Spá því að verðbólgan fari loks niður fyrir níu prósent í fyrsta sinn í eitt ár

Matvara og hús­næði hafa hækkað meira í verði en flestir aðrir liðir und­an­farið ár. Ný verð­bólgu­spá sem unnin var fyrir Heim­ild­ina sýnir að verð­bólga í júní muni mæl­ast 8,5 pró­sent.

Spá því að verðbólgan fari loks niður fyrir níu prósent í fyrsta sinn í eitt ár
Allt er dýr­ara Matvara hefur hækkað um ell­efu pró­sent á einu ári. Mynd: Davíð Þór

Árs­breyt­ing vísi­tölu neyslu­verðs lækkar úr 9,5 í 8,5 pró­sent í júní, sam­kvæmt verð­bólgumati Ver­ati­bus fyrir Heim­ild­ina. Gangi það eftir mun tólf mán­aða verð­bólga lækka um heilt pró­sentu­stig milli mán­aða og verða sú lægsta síðan í júní í fyrra, eða í eitt ár. 

Á einu ári hefur mat­vara hækkað um ell­efu pró­sent og hús­næð­isliður vísi­töl­unnar um 10,9 pró­sent.

Í mat­inu kemur fram að Ver­ati­bus, sem er syst­ur­fé­lag Arev verð­bréfa­fyr­ir­tækis sem notar eigin verðkann­anir og opin­ber gögn við mat á verð­bólgu, telji að vísi­talan muni samt sem áður hækka um 0,6 pró­sent milli mán­aða þrátt fyrir að árs­verð­bólgan drag­ist umtals­vert saman. Þar segir að mat­vara og hús­næði hafi hækkað meira en flestir liðir síð­asta árið en að mat­varan hafi þó lækkað um 0,4 pró­sent milli maí og júní­mán­aða. „Hús­næð­is­mark­að­ur­inn heldur áfram að róast, en hækkar samt lít­il­lega áfram m.a. vegna verð­bólgu sem hefur áhrif á reikn­aða húsa­leigu, inn­flutta …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár