Aukagjöld lækna sem námu stundum rúmum 100 þúsund krónum hverfa

Fólk sem leitar til sér­greina­lækna má búast við því að spara allt frá nokkrum þús­und krónum og upp í rúmar hund­rað þús­und krónur við hverja heim­sókn vegna nýs samn­ings Sjúkra­trygg­inga Íslands og Lækna­fé­lags Reykja­víkur. En sum gjald­anna eru ekki horfin á brott.

Aukagjöld lækna sem námu stundum rúmum 100 þúsund krónum hverfa
Und­ir­ritun Sigurður H. Helgason, for­stjóri SÍ, og WIllum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra við und­ir­ritun samn­ings­ins í lok júní.

Þrátt fyrir að nýr samn­ingur Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) og Lækna­fé­lags Reykja­víkur (LR) hafi verið und­ir­rit­aður í lok síð­asta mán­aðar, og gert það að verkum að þeir hafa fellt niður flest auka- og komu­gjöld, þá eru lík­lega 200 til 300 verk sem áfram verður rukkað fyrir. 

Ástæðan er sú að þau eru ekki komin inn í samn­ing­inn. Ekki hefur verið gerð sér­stök úttekt á fjölda verk­anna eða verði en þau geta kostað allt frá nokkrum þús­undum króna og upp í 15 þús­und krónur. Um er að ræða verk, til dæmis sér­stakar rann­sóknir eða með­ferðir, sem lækn­arnir hafa tekið upp á árunum fimm síðan síð­asti samn­ingur rann út.

Til stendur að SÍ muni taka þátt í að greiða fyrir nýju verkin, en það ger­ist ekki alveg strax. Ragnar Freyr Ingv­ars­son, for­maður LR, segir að það hafi ein­fald­lega ekki gef­ist tími til þess að færa þessi verk inn í verð­skrá Sjúkra­trygg­inga …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár