„Ætli það fari ekki hálf ævin í það“ að safna upp í starfslokagreiðslu Birnu

Fólk á förnum vegi í Mið­borg­inni og Vest­ur­bænum svar­aði því hve langan tíma það yrði að safna 60 milljón krónum. Íslands­banki greindi frá því í síð­ustu viku að kostn­aður við starfs­lok fyrrum banka­stjóra bank­ans, Birnu Ein­ars­dóttur, væri 56,6 millj­ónir króna.

„Ætli það fari ekki hálf ævin í það“ að safna upp í starfslokagreiðslu Birnu
Ólíkir ein­stak­lingar Svöruðu því hve lengi þau væru að safna 60 millj­ónum króna.

Fyrrum banka­stjóri Íslands­banka, Birna Ein­ars­dóttir, fær 56,6 millj­ónir í kjöl­far upp­sagnar sinnar vegna lög­brota við sölu bank­ans. Íslands­banki greindi frá því í síð­ustu viku að Birna fengi að með­al­tali 4,7 millj­ónir á mán­uði í laun. Árið 2022 voru meðal mán­að­ar­laun fólks í fullu starfi 871 þús­und krónur sam­kvæmt Hagstofu Íslands. Það eru tæp­lega 10,5 millj­ónir á ári. Birna fékk 59,8 millj­ónir á síð­asta ári fyrir störf sín. 

Heim­ildin spurði fólk í Mið­borg­inni og í Vesturbæ Reykja­víkur við hvað það starf­aði og hve lengi það yrði að safna 60 millj­ónum króna. Jónína Ingi­björg Garð­ars­dóttir hefur nýhafið störf sem sjálf­stæður leigu­bíls­stjóri. 

Leigu­bíls­stjóriVæri nokkur ár að safna 60 millj­ónum.

Hvað værir þú lengi að safna þér 60 millj­ónum?

Veistu það, ég er svo nýbyrjuð að ég hef bara ekki hug­mynd um það. 

Nokkur ár kannski?

Já alveg örugg­lega, nokkur ár. 

Ertu búin að fylgj­ast mikið með Íslands­banka­mál­inu í fréttum?

Ég horfi ekki á fréttir. 

Af hverju?

Bara þung­lyndi.

Kominn með 60 milljónir

Sigurður Þor­steins­son fyrrum knatt­spyrnu­þjálf­ari seg­ist vilja jöfnuð á Íslandi. Hins vegar geti allir náð mark­miðum sínum með því að hjálpa öðrum.

ÞjálfariSegist geta eign­ast 60 millj­ónir á einni viku.

Hvað gerir þú Sigurður?

Ég er þjálf­ari.

Hvað ertu að þjálfa?

Ég er að þjálfa fyr­ir­tæki en var knatt­spyrnu­þjálf­ari.

Hvað held­urðu að þú yrðir lengi að safna 60 millj­ónum?

Ég byrj­aði í síð­ustu viku og ég er kom­inn með 60 millj­ónir í dag.

Millj­ónir?

Já.

Þannig að þetta er upp­hæð sem þú getur auð­veld­lega safnað í þínu lífi?

Zig Ziglar skrif­aði bók í Banda­ríkj­unum sem heitir Sjáumst á toppnum. Ég vil nátt­úru­lega hafa ákveð­inn jöfnuð í þjóð­fé­lag­inu... en þú getur sann­ar­lega náð öllum mark­miðum í líf­inu ef þú hjálpar nægi­lega mikið af öðru fólki. Því miður eru sumir fjöl­miðlar að grafa undan öllu sem heitir frum­kvæði og svo fram­vegis. Ég vann í Austur-Þýska­landi og sá þá hvernig komm­ún­ism­inn virkar. Og ég var komm­ún­isti, ég var Mao-isti, og svo las ég Frelsið eftir John Stuart Mill og þá fór ég að hafa efa­semdir. Síðan sé ég ein­hverja sem eru sós­í­alistar í dag og þá spyr ég hvað gerðu þeir áður en þeir voru sós­í­alistar? Voru þeir með blöð? Þá spyr ég hvernig komu þið fram við starfs­menn­ina? Ef þeir koma ekki vel fram við starfs­menn­ina þá verða menn ekki forrystu­menn sós­í­alista á Íslandi. Forseti Frakk­lands gerir svo­leiðis hluti, ég held við þurfum ekki... Ísland verður ekki betra af því. 

Ekki raunhæft

List­málar­inn Þrándur Þór­ar­ins­son spáir því að hálf ævin hans færi í að safna 60 millj­ónum. 

List­mál­ariVæri hálfa ævina að safna 60 millj­ónum.

Hvað held­urðu að þú værir lengi að safna 60 millj­ónum?

Ætli það fari ekki svona hálf ævin í það, eitt­hvað svo­leiðis. Ég veit það ekki. Það er ekki eitt­hvað sem væri raun­hæft fyrir mig eða fólk sem ég þekki.

Fylgistu mikið með fréttum?

Já svona, jájá eitt­hvað.

Ertu búinn að fylgj­ast mikið með Íslands­banka­mál­inu?

Nei, það hefur farið fram­hjá mér. Er eitt­hvað splunku­nýtt núna?

Ekki lagst yfir þetta

Krist­jana Ein­ars­dóttir hefur ekki fylgst mikið með Íslands­banka­mál­inu.

Sölu­full­trúiGiskar á að hún væri alla ævina að safna.

Við hvað starfar þú?

Ég er sölu­full­trúi hjá Kalla K. 

Hvað held­urðu að þú værir lengi að safna 60 millj­ónum?

Örugg­lega alla ævi. 

Fylgistu mikið með fréttum?

Já, alla­veg­ana eitt­hvað.

Hefuru fylgst með Íslands­banka­mál­inu og hef­urðu ein­hverja skoðun á því?

Nei, ég hef ekki lagst yfir það. Nei.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár