Myndlyklum í útleigu fækkað um fimmtung á fimm árum

Þeim sem leigja mynd­lykla fyrir nokkur þús­und krónur á mán­uði af fjar­skipta­fyr­ir­tækjum til að horfa á sjón­varp fækk­aði um fimm þús­und í fyrra. Fleiri og fleiri kjósa að horfa á sjón­varp í gegnum app. Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla­leigu, Síminn og Vodafone.

Myndlyklum í útleigu fækkað um fimmtung á fimm árum
Áhorf Í dag er hægt er að horfa á sjón­varp með ýmsum hætti, meðal ann­ars í gegnum mynd­lykil eða app. Mynd: Shutterstock

Fjöldi þeirra sem er með sjón­­­varp yfir IP-­­­net, sem er það sjón­­­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­­­leið­­­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­­­skipta­­­fyr­ir­tækj­um var 79.968 í lok síð­asta árs. Þeim sem velja að horfa á sjón­varp í gegnum slík tæki hefur fækkað um 21.186 á fimm árum, eða um 21 pró­sent. 

Þetta má lesa út úr nýj­ustu töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöðu hans í lok árs 2022. 

Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­­varp yfir IP-­­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. 

Í byrjun árs 2017 voru 56.534 áskrif­endur sem leigðu mynd­lykla hjá Símanum , og 44.620 hjá Vodafone. Í lok árs í fyrra hafði þeim áskrif­endum Símans sem það gerðu fækkað um 8.352 á fimm árum, eða um 14,8 pró­sent. Fækkunin hefur orðið enn meiri hjá Vodafone, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár