Næst tekjuhæstur og skellir sér í skóla

Sveinn Ari Guð­jóns­son deilir öðru sæt­inu yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana með eig­in­konu sinni, Sólnýju, einni Vísis-systk­in­anna. Sonur skálds­ins úr Breið­dalnum hefur lifað og hrærst í salt­fiski síðan fyrir ferm­ingu en ætlar nú í skóla.

„Ég vil helst sem minnst um þetta segja allt,“ sagði Sveinn Ari Guð­jóns­son, annar tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn þetta árið, í sam­tali við Heim­ild­ina. Sveinn deilir raunar öðru sæt­inu með eig­in­konu sinni, Sólnýju, einu Páls­barn­anna í Grinda­vík sem kennd eru við fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Vísi. Hinar háu tekjur Sveins eru því ekki síst vegna 3,2 millj­arða króna fjár­magnstekna sem þau hjónin fengu í sinn hlut þegar Vísir var seldur. Sveinn og Sólný búa í Grinda­vík ásamt börnum sínum. Sveinn hefur starfað í fjölda ára hjá útgerð­inni Vísi og sinnt þar flestum störfum, nú síð­ast við mark­aðs- og sölu­mál. Lífið enda er og hefur að vissu leyti verið salt­fiskur hjá Sveini, frá því hann fór að stafla flöttum þorski í stæður heima á Breið­dals­vík fyrir ferm­ingu.

„Ég er búinn að vinna í fiski síðan ég var tólf ára og sé ekki fram á að geta eða vilja hætta …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár