Haraldur sat fastur á hafsbotni í óvirkum kafbáti: „Við eigum á hættu að kafna“

„Það kom mér í mikið upp­nám, þegar fréttir bár­ust í vik­unni af týndum kaf­bát í miklum vanda í grennd við flakið af Titanic,“ segir Haraldur Sig­urðs­son eld­fjalla­fræð­ingur. „Ég hef sjálfur lent í sams­konar vanda í kaf­bát á botni Karí­ba­hafs­ins.“

Haraldur sat fastur á hafsbotni í óvirkum kafbáti: „Við eigum á hættu að kafna“

„Við Tim finnum líka að and­ar­dráttur er orð­inn erf­ið­ari,“ skrifar Haraldur Sig­urðs­son eld­fjalla­fræð­ingur, þegar hann rifjar upp atvik þar sem hann sat fastur á hafs­botni í óvirkum kaf­báti við neð­an­sjáv­ar­eld­fjallið Kick 'em Jenny, í grend við eynna Grenada í Karí­ba­hafi árið 1988.

Haraldur lýsir reynslu sinni í aðsendri grein til Heim­ild­ar­innar vegna þess að það fékk á hann að heyra af því að fimm menn hefðu lát­ist í kaf­báta­leið­angri. 

Fimm létust með Titan

Kaf­bát­ur­inn Titan hvarf af raf­sjá út fyrir Nýfundna­landi á sunnu­dag, en fimm far­þegar voru um borð í bátnum. Þeir voru að leið að flaki far­þega­skips­ins Titanic. Í gær­kvöldi var stað­fest að fimm hlutar úr kaf­bátnum hefðu fund­ist og að allir far­þegar hans væru látnir. Kaf­bát­ur­inn féll saman vegna þrýst­ings. 

Um borð voru Hamish Harding, millj­arða­mær­ingur frá Bret­landi og pakist­anski við­skipta­jöf­ur­inn Shahzada Dawood og Suliman, 19 ára gam­all sonur hans. For­stjóri OceanGate Expeditions var einnig um borð, Stockton Rush, en hann stóð að ferð­inni. Með í för var einnig einn helsti sér­fræð­ingur í Titanic, sjáv­ar­líf­fræð­ing­ur­inn Paul-Henry Nar­geloet. Hann hafði farið alls 35 sinnum niður að Titanic sem er á 3.800 metra dýpi.

„Það kom mér í mikið upp­nám, þegar fréttir bár­ust í vik­unni af týndum kaf­bát í miklum vanda í grennd við flakið af Titanic á um 4 km dýpi á hafs­botni hins ískalda Norður Atl­ants­hafs. Ég hef sjálfur lent í sams­konar vanda í kaf­bát á botni Karí­ba­hafs­ins,“ skrifar Haraldur.

Mælaborðið varð svart

Í grein­inni segir Haraldur frá þessum leið­angri og fleiri kaf­báta­ferðum. Hann mininst þess hve mikil upp­lifun það var að fylgj­ast með fjöl­breyttu líf­ríki hafs­ins á leið­inni niður í um 700 metra dýpi. Eftir að hafa lokið sýna­töku og athug­unum á hafs­botni og ætl­uðu þeir að færa sig ofar, en þá slokkn­uðu öll ljós í kaf­bátnum og mæla­borðið varð svart. 

„Ég spyr Tim hvað er að ger­ast, en hann svarar ekki. Hann dregur fram vasa­ljós og fer að grúska í vírum og tækjum. Mér datt ekki annað í hug en að þetta væri aðeins smá bilun og að hann hlyti að kippa því í lag strax. En tím­inn líður og Tim byrjar að bölva. Hann reynir við alla takka og ekk­ert ger­ist. Við erum án allrar orku og þar á meðal er slökkt á tæk­inu sem hreinsar koltví­oxíð úr lofti inni í bátnum og heldur við súr­efni. Við eigum á hættu að kafna vegna vax­andi koltví­oxíðs og súr­efn­is­skorts. 

Fyrir aftan stóru plast­kúl­una sem við Tim sitjum í er stærri kúla gerð úr álblöndu. Þar sitja tveir aðstoð­ar­menn, sem geta haft tal­sam­band við okkur en ekk­ert op er á milli. Þeir kvarta mikið yfir kulda. Á þessu dýpi er sjáv­ar­hiti kom­inn langt niður og far­inn að nálg­ast eina eða tvær gráður. Álhylkið þeirra leiðir kuld­ann beint inn, en plast­kúlan okkar veitir góða ein­angrun. Þeir eru farnir að kvarta yfir loft­leysi og við Tim finnum líka að and­ar­dráttur er orð­inn erf­ið­ari. Koltví­oxíðið vex hægt og hægt.“

Illa haldnir

Þegar Haraldi og félögum hans var bjargað voru þeir „illa haldnir, loft­lausir, og þeir í aft­ara hylk­inu farnir að kasta upp.“ Hann lýsir því þegar þeir gátu loks „opnað hler­ann og andað að okkur þessu dásam­lega and­rúms­lofti sem gefur öllu líf í jarð­ríki“. 

Nánari lýs­ingu á atvikum og kaf­báta­ferðum Haralds má lesa í grein­inni Kafbátur í vanda staddur. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár