Hafna hinsegin baráttu sem Kauphöllin hringir inn

Aðgerða­hóp­ur­inn Hinsegin heift hafnar í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hinsegin bar­áttu sem er „hringd inn af Kaup­höll­inni“ en full­trúar Nasdaq Iceland hringdu bjöllu Kaup­hall­ar­innar á regn­boga­mál­uðum Skóla­vörðu­stíg í upp­hafi Hinsegin daga síð­ast­lið­inn þriðju­dag. „Hinseg­in­vænt sam­fé­lag er and-kap­ít­al­ískt,“ segir í stefnu­yf­ir­lýs­ingu Hinsegin heiftar. Formaður Hinsegin daga seg­ist fagna starfi Hinsegin heiftar og að bar­áttan þurfi bæði á sjón­ar­miðum þeirra og fólks­ins á bak við Hinsegin daga að halda.

Hafna hinsegin baráttu sem Kauphöllin hringir inn
Kaup­höllin á regn­bog­anum Gunn­laugur ásamt Ragn­hildi Sverr­is­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa Lands­virkj­unar, Andra Þór Guð­munds­syni for­stjóra Ölgerð­ar­innar og Magnúsi Harð­ar­syni for­stjóra Kaup­hall­ar­innar Nasdaq. Á milli Ragn­hildar og Andra er bjalla Kaup­hall­ar­innar. Mynd: Nasdaq Iceland

Á annan tug fólks söfn­uð­ust saman á regn­boga­klæddum Skóla­vörðu­stíg á gráum þriðju­dags­morgni og fylgd­ust með Ragn­hildi Sverr­is­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­virkj­unar, og Andra Þór Guð­munds­syni, for­stjóra Ölgerð­ar­innar, halda í hvítt reipi sem hékk niður úr kólfi glit­papp­írs­skreyttrar Kaup­hall­ar­bjöllu, bjöllu sem venju­lega er notuð til þess að hringja inn við­skipti með hluta­bréf. 

Andri tók af skarið og tog­aði í reipið, Ragn­hildur reyndi að fylgja og horfði svo­lítið hissa fram fyrir sig. Það klingdi í bjöll­unni. 

„Vúhú,“ sagði skæl­bros­andi Andri. 

„Þú hefur gert þetta áður,“ svar­aði Ragn­hildur. 

Nasdaq á meðal stuðningsaðila

Rúmri viku áður hafði Bleiki hnef­inn, „aðgerða­hópur rót­tækra kyn­vill­inga“, verið end­ur­vak­inn undir nýju nafni: Hinsegin heift. Lítið hafði heyrst frá hópnum á sam­fé­lags­miðlum síðan árið 2018. Hópurinn hafn­aði í svoköll­uðum man­i­festó hinsegin bar­áttu sem er „hringd inn af Kaup­höll­inni“.

Gunn­laugur Bragi Björns­son, for­maður Hinsegin daga, seg­ist skilja þessa gagn­rýni Hinsegin heiftar en að bjöllu­hring­ingin hafi …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár