„Krabbamein kemur öllum við“

Rúmlega 150 kíló­metra hlaup er framundan hjá ungum konum sem allar hafa greinst með krabba­mein á síð­ustu árum. Þær skipta kíló­metr­unum á milli sín og safna áheitum fyrir end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöð­ina Ljósið. Sólveig Ása Tryggva­dóttir, ein ljósa­systra, segir krabba­mein stærra en bara ein­stak­ling­ur­inn sem fær það og þar af leið­andi komi það öllum við.

„Krabbamein kemur öllum við“
Ljósa­systur Hlaupa rúm­lega 150 kíló­metra sín á milli í Reykja­vik­ur­mara­þon­inu.

Sextán konur sem allar eiga það sam­eig­in­legt að hafa greinst með krabba­mein snemma á lífs­leið­inni ætla að hlaupa rúm­lega 150 kíló­metra sín á milli í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Þær hlaupa til styrktar Ljóssins, end­ur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöðvar, þar sem þær kynnt­ust og sóttu dýr­mætan stuðn­ing hvor ann­arrar. Markmið ungu kvenn­anna, sem allar eru undir 45 ára, er að safna 2,5 millj­ónum króna.

Sólveig ÁsaHleypur 10 kíló­metra næstu helgi.

Sólveig Ása Tryggva­dóttir er ein þeirra. „Ég fór fyrst í Ljósið í lok ágúst á síð­asta ári eftir grein­ingu og mér var tekið ótrú­lega vel.“ Hún lýsir staðnum sem heim­il­is­legum og segir starfs­fólkið allt bera hjartað á réttum stað. Þar sem hópa- og ald­ur­skipt er í Ljósinu fór Sólveig inn í hóp kvenna á aldr­inum 18-45 ára. Þær náðu vel saman og segir Sólveig vina­böndin hafa styrkst sér­stak­lega í leir­gerð. 

Stuðningurinn mikilvægur

„Það að grein­ast með krabba­mein þegar maður er á þessum aldri er svaka­legt og það eru fáir sem hafa upp­lifað það. Þess vegna er mik­il­vægt að geta deilt reynslu sinni og hafa grund­völl til að geta hitt konur í sömu stöðu,“ segir Sólveig. Konurnar ræða ýmis­legt er við­kemur þessu lífs­breyt­andi ferli sín á milli, til dæmis lyfja­með­ferð­irnar, áhrifin á fjöl­skyld­una og hvenær hár byrjar að vaxa aftur. „Eins og í öllu erf­iðu sem þú tekur þér fyrir hendur, þá munar um það að hafa ein­hvern sem skilur og sann­ar­lega veit hvað þú ert að ganga í gegnum.“ 

„Eins og í öllu erf­iðu sem þú tekur þér fyrir hendur, þá munar um það að hafa ein­hvern sem skilur og sann­ar­lega veit hvað þú ert að ganga í gegnum.“
Sólveig Ása Tryggva­dóttir

Sjálf er Sólveig í end­ur­hæf­ingu og við­halds­með­ferð sem stendur. „Ég er búin með stóru lyfja­með­ferð­ina og er í upp­bygg­ingu núna.“ Konurnar eru allar á mis­mun­andi stöðum í ferl­inu og eru því með ólík hlaupa­mark­mið. Flestar ætla 10 kíló­metra, sumar á undir klukku­stund á meðan aðrar ætla að ganga. Þó að Ljósa­systur vilji safna sem mestu fyrir Ljósið að þá fannst þeim 2,5 millj­ónir raun­hæf upp­hæð, en þær vildu gefa til baka og styrkja starf­semi mið­stöðv­ar­innar. Fyrir aðeins þremur árum síðan fór Ljósið á fjár­lög sem dekka launa­kostnað fastra starfs­manna en ann­ars er mið­stöðin rekin á styrkjum og fram­lögum ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. 

Jafn­ingja­stuðn­ingurSólveig segir það mik­il­vægt að geta sótt í stuðn­ing og hvatn­ingu Ljósa­systra sinna.

„Ef ég tala fyrir mig, með fullri virð­ingu fyrir lyfjum og læknum, að þá er helm­ingur bata­ferlis míns Ljósinu að þakka. Það er gríð­ar­leg and­leg áskorun að verða svona veik, í raun­inni er hún til jafns við lík­am­legu veik­indin. Þess vegna er þessi stuðn­ingur svo mik­il­vægur,“ segir Sólveig.

Aðstand­endur þeirra sem grein­ast með krabba­mein geta líka sótt þjón­ustu í Ljósinu, til dæmis með því að fara á aðstand­enda­nám­skeið. „Það er mjög mik­il­vægt vegna þess að krabba­mein kemur öllum við. Krabba­mein er stórt, það er meira en ein­stak­ling­ur­inn sem fær það.“

„Krabba­mein er stórt, það er meira en ein­stak­ling­ur­inn sem fær það.“
Sólveig Ása Tryggva­dóttir

Ljósa­systur eru spenntar að takast á við hlaupa áskor­un­ina næstu helgi og hvetja hvor aðra dyggi­lega áfram. „Ég hef einu sinni hlaupið sjálf en aldrei svona í hópi. Það er hrika­lega gaman og við erum fullar af metn­aði,“ segir Sólveig og brosir. Með henni munu Anna Lilja Gunn­ars­dóttir, Agnes Ferró, Aníta Sól Jóns­dóttir, Bára O'brien Ragn­hild­ar­dóttir, Dagbjört Eilíf Bald­vins­dóttir, Erna Elín­björg Láru Skúla­dóttir, Helga Ingi­björg Guð­jóns­dóttir, Hulda Halldóra Tryggva­dóttir, Hulda Jóhanns­dóttir, Hrafn­hildur Ein­ars­dóttir og Krist­jana Kona Trausta­dóttir hlaupa. Þær hafa þegar safnað 2.458.500 millj­ónum króna. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár