Búið að opna að gosstöðvunum

Opnað hefur verið um Mera­dala­leið að gos­s­töðv­unum við Litla Hrút. Reykur vegna gróð­ur­elda og gasmengun olli því í morgun að ákveðið var að hafa lokað fram yfir hádegi.

Búið að opna að gosstöðvunum
Mengun Gasmengun berst nú frá gos­s­töðv­unum yfir göngu­leiðir að þeim.

Búið er að opna göngu­leið um Meradali upp að gos­s­töðv­unum við Litla Hrút. Sú ákvörðun var tekin nú um eitt leytið en í morgun var ákveðið að halda leið­inni lok­aðri fram yfir hádegi. 

Fréttin hefur verið upp­færð. Sjá má upp­haf­lega frétt hér að neðan.

Áfram verður lokað fyrir ferðir að gos­s­töðv­unum við Litla Hrút, í það minnsta fram yfir hádegi í dag. Tekin var ákvörðun um þetta á fundi við­bragðs­að­ila nú í morgun. Staðan verður end­ur­metin klukkan eitt í dag.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum kemur fram að reykur frá gróð­ur­eldum ber­ist nú yfir göngu­leið­ina að gos­s­töðv­unum og af þeim sökum sé ekki hægt að tryggja öryggi þeirra sem fari inn á svæðið. Unnið er að því að slökkva gróð­ur­eldana norð­austan við Keili í átt að útsýn­is­stað að gos­inu. Þyrla land­helg­is­gæsl­unnar aðstoð­aði við slökkvi­störf um helg­ina og not­að­ist við slökkvi­skjólu, svo­kall­aðan bamba, við þau störf. Þyrlan mun áfram taka þátt í slökkvi­starf­inu í dag.

Lokað var fyrir ferðir að gos­s­töðv­unum síð­ast­lið­innn fimmtu­dag og hefur verið lokað þangað síðan. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að fólk hafi lagt af stað að gos­inu og í nótt sem leið þurftu björg­un­ar­sveitir að aðstoða og leita að göngu­mönnum. Kona sem leitað var að í nótt fannst á þriðja tím­anum og karl­maður sem einnig var leitað að fannst á sjötta tím­anum á sævð­inu.

Búast má við að gasmeng­unar verði vart á Suð­ur­strand­ar­vegi í dag, sem og á göngu­leiðum að gos­s­töðv­unum en norðan og norð­vestan átt er á svæð­inu og berst meng­unin því til suð­urs. Vindaspá fyrir dag­inn gerir ráð fyrir 5 til 8 metrum á sek­úndu og bætir heldur í vind á síð­degis á morgun en lægir svo seint annað kvöld.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár