Harmar að hafa sent fjölmiðlum kennitölu þolanda heimilisofbeldis

Hér­aðs­dómur Reykja­ness til­kynnti í morgun um örygg­is­brest til Per­sónu­verndar eftir að blaða­maður vakti athygli á því að hann hafði fengið ákæru­skjal í við­kvæmu saka­máli þar sem kennitala brota­þola hafði ekki verið útmáð. Ekki er vitað til að sam­bæri­legt atvik hafi komið upp áður hjá dóm­stólnum en verk­lags­reglur verða nú end­ur­skoð­aðar. Per­sónu­vernd mun þó ekki taka málið til skoð­unar þar sem það er utan valds­viðs hennar.

Mistök
Mistök Starfs­fólk dóm­stóls­ins hafði sam­band við rétt­ar­gæslu­mann brota­þola í morgun og upp­lýsti um mis­tökin.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur til­kynnt örygg­is­brest til Per­sónu­verndar eftir að dóm­stóll­inn sendi fjöl­miðlum afrit af ákæru í afar við­kvæmu máli án þess að afmá per­sónu­upp­lýs­ingar um brota­þola. Þá hefur dóm­stóla­sýslan einnig verið upp­lýst um atvikið.

„Haft var sam­band við rétt­ar­gæslu­mann brota­þola strax í morgun og hún upp­lýst um atvikið,“ segir í svari skrif­stofu­stjóra dóm­stóls­ins til Heim­ild­ar­innar vegna máls­ins.

Í lífshættu eftir kynferðisofbeldi og árás

Dóms­málið sem um ræðir er eitt alvar­leg­asta heim­il­is­of­beld­is­mál sem hefur komið inn á borð lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum og var um tíma rann­sakað sem til­raun til mann­dráps en konan var í lífs­hættu eftir síð­ustu árás­ina.

Í kjöl­far skoð­unar á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja var hún flutt á Land­spít­al­ann í Reykja­vík til að fram­kvæma á henni bráða­að­gerð vegna alvar­legra inn­vortis áverka. Samkvæmt sér­fræð­ingum sem fram­kvæmdu bráða­að­gerð­ina voru áverkar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hver ber ábyrgð á þessari ósvinnu ?

    Það virðist hluti af íslenskri menningu að enginn beri ábyrgð !!!!

    Þess vegna viðgengst ruglið endalaust.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár