Rekstrartekjur Birtings jukust og rekstrartap dróst mikið saman

Búið er að afskrifa að öllu leyti selj­enda­lán sem veitt var nýjum eig­anda þegar útgáfu­fé­lagið Birt­ingur var seldur sum­arið 2020. Stöðu­gildum hjá félag­inu hefur fækkað úr 25 í átta á tveimur árum en rekstartap á síð­asta ári var 1,8 milljón króna.

Rekstrartekjur Birtings jukust og rekstrartap dróst mikið saman
Tímarit Birt­ingur gefur út þrjú tíma­rit: Hús og híbýli, Gest­gjafann og Vikuna. Mynd: Úr safni

Rekstr­ar­tekjur útgáfu­fé­lags­ins Birtings juk­ust um rúmar ell­efu millj­ónir króna í fyrra og voru 231 milljón króna. Auk þess fékk félagið 13,7 millj­ónir króna í fjöl­miðla­styrk úr rík­is­sjóði en það fékk engan slíkan á árinu 2020. Rekstr­ar­tap Birtings dróst veru­lega saman og var 1,8 millj­ónir króna en hafði verið 74,2 millj­ónir króna á árinu 2021 og 200 millj­ónir króna árið 2021.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Birtings vegna árs­ins 2022.

Samkvæmt honum varð 33,2 milljón króna hagn­aður af rekstr­inum en hann helg­ast að stærstu leyti af því að skuld upp á 44,5 millj­ónir króna var afskrifuð á árinu 2022. Sú afskrift var færð til tekna í reikn­ingi félags­ins. Alls voru 135,2 millj­ónir króna af skuldum Birtings afskrif­aðar á árinu 2021 og því er búið að afskrifa 179,7 millj­ónir króna á tveimur árum. Skuldin sem hefur verið afskrifuð var selj­enda­lán frá fyrr­ver­andi eig­anda Birt­ings sem veitt var þegar Sig­ríður Dagný …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár