laust fé helmingaðist

Alvotech bók­færði umtals­vert nýt­an­legt skatta­legt tap sem tekjur á fyrri hluta árs­ins. Félagið hefur ítrekað sótt sér fé frá lokum síð­asta árs en hratt gengur á lausafé þess. Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefur tví­vegis hafnað umsóknum Alvotech um mark­aðs­leyfi fyrir afar verð­mætt lyf, sem átti að skila félag­inu í hagnað fyrir árs­lok.

Rekstartap Alvotech var 25 milljarðar á fyrri hluta árs og laust fé helmingaðist
For­stjór­inn Róbert Wessman er bæði for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alvotech. Hann fer líka fyrir stærsta hlut­hafa félags­ins. Mynd: Nasdaq Iceland

Alvotech tap­aði 86,9 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða 11,4 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag, á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023. Inni í þeirri tölu er þó skatta­legt tap upp á 6,5 millj­arða króna sem félagið færir sem tekjur í árs­reikn­ingi sínum. Rekstr­ar­tap Alvotech á fyrri hluta árs­ins var 189,1 milljón Banda­ríkja­dala, eða 24,8 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Alvotech sem birtur var í vik­unni. 

Þegar Alvotech greindi frá upp­gjöri sínu fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins kom fram að félagið hefði tapað 276,2 millj­ónum Banda­ríkja­dala á því tíma­bili, sem var um 38 millj­arðar króna. Því mætti ætla, út frá því að tapið um mitt ár var miklu minna, að mik­ill við­snún­ingur hefði orðið í rekstr­inum og tekjur auk­ist langt umfram kostnað frá lokum mars og út júní. Málið er þó ekki svo ein­falt, þótt sölu­tekj­urnar hafi vissu­lega auk­ist frá sama tíma­bili í fyrra og voru alls 22,7 …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár