Hólma­drangur Húsnæði rækju­vinnsl­unar er í elsta hluta Hólma­víkur. Óljóst er hvaða hlut­verk hús­næðið mun fá í fram­tíð­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lífið heldur áfram þótt rækjuvinnslan loki

Bjart­sýni, fremur en böl­móð, mátti heyra á íbúum Hólma­víkur þegar Heim­ildin hélt þangað fyrir skemmstu til að ræða við fólk um lokun rækju­vinnslu Hólma­drangs, sem hafði verið fastur punktur í atvinnu­líf­inu á Ströndum ára­tugum saman.

Þegar Þorgeir Pálsson, sveit­ar­stjóri og odd­viti Stranda­byggðar, ræddi um erf­iða rekstr­ar­stöðu rækju­vinnsl­unnar Hólma­drangs við frétta­stofu Stöðvar 2 árið 2019 sagð­ist hann ekki hafa þorað að hugsa þá hugsun til enda hver áhrif þess yrðu á sam­fé­lagið á Hólmavík ef rækju­vinnslan logn­að­ist út af. 

Þá bjarg­að­ist allt á síð­ustu stundu er Snæfell, dótt­ur­fé­lag Samherja, tók yfir rekst­ur­inn, sem áður hafði verið í höndum Kaup­fé­lags Stranda­manna og FISK Seafood, dótt­ur­fé­lags Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Þorgeir sveit­ar­stjóri þurfti því ekki að klára hugs­un­ina. Fyrr en nú.  

Um miðjan júní var til­kynnt að rækju­vinnslu Hólma­drangs yrði hætt. Starfs­fólk fékk upp­sagn­ar­bréf um mán­aða­mótin. Rækjan hefur kvatt Hólmavík, að því er virð­ist fyrir fullt og allt.

Það munar um minna í litlu sam­fé­lagi, en rækju­vinnslan hefur verið með stærstu atvinnu­rek­endum í Stranda­byggð ára­tugum saman. Um tutt­ugu manns hafa nú misst vinn­una hjá fyr­ir­tæk­inu, nær allt fólk með langan starfs­aldur. Það þýðir að hátt í fimm pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins, …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KEP
    Kolbrún Erna Pétursdóttir skrifaði
    Enn og aftur fiskeldi í sjó! Hvers vegna? Er lausnin að eyðileggja fiskistofna?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár