Eigandi Tottenham og fyrrverandi eigandi í MP banka ákærður

Breski millj­arða­mær­ing­ur­inn Joe Lewis, einn af aðal­eig­endum knatt­spyrnu­fé­lags­ins Totten­ham, sem keypti um 10% hlut í MP banka eftir fjár­mála­hrunið, hefur verið ákærður fyrir inn­herj­a­við­skipti.

Eigandi Tottenham og fyrrverandi eigandi í MP banka ákærður
Lúxus Joe Lewis á þessa 98 metra löngu snekkju. Hún sást fyrir utan ítölsku borg­ina Napólí fyrr í þessum mán­uði. Inni í snekkj­unni er meðal ann­ars tenn­is­völlur en hún er metin á um 250 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða það sem nemur um 32 millj­örðum íslenskra króna. Mynd: Shutterstock

Sak­sókn­arar í New York fylki í Banda­ríkj­unum hafa ákært breska millj­arða­mær­ing­inn Joe Lewis fyrir að hafa sent óop­in­berar upp­lýs­ingar til vina sinna og sam­starfs­manna á árunum 2019 til 2021. Þeirra á meðal voru elskendur hins 86 ára gamla Lewis og sam­starfs­menn. 

Það má segja að Lewis þessi sé Íslands­vinur, en hann keypti tæpan 10% hlut í MP banka árið 2011 og vakti það furðu. 

Í við­tali við Stöð tvö það sama ár var Sigurður Atli Jónsson, þáver­andi for­stjóri MP banka, spurður um það hvers vegna Lewis, og fleiri erlendir auð­menn, hefðu keypt í bank­anum. 

„Þetta er eig­in­lega bara góð spurn­ing og maður veltir þessu fyrir sér sjálfur,“ sagði Sigurður Atli. 

MP banki sam­ein­að­ist fjár­fest­inga­bank­anum Straumi árið 2015. Síðar sama ár varð Kvika til úr bönk­unum tveimur en Lewis á ekki hlut í Kviku. 

„Ekkert af þessu var nauðsynlegt. Joe Lewis var ríkur maður“

Sak­sókn­arar í New York segja Lewis hafa brotið lög með því að umb­una starfs­mönnum sínum með inn­herj­a­upp­lýs­ingum og fyrir að hafa gefið vinum sínum og elskendum slíkar upp­lýs­ingar að gjöf. 

„Þetta er svindl og gengur gegn lögum,“ sagði sak­sókn­ar­inn Damian Williams. 

„Við höldum því fram að Joe Lewis hafi árum saman mis­notað aðgang sinn að stjórn­ar­fundum fyr­ir­ækja og ítrekað veitt elskendum sínum, aðstoð­ar­mönnum, flug­mönnum og vinum sínum inn­herj­a­upp­lýs­ingar. Ekkert af þessu var nauð­syn­legt. Joe Lewis var ríkur maður.“

Tottenham krúnudjásnið 

David Zornow, lög­maður Lewis, segir að sak­sókn­ar­arnir hafi gert sví­virði­leg mis­tök með því að kæra Lewis. Hann er búsettur á Bahama­eyjum og segir Zornow að Lewis hafi af fúsum og frjálsum vilja ferð­ast til Banda­ríkj­anna til þess að bregð­ast við ákær­unum. 

Lewis er eig­andi félags­ins Tavistock Group, gríð­ar­stórs vefs fyr­ir­tækja í 13 löndum. Á meðal krúnu­djásna Tavistock er meiri­hluti í breska úrvals­deild­ar­lið­inu Totten­ham. 

Liðið sendi frá sér til­kynn­ingu í dag og sagði mál Lewis ekki tengj­ast lið­inu með neinum hætti. 

Lewis efn­að­ist á gjald­eyr­is­við­skiptum sem hann stóð í ára­tugum saman. Bloomberg telur eignir hans virði ríf­lega 6,5 millj­arða doll­ara.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár