„Hlutfallið milli fasteignaverðs og launa hefur sjaldan verið hærra“

Sölutími íbúða eru rúmir 50 dagar sam­kvæmt Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun. Tryggvi Már Ingv­ars­son fram­kvæmda­stjóri fast­eigna greinir frá því hve aðgengi­legur hús­næð­is­mark­að­ur­inn er fyrstu kaup­endum en hlut­fall þeirra hefur dreg­ist saman.

„Hlutfallið milli fasteignaverðs og launa hefur sjaldan verið hærra“
Hús­næð­is­mark­að­ur­inn Hefur kólnað vegna stýri­vaxta­hækk­ana Seðla­banka Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Hús­næð­is­mark­að­ur­inn hreyf­ist hægt þessa dag­ana. Stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands hafa kælt mark­að­inn og verð­bólgan litar tæki­færi fólks til fast­eigna­kaupa. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir Tryggvi Már Ingv­ars­son, fram­kvæmd­ar­stjóri fast­eigna hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, að meðal sölu­tími íbúða sé í dag rétt rúm­lega 50 dagar, frá því að fyrsta fast­eigna­aug­lýs­ing er birt og þangað til kaup­samn­ingur er und­ir­rit­aður. 

SölutímiMeðal sölu­tími íbúða er í kringum 50 daga.

Erfitt að kaupa

Tryggvi Már Ingv­ars­sonSegir hlut­fallið milli fast­eigna­verðs og launa hefur sjaldan verið hærra.

Staða fyrstu kaup­enda á mark­aði getur reynst strembin um þessar mundir enda hefur virði þess sparn­aðar sem ungt fólk hefur lagt fyrir minnkað tölu­vert síð­ustu ár. Aðspurður hvað þurfi að breyt­ast til að fyrstu kaup­endur eigi auð­veld­ara með að eign­ast fast­eign segir Tryggi Már: „Fyrstu kaup­endur eru lítið frá­brugðnir öðrum fast­eigna­kaup­endum þegar kemur að því hversu auð­velt það er að kaupa sér fast­eign. Hlut­fallið milli fast­eigna­verðs og launa hefur sjaldan verið hærra en það er núna sem gerir fast­eigna­kaup yfir höfuð erfið, en sér­stak­lega fyrir þá sem ekki hefur tek­ist að kom­ast inn á mark­að­inn. Lækkun á þessu hlut­falli í takt við lækkun vaxta myndi auð­velda fólki fast­eigna­kaup.“

Hlutfall fyrstu kaup­enda jókst á árunum 2016-2020 en hefur nú dreg­ist saman og stendur í rúmum 26 pró­sentum.

Fyrstu kaup­endurFækkað hefur í hópi fyrstu kaup­enda síð­ast­liðin miss­eri.

„Aug­ljós­asta leiðin til að lækka fast­eigna­verð er að auka fram­boð fast­eigna sem myndi byrja á því að fylgja ramma­samn­ingi sem mið­ast að því að byggja 4000 íbúðir á ári næstu fimm árin. Eins og staðan er núna virð­ist þetta mark­mið ekki munu nást á þessu né næsta ári sem bendir ein­ungis til frek­ari skorts á hús­næði og þar með meiri erf­ið­leikum fólks að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn.“

Áhrif stýrivaxtahækkana

Til þess að gera hús­næð­is­mark­að­inn aðgengi­legri fyrir lág­tekju­fólk býður HMS upp á hlut­deild­ar­lán en þeim er ætlað að auð­velda fyrstu kaup­endum að koma sér inn á fast­eigna­markað. Þá þarf kaup­andi að eiga lægri upp­hæð til útborg­unar á íbúð en án hlut­deild­ar­láns­ins. Ein­stak­lingur getur með því átt aðeins 5% af íbúð­inni sem hún kaupir í, og sam­tals verið með lán fyrir 95%. Á vef­síðu HMS segir: „Engir vextir eða afborg­anir eru af hlut­deild­ar­láni en lán­taki end­ur­greiðir lánið þegar hann selur eign­ina eða við lok láns­tíma. Hlut­deild­ar­lánið er veitt til 10 ára en heim­ilt er að fram­lengja láns­tím­ann um fimm ár í senn, mest til 25 ára alls. Hlut­deild­ar­lánið fylgir verð­breyt­ingu eign­ar­innar og hækkar því og lækkar í sam­ræmi við það.“

Næsta stýri­vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands verður til­kynnt 23. ágúst. „Frá því í maí 2021 þegar Seðla­bank­inn byrj­aði að hækka stýri­vexti höfum við ekki bara séð fækkun kaup­samn­inga heldur höfum við séð stöðuga lækkun í hlut­falli fyrstu kaup­enda eins og sjá má í graf­inu að ofan. Það væri því alls ekki skrítið að sjá enn frek­ari fækkun kaup­samn­inga og enn lægra hlut­fall fyrstu kaup­enda ef að stýri­vextir halda áfram að hækka,“ segir Tryggvi Már. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár