Hamingja er keypt með knúsum

Gestir Kringl­unnar á venju­legu mánu­dags­eft­ir­mið­degi svör­uðu því hver væru þeirra mestu auð­æfi í líf­inu. Svörin gáfu skýra mynd af því sem skiptir flesta máli. Fjöl­skyldan tromp­aði allt, nema hjá einum við­mæl­enda sem sagði vinn­una og nýju íbúð­ina vera það dýr­mætasta.

Hamingja er keypt með knúsum

Ef þú þyrftir að svara spurn­ing­unni, hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu, hverju myndir þú svara? Hvert og eitt okkar leggur gild­is­mat á hvað það er sem skiptir okkur máli og ekki eru til rétt eða röng svör. Eru það börnin, fjöl­skyldan, heim­ilið, hund­ur­inn, heilsan, pen­ing­arnir eða eitt­hvað allt annað? 

Rann­sóknir benda til þess að hærri laun hald­ist í hendur við aukna ham­ingju, en bara upp að ákveðnu marki. Það virð­ist því vera til ákveð­inn þrösk­uldur á áhrifum pen­inga á vellíðan. Heim­ildin spurði fólk á förnum vegi hver væru þeirra mestu auð­æfi í líf­inu. Ekkert þeirra sagði pen­ingar né taldi að hægt væri að kaupa ham­ingju með pen­ingum. 

Lífsgæðakapphlaup ungmenna

Ragn­heiður Jóna Leirdal Aðal­steins­dóttir, 49 ára, segir ham­ingju vera eitt­hvað sem maður finnur í hjart­anu.

Ragn­heiður JónaSegir fjöl­skyld­una það dýr­mætasta.

Hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu?

Fjöl­skyldan, hún stendur mér næst. Börnin mín, for­eldrar, systk­ini og maki að sjálf­sögðu.

Heldurðu að það sé hægt að kaupa ham­ingju með pen­ingum?

Klárlega ekki, aldrei. 

Af hverju?

Þetta er bara eitt­hvað sem þú finnur í hjart­anu þínu, að þú getir ekki keypt gleð­ina og kær­leik­ann. Þú kaupir það ekki með pen­ingum. 

Finnst þér mikið lífs­gæða­kapp­hlaup á Íslandi?

Já, frekar mikið.

Hvernig birt­ist það?

Þar sem við erum hérna í Kringl­unni þá birt­ist það í því að unga fólkið okkar, sér­stak­lega, er að elt­ast við tísku­strauma og það sem áhrifa­stjörnur eru að aug­lýsa. 

Þarft að eiga fyrir reikningum

Mestu auð­æfi Helgu Þórs­dóttur, 54 ára, er sonur hennar. 

HelgaTelur ekki að hægt sé að kaupa ham­ingju.

Hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu?

Það er sonur minn því að hann auðgar líf mitt og auðgar heim­inn.

Heldurðu að það sé hægt að kaupa ham­ingju?

Nei, það held ég ekki.

Af hverju?

Vegna þess að ég held að þú getir haft það þægi­legra en ég held að þú getir ekki keypt þér ham­ingju. Rann­sóknir sýna líka fram á það að ham­ingjan eykst ef þú lifir þægi­legra, sem sagt átt þægi­lega mikið af pen­ingum. En ef þú átt meira en það, þá jafn­vel getur það orðið til þess að þú ert minna ham­ingju­samur. 

Þannig að þú þarft ekk­ert rosa mikið til að vera ham­ingju­samur?

Nei, en þú þarft að eiga fyrir reikn­ing­unum til þess að vera ham­ingju­samur. 

Finnst þér vera lífs­gæða­kapp­hlaup á Íslandi?

Já, það finnst mér. Skelfi­legt. 

Hvernig birt­ist það?

Það birt­ist í því að … til dæmis á sam­fé­lags­miðlum þar sem allir eru að sýna frá nýja sóf­anum sínum og nýja stóra, stóra sjón­varp­inu sínu og nýja stóra, stóra, stóra hús­inu. Og það sem er á Smartlandi þar sem Jón og Gunna eru að kaupa 200 millj­óna króna hús og svo­leiðis. Ég hugsa alltaf bara, hvaða fólk er þetta? 

Það þurfa allir allt

Einar Páll Bjarna­son, 79 ára, segir fjöl­skyld­una sína vera sér allt.

Einar PállFinnur fyrir lífs­gæða­kapp­hlaupi á Íslandi.

Hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu og af hverju?

Fjöl­skyldan. Af því að hún er mér bara allt. 

Heldurðu að það sé hægt að kaupa ham­ingju með pen­ingum? 

Nei, það held ég ekki. Þú verður að skapa þér hana á annan hátt. 

Finnst þér mikið lífs­gæða­kapp­hlaup á Íslandi?

Já, mjög mikið. 

Hvernig birt­ist það?

Ja, bara það þurfa allir að eiga allt og kaupa allt. 

Fyrsta íbúðin

Ólöf Ingi­björg Jóns­dóttir er 23 ára og nýbúin að kaupa sér sína fyrstu íbúð. 

ÓlöfEr þakk­lát fyrir vinn­una sína og nýju íbúð­ina.

Hvað er það dýr­mætasta í þínu lífi og af hverju?

Dýr­mætasta í mínu lífi er vinnan mín. Það er gott að hafa hana og svo líka var ég að eign­ast íbúð þannig að hún er líka svo dýr­mæt fyrir mig. 

Var það stórt skref að kaupa fyrstu íbúð­ina?

Já, rosa­lega.

Heldurðu að það sé hægt að kaupa ham­ingju með pen­ingum?

Það er bara ekki hægt. 

Af hverju?

Af því að fólk getur verið svo ein­hvern veg­inn ... það er bara hægt að kaupa hana með knúsi eða eitt­hvað svona. 

Dóttirin það besta

Kjartan Kjart­ans­son, 76 ára, og Þórunn Skjald­ar­dóttir, 65 ára, eru þakk­lát fyrir dóttur sína. 

Kjartan og ÞórunnÞakka fyrir dóttur sína.

Hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu?

Þórunn: Dóttir mín.

Af hverju?

Það gekk illa að fæða hana og ég kann alltaf meira og meira að þakka fyrir það að hún skyldi lifa af. 

En þín, Kjartan?

Það sama. Í sam­bandi við stelpuna. 

Hvað er stelpan gömul?

Þórunn: Hún er 43 ára. En það er sama, hún er samt alltaf litla barnið mitt. 

Haldið þið að pen­ingar geti keypt ham­ingju?

Bæði: Nei alls ekki.

Af hverju?

Þórunn: Mér hefur nú fund­ist eins og fólk sem á nógan pen­ing, að það sé ekki nógu ham­ingju­samt sko. Ég veit ekki út af hverju en það sem maður kann­ast við og sér, það er ekki alveg nógu ánægt með það sem það hefur. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár