Kjálkanes hagnaðist um 4,4 milljarða og á 28 milljarða í eigið fé

Fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar og aðila sem tengj­ast honum fjöl­skyldu­böndum er á meðal stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar og Sjóvá. Þá er félagið stærsti hlut­haf­inn í Norð­ur­böðum, sem eiga Jarð­böðin á Mývatni og Sjóböðin á Húsavík. Það borg­aði hlut­höfum sínum 850 millj­ónir króna í arð vegna síð­asta árs.

Kjálkanes hagnaðist um 4,4 milljarða og á 28 milljarða í eigið fé
Stjórn­ar­for­maður Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair og Samherja, sem var for­maður stjórnar Samtaka atvinnu­lífs­ins árum saman, er stjórn­ar­for­maður Kjálka­nes og á meðal eig­enda. Mynd: Samherji

Kjálka­nes, fjár­fest­inga­fé­lag með heim­il­is­festi á Grenivík í eigu sömu aðila og eiga útgerð­ina Gjögur, hagn­að­ist um 4,4 millj­arða króna í fyrra. Vegna þessa árang­urs lagði stjórn félags­ins til að 850 millj­ónir króna yrðu greiddar út í arð vegna árs­ins 2022 og eigið fé Kjálka­nes 28 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Félagið er nær skuld­laust og eig­in­fjár­hlut­fall þess er 99,93 pró­sent.

Félagið greiddi hlut­höfum sínum tvo millj­arða króna í arð í fyrra og því nema arð­greiðslur á tveimur árum næstum 2,9 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýlega birtum árs­reikn­ingi Kjálka­ness. 

Lang­verð­mætasta eign félags­ins er 16,06 pró­sent hlutur í Síld­ar­vinnsl­unni en Kjálka­nes er næst stærsti eig­andi hennar á eftir Samherja, sem á 30,06 pró­sent. 

Björgólfur stjórnarformaður

Á meðal hlut­hafa er Björgólfur Jóhanns­son, sem er meðal ann­ars fyrr­ver­andi for­stjóri Sam­herja og var um ára­bil for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, en aðrir hlut­hafar eru fólk sem teng­ist honum fjöl­skyldu­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Systk­ina­hóp­ur­inn á 8,67 pró­sent hlut hver en Björgólfur er stjórn­ar­for­maður Kjálka­ness. Stærstu ein­stöku eig­end­urnir eru hins vegar Ingi Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, og Anna Guð­munds­dótt­ir, sem eiga 22,54 pró­sent hlut hvor. Anna situr í stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar og Ingi er vara­maður í stjórn. 

Auk þess á Kjálka­nes 37,41 pró­sent hlut í Hrólfs­skeri, stærsta eig­anda trygg­inga­fé­lags­ins Sjó­vá með 15,65 pró­sent hlut. Stærsti eig­andi Hrólfs­skers er Kald­bakur, fjár­fest­inga­fé­lag Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Björgólfur er stjórn­ar­for­maður Sjó­vá. 

Þá á Kjálka­nes 36,38 pró­sent hlut í Norð­ur­böðum og er stærsti hlut­hafi þess. Á meðal eigna Norð­ur­baða er 44 pró­sent hlutur í Jarð­böð­unum í Mývatns­sveit og 35 pró­sent hlutur í Sjó­böð­unum á Húsavík. Björgólfur og Ingi sitja í stjórn Norð­ur­baða. 

Raunverulegt eigið fé sennilega miklu meira

Síld­ar­vinnslan, stærsta eign Kjálka­ness, var skráð á markað í maí í 2021. Þegar það gerð­ist seldi Kjálka­nes bréf í henni fyrir alls 17 millj­arða króna, en bók­færður sölu­hagn­aður var níu millj­arðar króna. Sú sala gjör­breytti stöðu félags­ins til hins betra og leiddi til þess að hagn­aður þess milli áranna 2020 og 2021 um 10,7 millj­arða króna. 

Miðað við útboðs­gengi var virði Síld­ar­vinnsl­unnar 101,3 millj­arðar króna við skrán­ingu. Það hefur hækkað gríð­ar­lega síðan þá, en við lok við­skipta í síð­ustu viku var félagið metið á tæp­lega 218 millj­arða króna. Það þýðir að hlutur Kjálka­nes í Síld­ar­vinnsl­unni er met­inn á um 35 millj­arða króna. Bókfært virði hans í árs­reikn­ingi er hins vegar 13,6 millj­arðar króna. Miðað við þetta þá er eigið fé Kjálka­nes van­metið um rúm­lega 20 millj­arða króna.

Þar verður þó að taka með í reikn­ing­inn að Síld­ar­vinnslan keypti útgerð­ina Vísi í Grinda­vík í fyrra á 31 millj­arð króna. Skömmu áður hafði félagið keypt 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár